Arsenal - Lille | Hákon í heimsókn hjá Englandsmeisturunum Hér fer fram bein textalýsing frá leik Arsenal og Lille í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Flautað verður til leiks á Emirates leikvanginum í Lundúnum klukkan sjö. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport 2. Fótbolti 13.10.2026 18:39
Atlético Madrid - Manchester United | Undir pressu í Madríd Hér fer fram bein textalýsing frá leik Atlético Madrid og Manchester United í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Flautað verður til leiks í Madríd klukkan sjö, leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay. Fótbolti 13.10.2026 18:30
Dagskráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal Meistaradeild Evrópu snýr aftur í kvöld með afar áhugaverðum leikjum og má þar nefna leik Arsenal og Lille sem er með Skagamanninn Hákon Arnar Haraldsson í stóru hlutverki. Körfuboltakvöld Extra snýr líka aftur og 3. umferðin í Bónus-deild kvenna verður gerð upp í beinni útsendingu. Fótbolti 13.10.2026 06:00
Vandræðalegasta viðtal sögunnar? „Þetta er bara eitt það pínlegasta sem ég hef séð,“ sagði í Meistaradeildarmörkunum eftir viðtal við Michael Olise eftir leik kvöldsins. Viðtalið var ekki gott líkt og viðbrögð sérfræðinga þáttarins sýna. Fótbolti 10. september 2026 22:11
Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Það gengur á ýmsu hjá Fenebahce eftir 1-1 jafntefli liðsins við Roma í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Þjálfarinn hætti en forsetinn neitar að taka uppsögninni. Fótbolti 10. september 2026 21:18
Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu lauk í kvöld með fjórum leikjum þar sem gekk á ýmsu. Fótbolti 10. september 2026 21:04
United aldrei í vandræðum Manchester United vann 4-0 sigur á liði Sabah frá Aserbaídsjan í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta á Old Trafford í kvöld. Fótbolti 10. september 2026 20:55
Bakverðir til bjargar Jafnt var í tveimur fyrir leikjum dagsins í Meistaradeild Evrópu í fótbolta sem fram fóru í Istanbúl og Eindhoven. Bakverðir tryggðu liðum sínum stig í leikjunum tveimur. Fótbolti 10. september 2026 18:37
Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Um klukkan 21 annað kvöld ætti að koma í ljós hvort það verður Afturelding eða Breiðablik sem verður fulltrúi Íslands í 1. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar næsta sumar. Leið þess liðs inn í Evrópudeildina er orðin enn torfærari en áður en leið Íslandsmeistaranna virðist mun greiðfærari. Íslenski boltinn 10. september 2026 13:32
Stjórn Como gefur frá sér sína miða Como tryggði sig í Meistaradeild Evrópu í fyrsta skipti í sögu félagsins og mun spila sinn fyrsta Meistaradeildarleik þegar liðið mætir RB Leipzig á heimavelli. Stjórnarmeðlimir félagsins hafa ákveðið að gefa frá sér miðana sína til elstu stuðningsmanna félagsins. Fótbolti 10. september 2026 11:30
Nýr Camp Nou míglekur Það var ekki aðeins á vellinum sem mikil úrkoma vakti athygli þegar Barcelona tók á móti Feyenoord í Meistaradeildinni í gær. Blaðamenn á leikvanginum fengu heldur betur að finna fyrir veðrinu þegar vatn tók að flæða inn á fjölmiðlasvæðið. Fótbolti 10. september 2026 10:31
Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Markavieisla var í Meistaradeild Evrópu í gær þegar sex leikir fóru fram. Barcelona og PSG unnu stórsigur og Arsenal vann með glæsilegu marki frá Martin Ödegaard og Alexis Mac Allister var hetja Liverpool. Fótbolti 10. september 2026 09:30
Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Sem fyrr er nóg um að vera á sportrásum Sýnar. Í kvöld snýr Manchester United aftur í Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 10. september 2026 06:00
Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Ríkjandi Evrópumeistarar félagsliða, Paris Saint-Germain, hóf titilvörn sína í Meistaradeild Evrópu á stórsigri gegn Slovan Bratislava á Prinsavöllum í kvöld. Lokatölur 6-1 sigur PSG. Fótbolti 9. september 2026 21:04
Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Martin Ødegaard, fyrirliði Arsenal, sá til þess að hans lið hefur deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu á öflugum 1-0 útisigri gegn Napoli. Enski boltinn 9. september 2026 20:55
Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Liverpool hafði betur gegn Atletico Madrid er liðin mættust á Anfield í fyrstu umferð deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. 2-1 sterkur endurkomusigur staðreynd. Það var Alexis Mac Allister, sem hafði verið áberandi í fjölmiðlum fyrir leik, sem tryggði Liverpool sigurinn. Enski boltinn 9. september 2026 20:54
Jesus á skotskónum í stórsigri Börsunga Barcelona átti ekki í neinum vandræðum með hollenska liðið Feyenoord þegar að liðin mættust í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í kvöld, lokatölur 5-1. Amin Cosic fékk ekki að spila sinn fyrsta leik í deildinni með Viking sem laut í lægra haldi gegn Stuttgart í Þýskalandi. Fótbolti 9. september 2026 18:39
Söguleg stund fyrir Viking í kvöld Viking frá Noregi mætir Stuttgart í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Norskum liðum í fótbolta hefur gengið vel og eru tvö norsk lið í Meistaradeildinni í ár auk þess sem landsliðið stóð sig vel á heimsmeistaramótinu í sumar. Fótbolti 9. september 2026 14:16
Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Erling Haaland var á skotskónum fyrir Manchester City í gær þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í sigri á Porto í Meistaradeild Evrópu. Jamie Carragher er sannfærður um að hann verði besti markaskorari allra tíma. Enski boltinn 9. september 2026 10:31
Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Gærkvöldið var ólíkt hjá Mbappé-bræðrunum í Meistaradeild Evrópu. Annar skoraði í sigurleik en hinn missti stjórn á sér eitt augnablik og fékk rautt spjald í afar svekkjandi tapi. Erling Haaland skoraði svo bæði mörk Manchetser City gegn Porto. Mörkin úr leikjum gærkvöldsins og rauða spjaldið má sjá á Vísi. Fótbolti 9. september 2026 09:32
Dagskráin: Arsenal og Liverpool í Meistaradeildinni og NFL byrjar Það er nóg um að vera á sportrásum Sýn Sport í dag. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla heldur áfram að rúlla með frábærum leikjum og Lokasóknin hefur göngu sína þetta tímabilið fyrir NFL deildina. Sport 9. september 2026 06:01
Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Konstantinos Karetsas, leikmaður þýska liðsins Borussia Dortmund var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa hnigið niður í leik gegn Villarreal í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Fótbolti 8. september 2026 21:54
Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Erling Haaland skoraði bæði mörk Manchester City í 2-0 útisigri liðsins gegn Porto í fyrstu umferð deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Á sama tíma hafði Dortmund betur gegn Villarreal í miklum markaleik. Fótbolti 8. september 2026 21:10
Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Íslenski landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson og liðsfélagar hans í Lille þurftu að sætta sig við 3-2 tap gegn Real Betis á heimavelli í fyrstu umferð deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 8. september 2026 21:02