Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Farþegar hjálpuðu til við að yfirbuga annan flugmann vélar Flydubai sem var á leið frá Dúbaí til Tel Avív í morgun. Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísraels segir flugmanninn hafa stungið kollega sinn í flugstjórnarklefanum með hníf og hafi ætlað að brotlenda vélinni. Erlent 30.9.2026 15:44
Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Farþegaþotu á leið frá Dúbaí til Tel Aviv í Ísrael var beint til Sádí-Arabíu eftir „slagsmál“ milli tveggja flugmanna vélarinnar. Áhöfn vélarinnar naut aðstoðar farþega við að yfirbuga annan flugmanninn og binda hendur hans fastar. Óljósar fregnir hafa borist af hníf í vélinni og að flugmenn úr hópi farþega hafi hjálpað til við lendingu. Erlent 30.9.2026 09:28
Þriggja turna þras í furstadæmunum Talsmaður Vladimírs Pútín segir að þriggja hliða fundur milli Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna gæti átt sér stað í náinni framtíð. Það sé þó ekki ljóst enn og viðræður við Bandaríkjamenn standi enn yfir. Vólódímír Selenskí segir að Bandaríkjamenn hafi lagt til að fundurinn fari fram í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Erlent 25.9.2026 10:29
Hafa gert leynilegar árásir í Íran Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa gert leynilegar árásir á skotmörk í Íran. Sérfræðingar hafa lengi velt vöngum yfir slíkum árásum en þær eru meðal annars sagðar hafa beinst gegn olíuvinnsluinnviðum og vatnseymingarstöð. Erlent 12. maí 2026 11:25
Franskur floti á leið til Persaflóa Frakkar eru að senda flugmóðurskipið Charles de Gaulle og fylgiskip þess í átt að Hormússundi. Flotanum var siglt gegnum Súesskurðinn í gær og er honum ætlað að koma að því að tryggja siglingar um sundið á nýjan leik. Forseti Frakklands segir þó að flotinn eigi alls ekki að koma að átökum á svæðinu. Erlent 7. maí 2026 09:14
Furstadæmin yfirgefa OPEC Ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum lýstu því yfir í dag að ríkið ætlaði að yfirgefa samtök olíuútflutningsríkja eða OPEC-ríkin svokölluðu. Furstadæmin hafa lengi tilheyrt hópnum og er útlit fyrir að um þungt högg fyrir hann sé um að ræða, á sama tíma og olíuverð hefur hækkað verulega og markaðurinn er í mikilli óvissu vegna átakanna í Mið-Austurlöndum og lokunar Hormússunds. Viðskipti erlent 28. apríl 2026 13:24
Fyrirséð fjöldamorð í El Fasher: Að minnsta kosti tíu þúsund myrtir á tveimur dögum Þegar borgin El Fasher í Súdan féll í hendur uppreisnarmanna Rapid Support Forces (RSF) frömdu þeir einhver verstu ódæði sem sést hafa frá þjóðernishreinsununum í Rúanda á árum áður. Þúsundum óbreyttra borgara var slátrað á götum borgarinnar og í nágrenni hennar. Erlent 29. mars 2026 07:30
Rekinn úr íranska landsliðinu Sardar Azmoun, einn besti leikmaður íranska landsliðsins í fótbolta, er sagður hafa verið rekinn úr landsliðinu fyrir meinta óhollustu við stjórnvöld landsins. Fótbolti 20. mars 2026 11:30
Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað umfangsmiklum árásum á Suður Pars-gasvinnslusvæðið ef Íranir gera frekari árásir á gasinnviði í Katar. Erlent 19. mars 2026 06:51
Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Árásir Írana á skotmörk í nágrannaríkjunum héldu áfram í nótt og í morgun og sömuleiðis árásir Ísraelsmanna á skotmörk í Líbanon. Drónaárás var gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad í Írak og þá var gerð árás á lúxushótel í borginni sem er vinsælt meðal erlendra diplómata. Erlent 17. mars 2026 06:52
Stórstjarnan flytur til Dúbaí í miðju stríði Þúsundir flýja frá Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en hnefaleikakappinn Anthony Joshua kaus það að flytja þangað þrátt fyrir að stríð geisi í Mið-Austurlöndum. Sport 12. mars 2026 06:32
Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Donald Trump forseti Bandaríkjanna og Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands ræddust við í síma í dag um málefni Mið-Austurlanda og samvinnu Breta og Bandaríkjamanna í stríðinu gegn Íran. Enn hefur ekki verið tilkynnt um hver sé nýr leiðtogi Íran. Erlent 8. mars 2026 16:26
Loks komnar af átakasvæðinu: „Átján tímar af þroti“ Fjórar vinkonur sem voru að hefja heimsreisu þegar þær festust á átakasvæði í Mið-Austurlöndunum hafa loks komist þaðan. Þær fréttu af því að þær hefðu fengið pláss í flugferð í útvarpinu, þurftu að komast yfir landamæri með ókunnugum heimamanni og dvelja á flugvelli í fleiri klukkustundir í hópi Rúmena. Innlent 8. mars 2026 16:15
Hafa ekki náð á 26 Íslendinga í Mið-Austurlöndum Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur ekki náð sambandi við 26 Íslendinga á áhrifasvæðum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Alls hafa 120 Íslendingar komið sér af svæðinu eða ætla ekki að gera það, en enn er unnið að málum 47 Íslendinga. Frá þessu er greint í tilkynningu frá stjórnarráðinu. Innlent 7. mars 2026 11:12
Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Masoud Pezeshkian, forseti Íran, segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf „draum sem þeir ættu að taka með sér í gröfina“. Íranir og Ísraelar héldu loftárásum sínum áfram í nótt og í morgun. Erlent 7. mars 2026 08:12
Dorrit segir þetta besta tímann til að fara til Abu Dhabi Dorrit Moussaieff segir besta tímann til að ferðast til Abu Dhabi, höfuðborgar Sameinuðu arabísku furstadæmanna, vera einmitt núna, þrátt fyrir að landið sé nú í fréttum vegna átaka í Miðausturlöndum og flugskeytaárása Írana. Lífið 6. mars 2026 22:03
Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Ungar íslenskar konur sem fastar eru í Dúbaí sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi sem íslenska borgaraþjónustan hefur boðið borgurum á átakasvæðinu í Mið-Austurlöndum þar sem brottfararstaður er í 12 til 24 klukkustunda akstursfjarlægð. Þær vonast frekar til þess að geta náð flugi á laugardag og haldið sínu striki í heimsreisu. Innlent 4. mars 2026 20:41
Flóttinn frá Dúbaí gengur vel Kærustuparið Davíð Guðlaugsson og Lovísa Ósk Davíðsdóttir lentu í Jedda í Sádi-Arabíu í gærkvöld. Þaðan áttu þau svo bókað flug til London í morgun og því allt útlit fyrir að áætlun þeirra um að forða sér frá Dúbaí á eigin vegum ætli að ganga upp. Innlent 4. mars 2026 13:00
Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum „Það er er enginn sem hjálpar okkur eitt né neitt hérna,“ segir Davíð Guðlaugsson, sem hefur setið fastur í Dúbaí ásamt unnustu sinni, Lovísu Ósk Davíðsdóttur. Þau undrast ráðaleysi borgaraþjónustu utanríkisráðuneytis og ætla í nótt að freista þess að komast til Óman á eigin vegum. Innlent 2. mars 2026 18:56
Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Fjórar ungar íslenskar konur sem voru í safarí við Dubai á laugardagsmorgun fréttu frá foreldrum sínum hér heima að drunur sem þær heyrðu væri skotárás að sögn móður einnar þeirra. Þær hafa verið fastar á hóteli síðan þá en vonast er til að þær komist frá borginni á miðvikudag. Innlent 2. mars 2026 12:00
Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Þrír bandarískir hermenn féllu og fimm hermenn særðust alvarlega í tengslum við átök Írans við Ísrael og Bandaríkjamenn, að sögn Bandaríkjahers. Auk þess létu hið minnsta níu Ísraelsmenn lífið í árás á í ísraelsku borginni Beit Shemesh í dag, að sögn viðbragðsaðila. Erlent 1. mars 2026 15:15
Íslendingar óska eftir aðstoð Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hefur nokkur fjöldi íslenskra ríkisborgara á áhrifasvæðum í Miðausturlöndum haft samband við borgaraþjónustu ráðuneytisins. Þeim hafi verið veittar upplýsingar og aðstoð eftir fremsta megni. Innlent 1. mars 2026 14:04
Skipta út stjórnarformanni sem sendi Epstein pyntingamyndband Eitt stærsta flutningsfyrirtæki heims skipti út stjórnarformanni sínum í dag eftir að hann var ítrekaður nefndur í Epstein-skjölunum svonefndu. Hneykslismál formannsins settu viðskiptasamninga fyrirtækisins í uppnám. Viðskipti erlent 13. febrúar 2026 15:27
Furstadæmin þjálfa uppreisnarmenn í leynilegri herstöð Yfirvöld í Eþíópíu hafa reist leynilegar herbúðir þar sem þúsundir meðlima uppreisnarhópsins Rapid Support Forces (RSF) eru þjálfaðir fyrir átök við stjórnarherinn í Súdan. Framkvæmdirnar munu hafa verið fjármagnaðar af Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem hafa staðið þétt við bakið á RSF í átökunum blóðugu í Súdan. Erlent 11. febrúar 2026 09:21