Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Kjartan Kjartansson skrifar 30. september 2026 10:31 Allþingi hefur enn ekki auðnast að samþykkja lög til þess að uppfylla skyldur Íslands vegna EES-samningisns í bókun 35. Fjórða atlagan að því verður gerð á þessu þingi. Vísir/Vilhelm Eftirlitsstofnun EFTA hefur vísað máli gegn íslenska ríkinu til EFTA-dómstólsins vegna þess að íslensk lög tryggi ekki að EES-reglur haldi gildi sínu. Þannig hafi Ísland ekki innleitt skuldbindingar sínar samkvæmt bókun 35 við EES-samninginn.
Fjórtán ár eru liðin frá því að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) gerði fyrst athugasemdir við að íslensk stjórnvöld hefðu ekki uppfyllt svonefnda bókun 35 við EES-samninginn sem kveður á um forgang EES-reglna í íslenskum lögum. Samningsbrotamál var opnað fyrir tæpum áratug. Stofnunin hefur nú ákveðið að höfða mál gegn ríkinu fyrir EFTA-dómstólnum í Lúxemborg sem sker úr ágreiningi um túlkun og beitingu EES-samningnum í EFTA-ríkjunum þremur. Í fréttatilkynningu um málshöfðunina segir ESA að stofunin hafi lengi átt í samskiptum við íslensk stjórnvöld um bókun 35. Réttindi sem bókunin kveði á um hafi þrátt fyrir það enn ekki verið tryggð með fullnægjandi hætti í íslenskum lögum. „Einstaklingar og fyrirtæki þurfa að geta treyst á þau réttindi sem þau njóta í krafti EES-samningsins á Íslandi. Við höfum þess vegna beðið EFTA-dómstólinn að úrskurða um það hvort að íslenska ríkið hafi uppfyllt skyldur sínar,“ segir í tilkynningunni. Töldu sig hafa uppfyllt bókun 35 á tíunda áratugnum Bókun 35 hefur orðið að pólitísku bitbeini undanfarin ár. Hún felur í einföldu máli í sér að ef íslensk lög sem innleiða EES-reglur stangast á við önnur íslensk lagaákvæði skuli innleiddu EES-reglurnar njóta forgangs. Íslensk stjórnvöld töldu sig hafa uppfyllt skuldbindingar sínar með ákvæði í lögum um evrópska efnahagssvæðið árið 1993. Dómur Hæstaréttar um áratug síðar setti það í uppnám þar sem hann taldi ákvæðið ekki þýða að íslensk lög sem byggðu á EES-reglum gengu framar öðrum lagagreinum. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) lýsti fyrst yfir áhyggjum af því að dómar frá Hæstarétti Íslands gæfu til kynna að einstaklingar og fyrirtæki gætu ekki treyst á að íslensk lög veittu þeim réttindi í samræmi við EES-samninginn árið 2012. ESA opnaði svonefnt samningsbrotamál í desember árið 2017. Þremur árum síðar lagði stofunin fram rökstutt álit um vanefndir Íslands. Hæstiréttur Íslands staðfesti árið 2023 að ekki væri regla í íslenskum lögum sem tryggði stöðu innleiddra EES-réttinda í samræmi við svonefnda bókun 35. Leggja fram frumvarp í fjórða sinn Frumvörp að lögum sem áttu að uppfylla skuldbindingar Íslands samkvæmt bókuninni hafa þrisvar verið lögð fram á Alþingi frá 2023 í tíð tveggja ríkisstjórna en aldrei verið samþykkt. Þingmenn Miðflokksins stóðu meðal annars fyrir málþófi til að koma í veg fyrir framgang þess í fyrra. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, lagði frumvarp um breytingu á lögum um EES fram í síðustu viku. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, hefur sagt að bókun 35 verði í forgangi á þessu þingi til þess að festa EES-samninginn í sessi. Ríkisútvarpið sagði frá því fyrr í þessum mánuði að íslensk stjórnvöld hefðu vitað af því að málshöfðunin vofði yfir. Málið hefði verið í biðstöðu vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður að Evrópusambandinu í síðasta mánuði.
EES-samningurinn Evrópusambandið Dómsmál EFTA Bókun 35 Alþingi Utanríkismál Lúxemborg Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Fleiri fréttir „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Sjá meira