Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar 1. október 2026 11:03 Ung íslensk kona flytur heim eftir að hafa starfað sem læknir í Danmörku. Hún eignast barn og sækir um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Samkvæmt EES-samningnum á að taka tillit til starfa hennar í Danmörku við útreikning greiðslnanna. Það gerist ekki. Ungi læknirinn fær aðeins lágmarksgreiðslur. Við tekur sex ára barátta við kerfið fyrir réttindum sem hún átti að njóta frá upphafi. Þegar niðurstaða fæst loks og henni eru dæmdar skaðabætur er barnið, sem fæðingarorlofið snerist um, komið á grunnskólaaldur. Þetta er dæmi um það hvaða áhrif það getur haft fyrir fólkið okkar þegar stjórnvöld standa ekki við skuldbindingar sínar þegar kemur að EES-samningnum. Mikilvægasta viðskiptasamningi sem við Íslendingar höfum gert. Og þetta er ástæðan fyrir því að ég mun á næstu dögum leggja bókun 35 fyrir Alþingi í þriðja sinn. Vegna þess að þessi ríkisstjórn neitar því að gera það sem fyrri ríkisstjórnir hafa gert: að vanrækja okkar skyldur. Það kemur ekki lengur til greina fyrir fólkið okkar. Kerfin eiga að vinna fyrir fólkið Íslendingar eiga að geta gengið að því vísu að þeir geti reitt sig á réttindi sín samkvæmt samningnum hér á Íslandi. Alveg eins og Íslendingur sem veikist á Spáni, stundar nám í Svíþjóð eða selur vörur til Þýskalands verður að geta treyst því að sömu leikreglur gildi innan EES. Og treysta því að þurfa ekki að standa í sex ára baráttu við íslenska ríkið til þess að fá það sem hann á rétt á. Við getum deilt lengi um lagatúlkanir og lagatæknileg atriði. En á meðan líður tíminn hjá raunverulegu fólki. Fæðingarorlofið kemur ekki aftur. Glötuð réttindi koma ekki aftur. Skaðabætur mörgum árum síðar breyta því ekki. Kerfin eiga að þjóna fólkinu, ekki öfugt. Klárum málið hér heima Hæstiréttur Íslands hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að innleiðing bókunar 35 hafi ekki verið fullnægjandi. Nú hefur Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) greint frá því að hún muni höfða mál á hendur íslenskum stjórnvöldum fyrir EFTA-dómstólnum. Hér er um að ræða lokastig samningsbrotamáls sem stofnunin hefur haft til meðferðar yfir lengri tíma. Mér finnst einfaldlega meiri bragur á því að við klárum þetta mál sjálf hér í Reykjavík en að bíða eftir því að það verði klárað fyrir okkur í Lúxemborg. Við höfum leiðsögn Hæstaréttar. Við vitum hvert vandamálið er. Við vitum hvernig hægt er að laga það. Og ég tel að allar líkur séu á að verði frumvarpið samþykkt falli ESA frá málsókninni. Nú er kominn tími til að klára málið. Fullveldi felst líka í ábyrgð Í umræðunni um bókun 35 hefur mikið verið talað um fullveldi Íslands. Það er eðlilegt. Mér er mjög annt um fullveldi Íslands og ég myndi ekki standa að lausn sem ég teldi ganga gegn því. En ég hef aldrei skilið fullveldi þannig að það felist í því að gera samninga við aðrar þjóðir og ákveða síðan sjálf hvort við stöndum við þá. Fullvalda ríki tekur sjálft ákvarðanir. Það gerir samninga þegar það telur þá þjóna hagsmunum sínum. Og þegar það hefur gert þá stendur það við orð sín. Norðmenn hafa innleitt bókun 35. Fullveldi Noregs hefur ekki beðið hnekki af því. Ég sé enga ástæðu til þess að gera minna úr getu okkar Íslendinga til að standa vörð um okkar fullveldi á sama tíma og við stöndum við gerða samninga. Það á sérstaklega við um smáríki eins og Ísland. Við eigum gríðarlega hagsmuni undir alþjóðakerfi þar sem reglur gilda, samningar halda og stór ríki jafnt sem smá standa við skuldbindingar sínar. Við getum ekki krafist þess að aðrir virði réttindi Íslendinga á sama tíma og við látum okkar eigin skuldbindingar liggja milli hluta. Risastórt réttlætismál Nýlega áttum við Íslendingar stórt samtal um stöðu okkar í Evrópu. Þjóðin tók sína ákvörðun og hana virðum við. En eitt virtist líka sameina nær alla í þeirri umræðu: mikilvægi EES-samningsins fyrir Ísland. Nú gefst Alþingi tækifæri til að sýna þann stuðning í verki. Ég vona að hann hafi ekki bara verið orðin tóm. Samþykkt frumvarps um bókun 35 er liður í því að standa við skuldbindingar okkar í EES-samstarfinu. Með því sýnum við að við tökum ábatanum sem samningnum fylgir ekki sem sjálfsögðum hlut. Að við krefjumst þess ekki einungis að okkar réttindi séu virt heldur að við stöndum við okkar hlut með gagnkvæmum og ábyrgum hætti. Í þágu fólksins og fyrirtækja í landinu. Til þess að færa þeim frelsi, réttaröryggi og frekari tækifæri, hér heima sem og annars staðar á innri markaðnum. Ég mun því standa fast við þingmál mitt sem er í grunninn risastórt réttlætismál. Ég skora á þingheim að gera slíkt hið sama. Höfundur er utanríkisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Utanríkismál Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun