Samgönguslys

Alvarlegt rútuslys nærri Blönduósi
Lögreglan á Norðurlandi vestra sinnir nú alvarlegu umferðarslysi sem varð í umdæmi lögreglunnar á fimmta tímanum í dag. Um meiriháttar útkall er að ræða og er verið að senda allt tiltækt lið sjúkrabíla og lögreglu á vettvang auk slökkviliðsbíla.

Tveir á gjörgæslu eftir alvarlegt umferðarslys á Vesturlandsvegi
Vinnu viðbragðsaðila á vettvangi alvarlegs umferðarslyss sem varð á Vesturlandsvegi á tólfta tímanum í dag er lokið.

Sluppu með skrekkinn í Djúpagili
Telja má mildi að enginn hafi slasast alvarlega þegar bílaleigubíll fór útaf hringveginum í Skjónugili um einn kílómetra fyrir norðan Vík í Mýrdal síðdegis í gær. Þrír erlendir ferðamenn voru í bílnum og sluppu allir ómeiddir samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vík.

Vesturlandsvegi lokað eftir alvarlegt umferðarslys
Vesturlandsvegi við Kollafjörð, norðan Mosfellsbæjar, hefur verið lokað vegna alvarlegs umferðarslyss.

Ók á ljósastaur á Reykjanesbraut
Ekið var á ljósastaur á Reykjanesbrautinni, skammt frá Vífilsstöðum, á sjötta tímanum í dag.

Aðstæður mjög slæmar þar sem rútan fór út af og fjöldi annarra bíla utan vegar
Aðstæður eru mjög erfiðar á Vesturlandsvegi og hafa þó nokkrir fólksbílar farið út af á nærliggjandi svæði í dag. Farþegar rútunnar sem fór út af veginum á tíunda tímanum eru óslasaðir og hafa verið fluttir í fjöldahjálparstöð á Kjalarnesi.

Fluttur á bráðadeild eftir flugeldaslys
16 ára drengur var fluttur á bráðamóttöku í gærkvöldi eftir að tilkynning barst lögreglu klukkan 22:40 um flugeldaslys í Laugarneshverfi í Reykjavík.

Bílbelti björguðu miklu á Gjábakkavegi: Nítján í rútunni sem valt – einn fluttur á slysadeild
Varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu segir alveg ljóst að bílbelti hafi bjargað því að ekki fór verr. Allir sem voru um borð í rútunni voru í bílbeltum og það varnaði því að fólk slasaðist ekki meira.

Rúta valt skammt frá Þingvöllum
Rúta valt skammt frá Þingvöllum á tólfta tímanum í kvöld. Á annan tug manna eru í rútunni.

Eldur kom upp í bílum eftir árekstur í Grafarvogi
Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins voru dælubíll og tveir sjúkrabílar sendir á vettvang en ekki var talin ástæða til þess að flytja neinn á slysadeild. Korpúlfsstaðavegi hefur verið lokað á meðan viðbragðsaðilar vinna á vettvangi.

Umferðarslys á Hrútafjarðarhálsi: Fimm fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar
Lögreglan á Norðurlandi vestra fékk tilkynningu um klukkan tíu í gærkvöldi um að bifreið hefði oltið út af þjóðveginum yfir Hrútafjarðarháls, mitt á milli Hrútafjarðar og Hvammstangavegar. Fimm voru bílnum og voru allir fluttir með þyrlu á sjúkrahús.

Þrír sendir með þyrlu á bráðamóttöku og tíu á Selfoss
Betur fór en á horfði þegar tveir bílar skullu saman á Biskupstungnabraut við Myrkholt á Suðurlandi.

Kastaðist út úr bíl sínum eftir alvarlegt umferðarslys
Erlendur ferðamaður kastaðist út úr bifreið sinni eftir alvarlegt bílslys austan við Vík í Mýrdal á þriðja tímanum dag.

Bíl ekið inn í snjóflóð í Ljósavatnsskarði
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur lokað veginum um Ljósavatnsskarð eftir að snjóflóð féll yfir veginn um klukkan tíu í kvöld.

Taldir hafa látið undan þrýstingi að koma vélinni sem missti olíuþrýsting í rekstur
Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að flugvirkjar og yfirmenn á viðhaldssviði Air Iceland Connect hafi látið undan þrýstingi við að koma flugvél félagsins, sem missti olíuþrýsting á hægri hreyfli skömmu eftir flugtak á Reykjavíkurflugvelli á síðasta ári, í rekstur og ekki fylgt því verklagi sem þeim bar að fylgja.

Flugslysið í Hafnarfjarðarhrauni 2015: Ofris, spuni og lítil flughæð líklegasta orsökin
Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur skilað af sér skýrslu vegna flugslyssins í Hafnarfjarðarhrauni í nóvember 2015 þar sem tveir fórust.

Sex fluttir á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur
Flutningabíll og tveir fólksbílar skullu saman og hafnaði flutningabílinn utan vegar.

Bíll lenti á umferðarskilti og valt á Suðurlandsvegi
Bílvelta átti sér stað í gær rétt á móts við Hveragerði. Tilkynning barst um atvikið á ellefta tímanum í gærkvöldi og var slökkvilið, lögregla og sjúkraflutningateymi sent á vettvang.

Sjö látnir eftir að flugvél hrapaði rétt fyrir utan borg í Kanada
Lögreglan í kanadísku borginni Kingston greinir frá því að sjö manns hafi látið lífið eftir að lítil flugvél hrapaði seinni partinn á miðvikudag að staðartíma.

Gullinbrú lokað vegna áreksturs strætó og flutningabíls
Strætisvagn og gámaflutningabíll rákust saman á Gullinbrú nú um klukkan tvö.

Banaslys rakið til þess að ökumaður hafi sofnað eða misst athyglina
Talið er að rekja megi banaslys sem varð í mars 2018 á Lyngdalsheiðinni til þess að ökumaður fólksbíls hafi sofnað undir stýri eða misst athyglina frá akstri bílsins með þeim afleiðingum að bílnum var ekið yfir á rangan vegarhelming og í veg fyrir vörubíl sem kom úr gagnstæðri átt.

Einn á slysadeild eftir árekstur
Enn var fluttur á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur á gatnamótum Egilsgötu og Snorrabrautar á sjöunda tímanum í kvöld.

Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi við Hornafjörð
Maðurinn sem lést í umferðarslysi við Hornafjörð 21. nóvember síðastliðinn hét Bergur Bjarnason. Bergur var bóndi í Viðborðsseli við Hornafjörð.

Bíl ekið inn í fiskbúð í þriðja sinn
Mildi þykir að ekki fór verr þegar bíl var ekið inn í fiskbúð í Reykjavík í dag. Þetta er í þriðja sinn sem bíl er ekið inn í búðina.

Ekið á hjólreiðamann á Akureyri
Ekið var á hjólreiðamann á Miðhúsabraut við Þórunnarstræti á Akureyri upp úr klukkan tvö í dag. Var hjólreiðamaðurinn fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar.

Maðurinn sem ekið var á í Hornafirði er látinn
Gangandi vegfarandi lést í alvarlegu slysi sem varð á þjóðvegi 1 skammt frá bænum Viðborðsseli í sveitarfélaginu Hornafirði á sjötta tímanum í gær. Bíl var ekið á gangandi vegfaranda.

Alvarlegt umferðarslys í Hornafirði
Alvarlegt umferðarslys varð á þjóðvegi 1 skammt frá bænum Viðborðsseli í Hornafirði á sjötta tímanum í dag.

„Værum ekki hér ef við hefðum ekki haft hjálma“
Sjúkraflutningamenn sem slösuðust á vettvangi rútuslyss undir Eyjafjöllum í dag segja hjálma hafa bjargað miklu. Þau kláruðu útkallið og að sinna farþegum rútunnar áður en þau leituðu sjálf til læknis.

Leita ökumanns sem stakk af eftir umferðarslys í Kópavogi
Tveggja bíla árekstur varð á Digranesvegi við Hlíðarhjalla í Kópavogi á sjötta tímanum í dag.

Rútuslysið undir Eyjafjöllum: Sjúkraflutningamenn tókust á loft í öflugri vindhviðu og slösuðust
Mildi þykir að tveir sjúkraflutningamenn, kona og karl, hafi ekki slasast alvarlega þegar vindhviða hreif þau með sér á vettvangi rútuslyss á Suðurlandsvegi undir Eyjafjöllum í morgun. Bæði verða frá vinnu vegna slyssins.