Seðlabankinn
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 48 ›
Útgáfa Landsbankans á evrubréfum ætti að styðja við gjaldeyrismarkaðinn Með sölu Landsbankans á evrópskum sértryggðum skuldabréfum í evrum fyrir jafnvirði um 45 milljarða íslenskra króna er búið að eyða áhyggjum fjárfesta af endurfjármögnun bankanna sem ætti að styðja við gjaldeyrismarkaðinn. Kjörin á skuldabréfum Landsbankans voru á sambærilegu vaxtaálagi borið saman við útistandandi sértryggð evrubréf Íslandsbanka á eftirmarkaði. Innherji 10.3.2023 11:58
Varaseðlabankastjóri: Villandi samanburður á getu til fasteignakaupa Taka þarf tillit til launahækkana og skattabreytinga þegar borin er saman greiðslugeta heimila til fasteignakaupa á nokkra ára tímabili. Staðan er ekki jafn slæm og stundum birtist í samanburði í fjölmiðlum. Í yfir 70 prósentum tilvika hafa tekjur hækkað meira en greiðslubyrði lána. Rétt er að bera saman 250 þúsund krónur árið 2020 við 450 þúsund krónur í dag. Innherji 9.3.2023 12:34
Heildin hafi það býsna gott Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, segir að gögn Seðlabankans sýni að meirihluti lánþega á fasteignamarkaði hafi það býsna gott, þrátt fyrir núverandi efnahagsárferði. Áhyggjur stjórnmálamanna ættu að snúa að þeim sem ekki hafa keypt sér húsnæði og eru á leigumarkaði. Viðskipti innlent 9.3.2023 11:42
Bein útsending: Ásgeir og Gunnar ræða skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, verða gestir efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis á opnum fundi sem hefst klukkan 9:10. Fundarefnið er skýrsla fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands fyrir árið 2022. Innlent 9.3.2023 08:41
Seðlabankinn afnemur allar hömlur á binditíma verðtryggðra innlána Reglur sem kveða á um lágmarks binditíma á verðtryggðar innstæður í bönkunum, sem eru einkum í eigu heimilanna og nema hundruðum milljarða króna, verða afnumdar, að sögn seðlabankastjóra, en þær hafa verið í gildi frá því undir lok síðustu aldar. Breytingin gæti ýtt undir aukinn sparnað á tímum þegar verðbólgan hefur aukist hröðum skrefum og heimilin eru á ný farin að sækja í verðtryggð íbúðalán. Innherji 7.3.2023 10:55
Jóhannes Nordal er látinn Jóhannes Nordal, sem gegndi embætti seðlabankastjóra á árunum 1961 til 1993, er látinn, 98 ára að aldri. Innlent 7.3.2023 07:10
Bankasölumálinu er ekki lokið Það var haustið 2012 sem ég sem fjármálaráðherra mælti fyrir lögunum um sölu á eignarhlutum ríkisins í bönkunum. Ég lagði á það áherslu við stjórnarþingmenn í þáverandi efnahags- og viðskiptanefnd að lögin yrðu afgreidd úr nefndinni til samþykktar í þingsal. Og það gekk eftir. Sjálfstæðismenn greiddu atkvæði gegn frumvarpinu en Framsókn sat hjá. Skoðun 5.3.2023 17:01
Forðast þurfi með öllum ráðum að lenda í vonda vítahringnum Formaður Framsóknarflokksins segir að það ófremdarástand sem skapaðist í efnahagsmálum á níunda áratugnum, með víxlverkun launahækkana og verðlags, megi aldrei endurtaka sig. Allir sem eitthvað geti gert verði að leggjast á eitt til að tryggja að svo verði ekki. Innlent 5.3.2023 13:00
Verðtryggð krafa á Íslandi orðin töluvert lægri en í Bandaríkjunum Ávöxtunarkrafan á bandarísku verðtryggðu ríkisskuldabréfi til þriggja ára er orðin um 60 punktum hærri en krafan á íslensku verðtryggðu ríkisbréfi og ef horft er til fimm ára er krafan á svipuðu reiki. Eigi að takast að ná niður verðbólgu og verðbólguvæntingum þarf „bálreiðan“ Seðlabanka og að lágmarki 100 punkta vaxtahækkun á næsta fundi peningastefnunefndar, að mati skuldabréfamiðlara hjá Arion banka. Innherji 2.3.2023 11:10
Sex vilja verða varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits Sex umsóknir bárust um embætti varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits Seðlabankans en forsætisráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar 7. febrúar síðastliðinn og rann umsóknarfrestur út 27. febrúar. Viðskipti innlent 2.3.2023 10:05
Fyrirtæki og launþegar gæti hófsemi til að ná niður verðbólgu Fjármálaráðherra hefur miklar áhyggjur af hárri verðbólgu en varar við vítahring launahækkanna sem leiti aftur út í verðlag. Forsætisráðherra biðlar til fyrirtækja að gæta hófsemi í arðgreiðslum og álagningu. Húsnæðiskostnaður heimilanna hækkar gríðarlega vegna samspils stýrivaxtahækkana og verðbólgu. Innlent 28.2.2023 20:01
Fasteignamarkaðurinn nálgast frostmark Á sama tíma og lítið selst vex fjöldi þeirra fasteigna sem er til sölu ört. Núverandi fasteignaverð og vaxtastig hafa því leitt til pattstöðu á fasteignamarkaðnum. Það sem hefur komið í veg fyrir algjört frost á fasteignamarkaðnum undanfarna mánuði er möguleiki kaupenda til að skýla sér fyrir hækkandi greiðslubyrði með því að taka löng verðtryggð lán. Umræðan 28.2.2023 11:00
Fjárfestar búast við bröttum vaxtahækkunum á næstunni Óvænt verðbólgumæling leiddi til þess að ávöxtunarkrafa óverðtryggðra ríkisbréfa hækkaði umtalsvert í gær. Hækkun kröfunnar gefur til kynna dvínandi trú fjárfesta á að Seðlabankinn nái að koma böndum á verðbólguna en viðmælendur Innherja á fjármálamarkaði búast við því að Seðlabankinn bregðist við með verulegum vaxtahækkunum á næstunni. Innherji 28.2.2023 08:35
Verðbólguþrýstingurinn meiri og almennari en spár gerðu ráð fyrir Verðbólgan jókst annan mánuðinn í röð og er nú komin yfir tíu prósent, þvert á væntingar greiningaraðila. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir þetta áhyggjufulla þróun og að greiningaraðila þurfi að endurskoða forsendur fyrir sínum spám. Hættan á að verðbólgan verði þrálát og vextir hækki sé að aukast jafnt og þétt. Gert er ráð fyrir annarri stýrivaxtahækkun. Viðskipti innlent 27.2.2023 15:32
Seðlabankinn verði að „taka á honum stóra sínum“ eftir nýjar verðbólgutölur Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands getur ekki annað en „tekið á honum stóra sínum“ þegar nefndin kemur aftur saman í mars. Þetta segir aðalhagfræðingur Arion banka en að hans mati hefur Seðlabankinn nú ástæðu til að hækka vexti um allt að 100 punkta til að bregðast við nýjustu verðbólgumælingu Hagstofunnar. Innherji 27.2.2023 13:38
Evrópusambandið fýsilegur kostur í litlu hagkerfi Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, segir að innganga Íslands í Evrópusambandið gæti reynst vel. Hann gerir þó fyrirvara við mál sitt; ferlið sé flókið og nýr gjaldmiðill sé engin töfralausn. Aukið samstarf við nágrannaríkin gæti þó verið af hinu góða. Viðskipti innlent 26.2.2023 23:30
Dýrmætum tíma sóað í dellukenningar Opinn fundur efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í gærmorgun var einkar forvitnilegur. Áhorfendur fengu ýtarleg svör frá seðlabankastjóra um ákvarðanir peningastefnunefndar en upplýsingagildi fundarins fólst ekki síður í því hvernig sumar spurningar afhjúpuðu dellukenningarnar sem hafa hreiðrað um sig á Alþingi. Klinkið 22.2.2023 11:02
Erum á leið í „verstu sviðsmyndina“ með vextina hærri lengur en áður var talið Þrátt fyrir vaxtahækkun og harðari tón peningastefnunefndar fyrr í þessum mánuði þá hafa verðbólguvæntingar fjárfesta á skuldabréfamarkaði haldið áfram að versna verulega í skugga harðra átaka á vinnumarkaði sem hafa valdið enn meiri óvissu um verðbólguþróunina, að sögn sjóðstjóra og sérfræðinga á fjármálamarkaði. Markaðsvextir á stuttum ríkisskuldabréfum eru að nálgast átta prósent og hafa ekki verið hærri í meira en áratug. Innherji 22.2.2023 08:56
Þingmaður kallar Ásgeir Jónsson ofsatrúar- og hryðjuverkabankastjóra Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður Flokks fólksins hélt sannkallaða eldræðu á þinginu nú síðdegis og sparaði ekki stóru orðin. Reyndar þurfti Birgir Ármannsson forseti þingsins að gera athugasemdir við orðfærið og taldi þingmanninn helst til gífuryrtan. Innlent 21.2.2023 14:24
„Ef við værum með evruna væri verðbólga miklu hærri“ Ef Ísland hefði tekið upp evru væri verðbólga hér á landi „miklu hærri“ en hún er nú og þrátt fyrir lækkandi orkuverð í Evrópu eru verðbólguhorfurnar þar „ekki endilega" betri en á Íslandi, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Innherji 21.2.2023 13:29
Í varnarham á opnum fundi Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri var í varnarham í morgun á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um áhrif verðbólgu hér á landi, þar sem þingmenn spurðu hann spjörunum úr um aðgerðir Seðlabankans síðustu misseri. Viðskipti innlent 21.2.2023 11:39
Bein útsending: Áhrif verðbólgu á hagkerfið og heimilin rædd í þingnefnd Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Rannveig Sigurðardóttir varaseðlabankastjóri peningastefnu mæta á opinn fund efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í dag til að ræða áhrif verðbólgu á hagkerfið og heimilin í landinu. Innlent 21.2.2023 08:41
Lækkandi lausafjárhlutföll knúðu fram aukna samkeppni um innlán Samkeppni viðskiptabanka um innlán hefur aukist í takt við lækkandi lausafjárhlutföll bankanna og hefur þessi aukna samkeppni leitt til þess að vaxtamunur hefur minnkað nokkuð. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í verðmati greiningarfyrirtækisins Jakobsson Capital á Arion banka. Innherji 20.2.2023 11:58
Greiðslumiðlun „óhagkvæmari og ótryggari“ en á hinum Norðurlöndunum Smágreiðslumiðlun á Íslandi einkennist af meiri greiðslukortanotkun en þekkist á hinum Norðurlöndunum þar sem jafnframt treyst er á erlenda innviði alþjóðlegra kortasamsteypa. Í því felst áhætta, til dæmis ef netsamband við útlönd rofnar eða eigendur sömu kerfa loka á viðskipti við Ísland, að sögn Seðlabankans. Til að uppfylla kröfur um þjóðaröryggi telur bankinn vænlegast að innleiða hugbúnaðarlausn sem byggist á greiðslum milli bankareikninga sem væri grunninnviður greiðslumiðlunar. Innherji 19.2.2023 12:38
80 milljarðar króna: Eftirspurn ræður magni seðla og myntar í umferð Það er eftirspurn frá viðskiptabönkunum og sparisjóðum sem ræður því hversu mikið magn seðla og smápeninga er í umferð hverju sinni og sú eftirspurn ræðst af eftirspurn frá viðskiptavinum. Innlent 19.2.2023 07:15
„Við svona rússíbanahagkerfi verður ekki unað“ Formaður Neytendasamtakanna segir vaxtahækkanir viðskiptabankanna ekki koma á óvart, enda búi Íslendingar við fákeppni í neytendamálum á ýmsum sviðum. Hann kallar eftir aukinni samkeppni og segir sveiflur í hagkerfinu óviðunandi. Neytendur 18.2.2023 15:01
Landsbankinn hækkar líka vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka bæði út- og innlánavexti eftir 0,5 prósentustiga stýrivaktahækkun Seðlabankans. Hinir stóru viðskiptabankarnir tveir tilkynntu einnig vaxtahækkun í dag. Viðskipti innlent 17.2.2023 18:49
Sekt Fossa stendur vegna bónusa í búningi arðgreiðslna Fjármálafyrirtækið Fossar markaðir braut lög þegar fyrirtækið greiddi út of háa kaupauka til starfsmanna sinna og kallaði þá ranglega arðgreiðslur. Þetta er niðurstaða Fjármálaeftirlitsins, héraðsdóms og nú Landsréttar sem kvað upp dóm sinn í dag. Viðskipti innlent 17.2.2023 14:07
Hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkana Seðlabankans Íslandsbanki hefur tekið af skarið og hækkað vexti í samræmi við stýrivaxtahækkun Seðlabankans, sem var kynnt 8. febrúar síðastliðinn. Yfirdráttarvextir, breytilegir vextir óverðryggða húsnæðislána, breytilegir óverðtryggðir kjörvextir og fleiri tegundir vaxta hækka um 0,5 prósentustig í byrjun næstu viku. Neytendur 17.2.2023 11:23
Undirskrift Ásgeirs komin á nýprentaða tíu þúsund króna seðla Fyrstu peningaseðlarnir með undirskrift Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra eru komnir í umferð. Um er að ræða nýjan skammt af tíu þúsund króna seðlinum, sem var hannaðir af Kristínu Þorkelsdóttur ásamt Stephen A. Fairbairn. Viðskipti innlent 16.2.2023 10:02