Utanríkismál

Fréttamynd

Sterkari saman á óvissutímum

Engum dylst að við stöndum frammi fyrir mikilli og vaxandi óvissu í alþjóða- og öryggismálum, sem snertir okkur Íslendinga ekki síður en aðra. Þess vegna setti ríkisstjórnin öryggis- og varnarmál á oddinn.

Skoðun
Fréttamynd

Fyrri um­ræðu um þjóðar­at­kvæði lokið

Alþingismenn luku í gærkvöldi fyrri umræðu um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Þingfundur stóð fram til að verða ellefu þar sem tekist var á um málið en að endingu lauk umræðunni og fer málið nú í síðari umræðu og til meðferðar hjá utanríkismálanefnd Alþingis.

Innlent
Fréttamynd

„Við erum ekki hrædd“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra þakkaði Mark Carney forsætisráðherra Kanada fyrir forystuna sem hann hefur sýnt á alþjóðavettvangi og talaði um tómarúm sem fylla hefði þurft.

Innlent
Fréttamynd

Telur að Banda­ríkja­stjórn vilji sundra Evrópu

Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins telur að núverandi Bandaríkjastjórn vilji sundra og veikja Evrópu. Evrópuríki ættu að bregðast við saman í stað þess að reyna að eiga við Bandaríkin hvert og eitt.

Erlent
Fréttamynd

Ís­lendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum

Íslendingar skipa sér í hóp með öfgaríkjum með þátttöku í málsókn Suður-Afríku gegn Ísrael að mati formanns Miðflokksins. Ákvörðunin muni óhjákvæmilega hafa afleiðingar í samskiptum við bandamenn Íslendinga. Utanríkisráðherra segir Ísland vera að standa með alþjóðalögum.

Innlent
Fréttamynd

Ís­land tekur þátt í máli gegn Ísrael

Íslensk stjórnvöld taka nú þátt í máli gegn Ísrael fyrir Aþjóðadómstólnum vegna stríðsreksturs þess á Gasaströndinni. Þetta er í fyrsta skipti sem Ísland tekur þátt í málarekstri af þessu tagi.

Innlent
Fréttamynd

Orðhengils­háttur vill ein­kenna ESB-um­ræðuna

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er önnum kafinn einstaklingur en hún heldur áfram að koma á óvart hvað varðar viðtöl við fjölmiðla. Hún var mætt í Brennsluna á FM 957 í morgun í ítarlegt viðtal um ESB og kosningarnar um aðildarviðræður.

Innlent
Fréttamynd

Sjái þegar merki um að for­spá um klofningu þjóðarinnar standist

Prófessor í fjölmiðlafræði segist þegar sjá skautun á samfélagsmiðlum vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst og bendir á að bæði meiri- og minnihluti hafi talið atkvæðagreiðsluna muna skipta þjóðinni í fylkingar. Rannsóknir sýni fram á að sífellt færri leiti frétta úr ólíkum áttum.

Innlent
Fréttamynd

Óttast ekki að þjóðar­at­kvæða­greiðslunni verði seinkað

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segist ekki óttast að langar umræður á Alþingi um þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við ESB muni seinka atkvæðagreiðslunni sem til stendur að blása til 29. ágúst. Hún hafnar ásökunum um samráðsleysi og segist hugsi yfir því að þingmenn stjórnarandstöðunnar hafi ekki svarað því hvort þeir muni virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Innlent
Fréttamynd

Frekari ESB-umræður í þinginu

Fyrsta umræða um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu heldur áfram á Alþingi á þingfundi dagsins. Málið var rætt langt fram á kvöld í gærkvöldi.

Innlent
Fréttamynd

Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi

Ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, vill halda Íslandi utan Evrópusambandsins, þar sem innganga myndi veikja samningsstöðu Bandaríkjanna gagnvart Íslandi hvað varðar viðskipti og koma niður á varnarmálum Bandaríkjanna. Bandarískur ráðgjafi breska stjórnmálamannsins Nigel Farage, formanns breska flokksins Reform, er sagður hafa komið tvisvar sinnum til Íslands á þessu ári. 

Innlent
Fréttamynd

„Þetta eru allt­of miklar hækkanir“

Ótti við forsendubrest kjarasamninga er að aukast meðal aðila innan Samtaka atvinnulífsins. Mjög margir mismunandi þættir spila inn í aukna verðbólgu hér á landi, sem nú mælist um 5,2 prósent, en nýleg áform virðast ekki líkleg til að sporna við henni. Þetta segir Bjarni Benediktsson, nýr framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Innlent
Fréttamynd

Að kljúfa þjóðina með til­finningaþrunginni spurningu

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, opnaði umræðu um aðildarviðræður við Evrópusambandið með fyrirspurn til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi nú fyrr í dag. Víst er að stjórnarandstaðan er að búa sig í skotgrafirnar.

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: ESB-ballið byrjar á Al­þingi

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælir fyrir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópu­sambandinu á þingfundi dagsins, sem hefst klukkan 15. Ætla má að hart verið tekist á um málið og fylgjast má með fundinum í beinni á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Hafa ekki náð á 26 Ís­lendinga í Mið-Austurlöndum

Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur ekki náð sambandi við 26 Íslendinga á áhrifasvæðum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Alls hafa 120 Íslendingar komið sér af svæðinu eða ætla ekki að gera það, en enn er unnið að málum 47 Íslendinga. Frá þessu er greint í tilkynningu frá stjórnarráðinu.

Innlent
Fréttamynd

Úti­loka að þjóðar­at­kvæða­greiðslan fái hraða af­greiðslu

Formaður Miðflokksins útilokar að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við ESB muni hljóta skjóta afgreiðslu á þingi. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir dagsetninguna henta frasakenndri stefnu ríkisstjórnarinnar en ekki þjóðinni. Þeir segja utanríkismálanefnd hafa verið hundsaða með öllu og segja ekkert að marka fyrri orð forsætisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Ís­land sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildar­við­ræður

Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands fer fram 29. ágúst. Það tilkynnti ríkisstjórnin á blaðamannafundi fyrr í dag. Forsætisráðherra sagði tilefni til viðræðna núna. Samningsstaða Íslendinga væri góð, betri en áður, auk þess sem mikið rót væri í alþjóðamálum.

Innlent
Fréttamynd

Þjóðar­at­kvæða­greiðslan fer fram 29. ágúst

Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið fer fram þann 29.ágúst, að því gefnu að þingsályktunartillaga þess efnis verði samþykkt. Mælt verður fyrir þingsályktunartillögunni í upphafi næstu viku.

Innlent
Fréttamynd

„Er ekki alltaf ger­legt við þessar kring­um­stæður“

Á fjórða tug Íslendinga hefur komið sér frá hættusvæðum vegna átakanna í Miðausturlöndum eftir ýmsum leiðum. Yfirmaður borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins segir að unnið sé dag og nótt við að aðstoða þá rúmlega 180 Íslendinga sem hafi tilkynnt viðveru á svæðinu. 

Innlent
Fréttamynd

Kynnir hve­nær þjóðar­at­kvæða­greiðsla um við­ræður við ESB fer fram

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utan­ríkis­ráðherra kynnir þingsá­lyktunar­tillögu um þjóðar­at­kvæða­greiðslu um aðildar­viðræður að Evrópu­sam­bandinu (ESB) á fundi ríkis­stjórnar á morgun. Beint eftir fundinn verður haldinn blaða­manna­fundur þar sem efnis­at­riði til­lögunnar verða kynnt og dag­setning at­kvæða­greiðslunnar.

Innlent
Fréttamynd

Að­gerða­á­ætlun um ein­földun EES-regluverksins og af­nám gullhúðunar

Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið (ÍEV) hafa sent utanríkisráðherra, forsætisráðherra, atvinnuvegaráðherra og formanni utanríkismálanefndar Alþingis tillögur um aðgerðaáætlun í fimm liðum til að greiða fyrir innleiðingu einfaldari EES-reglna í íslenskan rétt og afnámi svokallaðrar gullhúðunar Evrópureglna.

Skoðun