

Lögreglan á Írlandi hefur engar nýjar upplýsingar í rannsókn sinni á hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar. Það staðfestir lögreglan í tölvupósti til fréttastofu.
Írskur blaðamaður telur lögreglu ætla að halda áfram að leita að Jóni Þresti Jónssyni, þrátt fyrir að eftirgrennslan hafi enn ekki borið árangur, eftir að nafnlausar ábendingar bárust um hugsanleg afdrif hans. Þeir sem sendu vísbendingarnar verði að stíga fram svo Jón Þröstur finnist.
Leit írsku lögreglunnar að Jóni Þresti Jónssyni hefur ekki borið árangur og liggja engar frekari vísbendingar um hvarf hans fyrir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá írsku lögreglunni.
Leit heldur áfram þriðja daginn í röð að Jóni Þresti Jónssyni í Santry Demense almenningsgarðinum í Dyflinni á Írlandi. Lögreglan er byrjuð að grafa í skóglendi sem afgirt var í gær í garðinum.
Systir og bróðir Jóns Þrastar Jónssonar sem hvarf sporlaust í Dublin fyrir fimm árum síðan segjast finna fyrir viðhorfsbreytingu írsku lögreglunnar vegna rannsóknar á hvarfi hans.
Lögreglan í Dublin hefur nú girt af skóglendi í Santry Demense almenningsgarðinum í Dublin þar sem leit stendur yfir að Jóni Þresti Jónssyni. Það kemur fram á írska miðlinum Independent.
Lögreglan hefur hafið leit á ný að Jóni Þresti Jónssyni í Santry Demense almenningsgarðinum í Dublin. Leit hófst í gær en vegna stærðar garðsins er talið líklegt að það þurfi í það minnsta tvo daga í leitina.
Lögregluyfirvöld í Dublin telja nú líklegt að Jón Þröstur Jónsson hafi ætlað sér að hitta einhvern í almenningsgarðinum Santry Demense. Hann hafi látist í kjölfar þess fundar. Þetta herma heimildir írska miðilsins Dublin Live.
Írska lögreglan hefur efnt til leitaraðgerða í almenningsgarði með skóglendi og vatni í Dublin í tengslum við rannsókn sína á mannshvarfi Jóns Þrastar Jónssonar í írsku höfuðborginni fyrir fimm árum.
Systkini Jóns Þrastar Jónssonar sem hvarf í Dublin á Írlandi fyrir fimm árum eru mætt til írsku höfuðborgarinnar í þeim tilgangi að aðstoða við rannsókn lögreglu á málinu. Írska lögreglan segir tvær nýjar vísbendingar hafa borist og leitar til almennings.
Þórunn Jónsdóttir, systir Jóns Þrastar Jónssonar, segir tengiliði fjöskyldunnar hjá lögreglunni á Íslandi og á Írlandi ekki kannast við þær upplýsingar sem koma fram í frétt Sunday Independent.
Jón Þröstur Jónsson, sem hvarf sporlaust á Írlandi í fyrra, var myrtur fyrir slysni af öðrum Íslendingi vegna deilna um peninga sem töpuðust á pókermóti. Þetta er fullyrt í frétt Sunday Independent á Írlandi.
Einkaspæjarinn Liam Brady, sem fenginn var til þess fyrir nokkrum mánuðum að leita Jóns Þrastar Jónssonar, vonast til að geta talað við mann sem talið er að kunni að geta veitt mikilvægar umlýsingar um hvarf Jóns.
Í færslu á Facebook segir að dagurinn sé erfiður fyrir alla fjölskyldu hans og vini. Fyrir alla sem þekktu hann. Þau eru þó ekki hætt að leita svara varðandi hvað varð um Jón.
Þetta kemur fram í viðtali írska dagblaðsins The Irish Sun við systur Jóns Þrastar sem birtist í morgun.
Fékk vinnu í borginni og segist taka einn dag í einu.
Tæplega fimm mánuðir eru liðnir frá því að Jón Þröstur Jónsson sást síðast í Dyflinni á Írlandi.
Bróðir Jóns Þrastar Jónssonar sem hvarf á dularfullan hátt á Írlandi fyrir rúmum fjórum mánuðum segir vonina um að Jón Þröstur sé á lífi mjög veika. Engar nýjar upplýsingar hafi komið fram í málinu. Hann segir einhvers konar málalok nauðsynleg til að geta horft fram á veginn og verið til staðar fyrir sína nánustu.
Leit fjölskyldunnar að Jóni Þresti, sem hvarf sporlaust í Dyflinni í febrúar síðastliðnum, hefur enn engan árangur borið.
Frá þessu segir fjölskyldan á Facebook-síðu sem tileinkuð er leitinni að Jóni Þresti.
Rúmir tveir mánuðir eru frá því að Jón Þröstur Jónsson hvarf á dularfullan hátt á Írlandi.
Ekkert hefur spurst til Jóns Þrastar síðan hann gekk út af hóteli og út á götur Dyflinnar að morgni laugardagsins 9. febrúar. Jón Þröstur verður 42 ára á þessu ári og er fjögurra barna faðir. Davíð segist ekkert hafa sofið fyrstu vikurnar eftir að Jón Þröstur hvarf.
Pókersíðan Pokerscout.com hvetur pókerspilara til að hafa allan varann á í kjölfar hvarfs Jóns Þrastar Jónssonar í Dyflinni á Írlandi í febrúar síðastliðnum.
Lögreglu á Írlandi berast enn daglega ábendingar vegna hvarfs Jóns Þrastar Jónssonar, Íslendings sem saknað hefur verið þar í landi síðan í febrúar.
Vilja að Írar prenti út plaköt af Jóni Þresti.
Interpol lýsir eftir Jón Þresti.
Alþjóðalögreglan Interpol hefur lýst eftir Jóni Þresti Jónssyni en ekkert hefur spurst til hans síðan hann hvarf í Dyflinni á Írlandi fyrir rúmum mánuði.
Mánuður er síðan Jón Þröstur Jónsson hvarf í Dublin.
Í dag er mánuður frá hvarfi Jóns í Dublin.
Mánuður er liðinn frá hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar. Fjölskylda, sjálfboðaliðar og björgunarsveitir hafa leitað af sér allan grun á svæðinu þar sem hann sást síðast. Bróðir Jóns segir það velta á vísbendingum lögreglu hvenær leitinni verður haldið áfram.