Seðlabankinn
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 48 ›
Minni hömlur á afleiður og aukin markaðssetning myndi auka áhuga erlendis Verði dregið úr takmörkunum á afleiðuviðskiptum með krónu, samhliða markvissri markaðssetningu og aukinni upplýsingagjöf til fjárfesta, má ætla að áhugi erlendra fjárfesta á innlendum skuldabréfamarkaði fari vaxandi, segir fjármálaráðuneytið. Innherji 13.6.2024 14:06
Kyrrstöðuverðbólga Að kæla hagkerfið, að ná niður verðbólgu og vöxtum hefur verið verkefni Seðlabankans undanfarin ár. Leiðin til þess hefur verið að hækka stýrivexti til að þrengja að ráðstöfunarfé þeirra Íslendinga sem skulda. Stærsti hluti þessa hóps er ungt fólk og millistéttin. Ungt fólk sem nýkomið er út á fasteignamarkaðinn og skuldar stóran hluta í fasteign sinni. Skoðun 10.6.2024 11:30
„Nokkuð einhæf“ fjármögnun eykur endurfjármögnunaráhættu bankanna Markaðsfjármögnun stóru viðskiptabankanna innanlands er enn „nokkuð einhæf“ og eigi að takast að minnka endurfjármögnunaráhættu þeirra er mikilvægt að þeim takist að auka útgáfur ótryggðra skuldabréfa í krónum, að sögn Seðlabankans. Bankarnir hafa hins vegar nýtt sér hagfelldari aðstæður á erlendum mörkuðum á þessu ári til að sækja sér fjármagn á betri kjörum en áður sem ætti að hafa jákvæð áhrif á útlánavexti. Innherji 6.6.2024 11:03
Varar við þenslu á byggingamarkaði Þrátt fyrir að hægt hafi á efnahagslífinu er verðbólga ekki að láta undan að sögn Seðlabankastjóra. Og það þrátt fyrir að stýrivaxtahækkanir bankans hafi sérstaklega verið beint að henni. Hann segir byggingariðnað í miklum vexti sem geti reynst varasamt á meðan hagkerfið kólnar. Viðskipti innlent 5.6.2024 14:01
Þétt vaxtaaðhald hefur ekki enn ógnað fjármálastöðugleika Hátt raunvaxtastig hefur „enn sem komið er“ ekki ógnað fjármálastöðugleika en það má sumpart rekja til aðgerða sem gripið var til þegar allt lék í lyndi. Jafnvel þótt vanskil hafi ekki aukist væri það barnaskapur að halda að það muni ekki gerast, að sögn seðlabankastjóra, núna þegar tekið er að hægja nokkuð á hjólum efnahagslífsins. Innherji 5.6.2024 11:57
Bein útsending: Ásgeir og Arnór sitja fyrir svörum Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Arnór Sighvatsson, settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika munu sitja fyrir svörum og kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar á fréttamannafundi sem hefst núna klukkan 9:30. Viðskipti innlent 5.6.2024 08:59
Þrálát verðbólga mun skapa áskoranir fyrir fjármálakerfið Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum þar sem eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi þeirra að fjármögnun gott. Lítið ber enn á vanskilum þrátt fyrir hátt vaxtastig en vert er þó að hafa í huga að þrálát verðbólga samhliða hægari vexti efnahagsumsvifa mun skapa áskoranir fyrir fjármálakerfið á næstu misserum. Viðskipti innlent 5.6.2024 08:34
Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Íslandsbanki hefur tekið sáttaboði fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna ófullnægjandi varna gegn peningaþvætti. Bankinn viðurkennir að brotin séu mörg og alvarleg. Viðskipti innlent 1.6.2024 15:11
Hagtölur sýna „Gullbrár“-mælingu sem er gott í mjúkri lendingu hagkerfisins Hagtölur fyrir fyrsta ársfjórðung, þar sem landsframleiðsla dróst saman um fjögur prósent að raunvirði milli ára, voru „hálfgert Rorschach-próf“ að því leytinu til að það er hægt að lesa bæði jákvæð og neikvæð teikn úr þeim, segir aðalhagfræðingur Kviku banka. Fá merki eru í nýjum þjóðhagsreikningum að hagkerfið sé að fara fram af hengiflugi og mælingin núna kemur á góðum tíma þegar Seðlabankinn er að reyna að stýra efnahagslífinu í mjúka lendingu. Innherji 1.6.2024 08:38
„Sláandi“ verðbólgu má líklega tengja við kjarasamninga Verðbólgan mældist langt yfir væntingum greinenda í maí en skuldabréfamarkaðurinn tók tíðindunum af stóískri ró. Sjóðstjóri segir að verðbólgan hafi verið á nokkuð breiðum grunni sem líklega megi rekja til kostnaðarhækkana í tengslum við kjarasamninga. Ekki er ólíklegt að verðbólguspár verði í kjölfarið hækkaðar. Innherji 31.5.2024 07:00
Innlán heimila vaxa sem sýnir að „peningastefnan er að virka“ Innlán heimila halda áfram að vaxa á sama tíma og hlutabréfamarkaður hérlendis hefur verið þungur. Einkaneyslan hóf að gefa eftir um mitt síðasta ár og sparnaður heimilanna jókst á ný enda hafa laun hækkað og innlánsvextir hækkað verulega undanfarin tvö ár. Er þetta til marks um að peningalegt aðhald Seðlabankans hafi ekki einungis áhrif á neysluhneigð almennings heldur ýtir einnig undir sparnað, segja hagfræðingar. Vaxtatekjur heimila eru nú meiri en vaxtagjöld. Innherji 28.5.2024 15:49
Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Arnór Sighvatsson, settur varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika, vildi einn lækka stýrivexti á síðasta fundi peningastefnunefndar. Forveri hans í starfi hafði einn viljað lækka vexti á tveimur fundum þar á undan. Viðskipti innlent 23.5.2024 10:42
Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Ráðstefnan Reykjavík Economic Conference um hagstjórn í litlum og opnum hagkerfum fer fram í dag og á morgun. Viðskipti innlent 23.5.2024 08:26
Umfangsmikil hlutafjárútboð draga „töluvert máttinn“ úr markaðnum Hlutabréfamarkaðurinn hérlendis hefur verið þungur á meðan flestir markaðir sem horft er til hafa hækkað töluvert. Sjóðstjórar og aðrir markaðsaðilar segja að hlutabréfaverð hérlendis sé almennt nokkuð hagstætt en mikið fjármagn hefur leitað í frumútboð sem hefur dregið kraft úr markaðnum. Viðmælendur Innherja eiga ekki von á því að markaðurinn taki við sér fyrr en verðbólga hjaðnar og stýrivextir fara að lækka. Innherji 23.5.2024 07:41
AGS: Gæti þurft að auka aðhald í ríkifjármálum en raunvextir hæfilegir Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) segir að aðhald opinberra fjármála á árunum 2025 til 2029 gæti orðið að aukast til að ná markmiðum um verðbólgu. Núverandi raunvaxtastig er talið hæfilegt en eftir því sem verðbólga og verðbólguvæntingar hjaðna skapast svigrúm til lækkunar meginvaxta. Þá ættu stjórnvöld að endurskoða takmarkanir á afleiðuviðskiptum banka með gjaldeyri með það fyrir augum að dýpka þann markað. Innherji 22.5.2024 12:26
AGS leggur til skattahækkanir Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn leggur til að stjórnvöld hækki tiltekna skatta og dragi úr aðkomu sinni að kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Ákvarðanir um útgjöld eigi að vera í höndum ríkisstjórnarinnar og Alþingis. Viðskipti innlent 22.5.2024 11:53
Seðlabankinn og Kauphöllin stigu inn í viðræður Marels og JBT Kauphöllin og Fjármálaeftirlit Seðlabankans sagði stjórnendum Marels hinn 24. nóvember að það yrði að upplýsa um hver hefði lagt fram óskuldbindandi viljayfirlýsingu um tilboð í félagið. Ekki væri nóg að greina einungis frá tilvist þess. Í kjölfarið var tilkynnt til Kauphallarinnar að John Bean Technologies (JBT) væri tilboðsgjafinn en fyrirtækin tvö áttu í óformlegum viðræðum um samruna á árunum 2017 og 2018. Innherji 21.5.2024 18:16
Greip til aðgerða og framseldi vald til varaseðlabankastjóra Seðlabankastjóri sagðist hafa gripið til aðgerða í samræmi við orð hans fyrir um ári og framselt vald til varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits. Á fundi með þingnefnd nefndi hann að það hafi tekið þrjú til fjögur að ná fram kostum sameiningar Seðlabankans við Fjármálaeftirlitið. Innherji 21.5.2024 12:41
Vaxtalækkanir ekki verðlagðar inn hjá Heimum Verðlagning fasteignafélaga virðist í engu samræmi við væntingar stjórnmálamanna, verkalýðshreyfingar, aðila vinnumarkaðarins, greiningadeilda og almennings um lækkun vaxta. Það er því aðeins tímaspursmál hvenær fjárfestar vakna til lífsins og hefja kaup á hlutabréfum fasteignafélaga af fullum þunga. Umræðan 21.5.2024 07:19
Krónan stöðug þrátt fyrir áföll og fátt sem kallar á veikingu á næstunni Krónan hefur sýnt styrk sinn með því að haldast afar stöðug í kringum gildið 150 á móti evrunni samfellt um margra mánaða skeið þrátt fyrir að ýmislegt hafi unnið á móti henni á liðnum vetri, að sögn gjaldeyrismiðlara. Væntingar eru um gengisstyrkingu horft inn í árið, sem endurspeglast að hluta í meiri framvirki gjaldeyrissölu, samhliða meðal annars mögulegu fjármagnsinnflæði við yfirtökuna á Marel en sumir vara við viðkvæmri stöðu eftir miklar launahækkanir sem hefur þrýst raungenginu á nánast sömu slóðir og fyrir heimsfaraldurinn. Innherji 16.5.2024 10:07
Trúverðugleiki skiptir máli Það er því keppikefli heimila og fyrirtækja að staðinn sé vörður um trúverðugleika peningastefnunnar. Slíkur varnarleikur — sem er nægilega erfiður fyrir — verður aftur á móti þrautinni þyngri samhliða sífelldum óábyrgum ummælum hinna ýmsu kjörnu fulltrúa sem nú sitja á Alþingi, segir hagfræðingur. Umræðan 11.5.2024 15:00
Halda áfram kaupum á íslenskum ríkisbréfum þótt það hægist á vextinum Fjárfesting erlendra sjóða í íslensk ríkisskuldabréf hélt áfram að aukast í liðnum mánuði þótt nokkuð hafi hægt á vextinum og hefur innflæðið ekki verið minna að umfangi í meira en hálft ár. Stöðugt fjármagnsinnflæði vegna kaupa erlendra skuldabréfafjárfesta síðustu mánuði hefur átt sinn þátt í því að halda gengi krónunnar stöðugu um nokkurt skeið. Innherji 11.5.2024 13:57
Dagur til umhugsunar Níundi maí er merkur dagur sem haldinn er hátíðlegur um alla Evrópu. Níundi maí er Evrópudagurinn en þann dag er á ári hverju minnt á gildi evrópskrar samvinnu og þýðingu fyrir framfarir, frið og mannréttindi í álfunni. Skoðun 9.5.2024 07:31
Að leysa vandann með quick fix Nú liggur það fyrir að Seðlabankinn lækkar ekki vexti í þetta sinn þrátt fyrir að verðbólga sé komin í 6%. Okkur er því áfram boðið upp á 9,25% stýrivexti. Þetta þýðir að fólk mun halda áfram að greiða 11-12% vexti af lánum sínum, 13% af bílalánum og 17% af yfirdráttarlánum. Skoðun 9.5.2024 07:01
Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Seðlabankastjóri segir að gæta verði hófs í vexti ferðaþjónustunnar og í atvinnulífinu almennt. Seðlabankinn hafi fengið það hlutverk að knýja fram hófsemi með vaxtahækkunum. Miklar verðbólguvæntingar og áframhaldandi þensla væru helstu ástæður þess að vextir væru ekki lækkaðir. Viðskipti innlent 8.5.2024 19:31
Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) telur ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum vera óskiljanlega. Ákvörðunin gangi þvert á fyrri rökstuðning nefndarinnar og það sé mikið áhyggjuefni fyrir hagkerfið að þeir standi óbreyttir. Innlent 8.5.2024 15:57
Aðgerðir til að liðka fyrir kjarasamningum hafa takmörkuð áhrif á verðbólgu Áhrif aðgerða ríkisstjórnarinnar til að liðka fyrir kjarasamningum fyrir stóran hluta vinnumarkaðarins eru takmörkuð á hagvöxt og verðbólgu, sagði aðalhagfræðingur Seðlabankans á fundi peningastefnunefndar í morgun. Seðlabankastjóri nefndi að hætta væri á að verðbólga verði treg til að fara niður í fjögur til fimm prósent. Innherji 8.5.2024 14:23
Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Miklar verðbólguvæntingar og áframhaldandi spenna í hagkerfinu eru aðalástæður þess að Seðlabankinn lækkar ekki meginvexti sína. Seðlabankastjóri segir algerlega nauðsynlegt að ná verðbólgu niður til að uppfylla forsendur kjarasamninga. Viðskipti innlent 8.5.2024 12:11
„Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir ákvörðun Seðlabankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum vera vonbrigði en ekki koma á óvart. Hann telur að ef ekkert breytist þurfi fólk að rísa upp eins og var gert í búsáhaldabyltingunni. Innlent 8.5.2024 11:22
Hægir enn á hagvexti og auknar líkur á að núverandi raunvaxtastig sé „hæfilegt“ Horfur eru á að hagvöxtur verði umtalsvert minni í ár en Seðlabankinn gerði áður ráð fyrir samhliða því að hægt hefur nokkuð á vexti innlendrar eftirspurnar. Peningastefnunefnd hefur ákveðið halda vöxtum bankans óbreyttum fimmta fundinn í röð, sem er í samræmi við spár allra greinenda og markaðsaðila, og telur núna meiri líkur en áður að aðhaldsstigið dugi til að ná verðbólgunni niður í markmið. Innherji 8.5.2024 09:28