Viðskipti
173 174 175 176 177 178 179 180 181 … 223 ›
Kaupa finnskt matvælafyrirtæki Íslenska matvælafyrirtækið Fram Foods hefur keypt finnska matvælafyrirtækið Boyfood sem sérhæfir sig í fullvinnslu og sölu á síld. Það er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í Finnlandi en Finnar neyta mikillar síldar. Viðskipti innlent 17.10.2005 23:43
Dregur úr hækkunum á íbúðaverði Dregið hefur úr verðhækkunum á íbúðamarkaði að undanförnu og spáir Greiningardeild Íslandsbanka því nú að íbúðaverð staðni á næsta ári. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um rúmlega hálft prósent í síðasta mánuði og er það í fyrsta skipti í eitt ár sem íbúðaverð lækkar milli mánaða. Viðskipti innlent 17.10.2005 23:43
Ný stjórn Símans kjörin Lýður Guðmundsson var kjörinn stjórnarformaður Símans á fyrsta hluthafafundi hans eftir einkavæðingu sem haldinn var á Nordica-hóteli í dag. Með Lýði í stjórn verða Rannveig Rist, sem verður varaformaður, Panikos Katsouris, Gísli Hjálmtýsson og Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson meðstjórnendur. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:43
Litlar líkur á hjöðnun verðbólgu Litlar líkur eru á hjöðnun verðbólgu í október samkvæmt því greiningadeild Landsbankans segir í <em>Vegvísi</em> sínum. Þar er gert ráð fyrir 0,7 prósenta hækkun á vísitölu neysluverðs í næsta mánuði. Gangi spáin eftir mun tólf mánaða verðbólga haldast óbreytt í 4,8 prósent og verður líkt og í septembermánuði 2,3 prósentustigum yfir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:43
Gengisvísitala nærri lágmarki Krónan styrktist um 0,45 prósent í gær og er gengisvísitalan nú við sögulegt lágmark, en eftir því sem vísitalan er lægri er krónan sterkari. Dollarinn er nú kominn niður undir 62 krónur, evran í tæpar 76 og pundið í rúmar 112 krónur. Einu sinni áður hefur krónan verði álíka sterk, en það var í í mars á þessu ári. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Íslenskir fjárfestar kaupa Merlin Hópur íslenskra fjárfesta undir forystu íslenska fjárfestingarfélagsins Árdegis tilkynnti í dag um kaup sín á raftækjaverslanakeðjunni Merlin af danska fyrirtækinu FDB. Fjárfestahópurinn samanstendur af Árdegi, Milestone og Baugi Group. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Markaðurinn réttir við sér Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hefur hækkað um 1,5 prósent það sem af er degi og því er ljóst að lækkunarhrinu síðustu daga er lokið. Mesta hækkunin hefur orðið á bréfum í Landsbankanum og Straumi, eða um 3,5 prósent. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Farþegum Icelandair fjölgar áfram Farþegum Icelandair í ágúst fjölgaði um 19,1 prósent í ágúst frá sama tímabili í fyrra og voru tæplega 203 þúsund. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FL GROUP. Frá áramótum hefur farþegum Icelandair fjölgað um 14,5 prósent og eru þeir tæplega 1,1 milljón. Sætanýting hefur batnað um 2,4 prósentustig og er á fyrstu átta mánuðum ársins 78,1 prósent. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
25% lækkun á krónunni Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að verðbólgan fari upp undir átta prósent árið 2007 og að gengi krónunnar muni lækka um allt að 25 prósent á næstu tveimur árum. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Bréf Landsbankans lækka enn Gengi bréfa í Landsbankanum lækkaði enn í morgun svo um munar, eða um rösklega þrjú prósent, eftir talsverða lækkun í gær. Gengi bréfa í flestum félögum í úrvalsvísitölunni lækkaði eitthvað, fjórða daginn í röð, en næst mest í Straumi - Fjárfestingabanka, um 2,2 prósent. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Skuldir heimilanna vaxið um 19% Skuldir íslenskra heimila hafa vaxið um 157 milljarða á einu ári, eða um heil nítján prósent. Þá eru yfirdráttarlán ívið hærri en þau voru áður en bankarnir fóru að bjóða nýju húsnæðislánin í ágúst á síðasta ári. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Hafa samstarfið við SAS í huga Forstjóri SAS ætlar að slíta öllu samstarfi við Icelandair um flug á Norðurlöndunum ef FL Group kaupir Sterling-flugfélagið. Þetta kom fram í danska blaðinu <em>Börsen</em> í morgun. Talsmaður Flugleiða segir að samstarfið við SAS hafi verið gott og menn ætli að hafa það í huga við samningaborðið. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Spáir að ráðstöfunartekjur aukist Fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir þriggja til fjögurra prósenta aukningu á ráðstöfunartekjum heimilanna á þessu ári, þrátt fyrir aukna verðbólgu og hátt húsnæðisverð. Í þjóðhagsreikningum eru ráðstöfunartekjur reiknaðar með því að draga frá tekjum skatta og eignaútgjöld. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Gæti orðið keppinautur Flugleiða Viðræður hefjast í dag um að FL Group, móðurfélag Flugleiða, kaupi dönsku flugfélögin Sterling og Maersk af eignarhaldsfélaginu Fons eins og greint var frá á Vísi í morgun. Sterling gæti orðið skæður keppinautur Flugleiða. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
20 þúsund kr. meira í afborganir Fólk sem keypti sér þriggja herbergja íbúð í byrjun sumars þarf að borga rúmum tuttugu þúsund krónum meira í afborganir af henni en fólk sem keypti jafn stóra íbúð undir lok síðasta árs. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Nýr fjármálastjóri Samherja Sigursteinn Ingvarsson var í dag ráðinn fjármálastjóri Samherja hf. og tekur við starfi fráfarandi fjármálastjóra, Guðmundar Baldvins Guðmundssonar. Undanfarin þrjú ár hefur Sigursteinn starfað að ýmsum sérverkefnum á vegum félagsins, s.s. við innleiðingu á nýju upplýsingakerfi og fjármál söludeildar. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Verðmætin falin í nýtingunni „Okkar starf felst aðallega í því að finna betri nýtingu á landi eða húsnæði sem þegar er til staðar – gera það verðmætara. Þá kaupum við eignina og þróum áfram hugmyndir um breytta nýtingu,“ segir Oddur Víðisson, framkvæmdastjóri Þyrpingar. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
28 milljarða lækkun í dag Markaðsvirði fyrirtækjanna fimmtán í úrvalsvísitölu Kauphallarinnar lækkaði um tuttugu og átta milljarða króna í dag. Þar af lækkaði verðmæti Landsbankans eins og sér um tæpa átta milljarða. Mest er þó lækkun hlutabréfa í Icelandic, sem áður hét Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, en verð þeirra bréfa lækkaði um tæp sjö prósent. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Fjallað um þreifingar FL Group Dönsku vefmiðlarnir sýna þreifingum FL Group, móðurfélagi Icelandair, varðandi hugsanleg kaup á danska flugfélaginu Sterling af öðru íslensku félagi, mikinn áhuga. Á heimasíðu danska ríkisútvarpsins er vitnað í upplýsingafulltrúa Sterling í Danmörku sem staðfestir að umræður á milli FL Group og forsvarsmanna Sterling hafi átt sér stað Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Landsbankinn lækkaði um 6% Talsverð niðursveifla varð á verði fyrirtækja í Kauphöllinni í morgun og lækkaði Landsbankinn tímabundið mest, eða um rösklega sex prósent. Að sögn Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Kauphallarinnar, eru þessar sveiflur eðlilegar í ljósi mikilla hækkana upp á síðkastið og megi sjálfsagt að hluta rekja til þess að einhverjir séu að innleysa hagnað. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Rúmfatalagerinn opnar verslanir „Það stendur til að opna tíu Rúmfatalagersverslanir í viðbót í Kanada innan árs,“ segir Nils Stórá yfirmaður Rúmfatalagersins í Eystrasaltslöndunum Lettlandi, Litháen og Eistlandi. Einnig standi til að opna fjórar verslanir til viðbótar við þær fjórtán sem fyrir eru í Eystrasaltslöndunum. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Milljarðar í vanskilum Tæpir tuttugu milljarðar króna eru í vanskilum hjá innlánsstofnunum. Það er samt bara rúmt eitt prósent af heildarútlánum fjármálafyrirtækja á Íslandi og eru íbúðarlán þar meðtalin samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Einkaneysla vex hratt Einkaneysla jókst á öðrum ársfjórðungi um fjórtán prósent frá sama tímabili í fyrra samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Aukning einkaneyslu milli ára hefur ekki verið jafn mikil frá því að Hagstofan hóf að gera ársfjórðungsreikninga árið 1997. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
33 milljarða lækkun frá í morgun Markaðsvirði fyrirtækjanna fimmtán í úrvalsvísitölu Kauphallarinnar er þrjátíu og þremur milljörðum króna lægra nú en þegar markaðir opnuðu í morgun. Þar af hefur Landsbankinn einn lækkað um nær tíu milljarða. Úrvalsvísitalan stóð í tæpum 4.500 stigum laust fyrir þrjú og var þá 2,5% lægri en í morgun. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Vísitalan lækkaði enn einn daginn Gengi hlutabréfa í Kauphöllinni snarlækkaði í dag. Úrvalsvísitalan hefur lækkað þrjá daga í röð. Sérfræðingur í greiningardeild Íslandsbanka telur engar ástæður til að hafa áhyggjur af þróuninni. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Ráðinn til að stýra FL Investment Albert Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri FL Investment, dótturfyrirtækis FL GROUP. Albert hefur störf 1. október næstkomandi og hann mun hafa umsjón með rekstri FL Investment, en megintilgangur félagsins er að hámarka virði hluthafa með fjárfestingum í fyrirtækjum og eignum jafnt á Íslandi sem erlendis. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
FL Group og Fons ræða sameiningu Stjórnir FL GROUP hf. og eignarhaldsfélagsins Fons, sem á flugfélögin Sterling og Maersk Air hafa ákveðið að hefja viðræður um fjárfestingu og/eða kaup FL Group á Sterling og Maersk. Tilkynning þessa efnis var send Kauphöllinni í kvöld. Í tilkynningu frá FL Group segir að viðræður hafi ekki enn hafist og því sé óvíst á þessu stigi hver niðurstaðan verður. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Engar séraðgerðir vegna verðbólgu Ríkisstjórnin grípur ekki til sérstakra aðgerða þótt verðbólga sé meiri en hún hefur verið undanfarna 40 mánuði og hafi farið fram úr þolmörkum Seðlabankans. Innlent 14.10.2005 06:42
Verðbólga þurrkar út launahækkun Verðbólgan hefur þurrkað út þriggja prósenta launahækkun sem almennir kjarasamningar tryggðu launþegum um síðustu áramót. Innlent 14.10.2005 06:42
FL Group vill kaupa Sterling FL Group hefur áhuga á að kaupa Sterling-flugfélagið af eignarhaldsfélaginu Fons, sem er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar. Ákveðið hefur verið að hefja viðræður. "Þessar þreifingar eru á algjöru frumstigi og óvíst til hvers þær leiða," sagði Hannes Smárason, stjórnarformaður Flugleiða, í gærkvöldi. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42