Almannavarnir
21 22 23 24 25 26 27 28 29 … 38 ›
Sannir vinir í skriðuhættu á Seyðisfirði Vinir í raun. Það má svo sannarlega segja um þá Marek Bäumer og Brimir Christophsson Büchel á Seyðisfirði sem voru í miðri atburðarásinni þegar stóra skriðan féll síðdegis á föstudag. Innlent 22.12.2020 16:13
Ljóst að sumir Seyðfirðingar fá ekki að snúa heim fyrir jól Þrátt fyrir að aðstæður á Seyðisfirði hafi farið hratt batnandi eftir að rigningu slotaði og kólna tók í veðri er gert ráð fyrir að hlýni að nýju, í skamman tíma þó, á aðfanga-og jóladag. Þá mun hlána en ekki er útlit fyrir mikla úrkomu á svæðinu. Innlent 22.12.2020 13:34
Hættustig enn í gildi á Seyðisfirði Hættustig almannavarna er áfram í gildi á Seyðisfirði og rýmingar að hluta til í gildi í bænum vegna skriðuhættu. Þá er óvissustig almannavarna í gildi á Austurlandi vegna skriðuhættu. Innlent 21.12.2020 20:57
Átta sig fyrst núna á hve hræðilegt þetta var - og er Seyðfirðingarnir Bryndís Steinþórsdóttir og Stefán Ómar Magnússon sneru aftur heim til sín í dag eftir að bærinn var rýmdur á föstudag. Þau segja það hafa verið erfitt að koma aftur og sjá það sem blasir við. Innlent 21.12.2020 16:17
Bein útsending: Íbúafundur fyrir Seyðfirðinga Sveitafélagið Múlaþing boðar til íbúafundar fyrir Seyðfirðinga klukkan 16 í dag. Tilgangurinn með fundinum er að upplýsa íbúa Seyðisfjarðar um stöðu mála og gefa þeim kost á að koma á framfæri fyrirspurnum sem veitt verða svör við á fundinum sé þess kostur. Innlent 21.12.2020 15:35
Svona var 148. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11:03 í dag. Alma D. Möller landlæknir fer yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi ásamt Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er sem kunnugt er í sóttkví. Innlent 21.12.2020 10:17
Sérfræðingar meta stöðuna í birtingu Rýmingar eru enn í gildi á Seyðisfirði vegna hættu á aurskriðum og 276 íbúar bíða þess að snúa heim. Allt virðist hafa verið með kyrrum kjörum á svæðinu í nótt, að sögn ofanflóðasérfræðings, og úrkoma hefur verið lítil síðasta sólarhring. Staðan verður metin þegar líða tekur á daginn. Innlent 21.12.2020 09:06
Þjónustumiðstöð almannavarna verður opnuð á Seyðisfirði Almannavarnir munu fljótlega opna þjónustumiðstöð fyrir íbúa á Seyðisfirði. Verkefni slíkrar miðstöðvar felst meðal annars í upplýsingagjöf til almennings og þjónustu við þá aðila sem hafa orðið fyrir tjóni og þá sem hættan hefur haft önnur bein áhrif á. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Innlent 20.12.2020 20:52
Seyðfirðingar sneru heim í dag: „Mann langar bara að vera heima hjá sér“ Íbúar utan hættusvæða á Seyðisfirði hafa fengið að snúa aftur til síns heima, tveimur sólarhringum eftir að bærinn var rýmdur. Þó er áfram hætta á frekari skriðuföllum. Íbúar segjast hlakka til að komast heim en kvíða því að sjá eyðilegginguna í bænum. Innlent 20.12.2020 19:20
Rýmingu aflétt á Eskifirði en óvissustig áfram í gildi Rýmingu á Eskifirði, sem sett var á vegna skriðuhættu, hefur verið aflétt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Eskifirði. Óvissustig almannavarna vegna skriðuhættu er þó enn í gildi á Austurlandi. Innlent 20.12.2020 15:23
Rýmingu aflétt að hluta á Seyðisfirði og bærinn kominn á hættustig Ofanflóðasérfræðingar Veðurstofu Íslands og samstarfsaðilar hafa metið hættu á frekari skriðuföllum á Seyðisfirði. Þeir íbúar sem búa utan áhættusvæða mega snúa aftur til Seyðisfjarðar í dag. Viðbúnaðarstig á Seyðisfirði hefur verið fært af neyðarstigi niður á hættustig. Innlent 20.12.2020 14:36
Áfram neyðarstig á Seyðisfirði Neyðarstig verður áfram í gildi á Seyðisfirði og hættustig á Eskifirði. Þetta var ákveðið í dag eftir fund almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra og lögreglu með ofanflóðasérfræðingum Veðurstofu Íslands, aðgerðarstjórn, vettvangsstjórn og fulltrúum mikilvægra innviða og stofnana á Austurlandi nú fyrir hádegi. Innlent 20.12.2020 12:41
Skoða hvort hægt sé að aflétta hluta rýmingar Vonast er til að hægt verði að aflétta hluta rýmingar á Seyðisfirði í dag. Aðgerðastjórn og Veðurstofan fundaði í morgun klukkan tíu í samhæfingarstöð almannavarna varðandi næstu skref en endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin. Innlent 20.12.2020 11:55
Vatnsþrýstingur fer minnkandi í jarðvegi Vatnsþrýstingur hefur minnkað í jarðvegi á Seyðisfirði og útlit er fyrir að hreinsunarstarf geti hafist. Aðgerðarstjórn og samhæfingarstöðin hafa skipulagt björgunarstarf og gera nú áætlanir um hreinsun. Innlent 19.12.2020 20:44
Segir hamfarirnar skapa hugrenningartengsl við jólaguðspjallið Sigríður Rún Tryggvadóttir, prestur á Seyðisfirði, segir það erfitt fyrir Seyðfirðinga að hugsa til þess að aðeins fimm dagar séu til jóla. Náttúruhamfarirnar á Seyðisfirði hafi skollið á á tíma sem reynist mörgum erfiður. Innlent 19.12.2020 20:00
Landsmenn allir veita Seyðfirðingum stuðning: „Þetta er stórkostlegt og við erum mjög þakklát“ Íbúar á Seyðisfirði hafa ekki fengið að snúa aftur til síns heima í dag. Neyðarstig er enn í gildi og óvíst hvenær hægt verður að hleypa fólki heim til að sækja eigur sínar. Varðstjóri á Seyðisfirði segist hlakka til að árið klárist. Innlent 19.12.2020 19:03
„Ég verð mjög feginn þegar 2020 er búið“ Lítil aurskriða féll á Seyðisfirði í morgun en viðbragðsaðilar hafa í dag unnið að gagnasöfnun og hættumati á svæðinu. Viðbragðsaðilar hafa meðal annars myndað Seyðisfjörð úr lofti með drónum, til þess að meta stöðuna. Innlent 19.12.2020 18:08
Myndir frá Seyðisfirði sýna gríðarlega eyðileggingu Eyðileggingin í kjölfar aurskriðanna sem fallið hafa á Seyðisfjörð var áþreifanleg þegar fjölmiðlafólki var hleypt að bænum í dag. Innlent 19.12.2020 16:40
Rýming á Seyðisfirði og Eskifirði áfram í gildi og staðan endurmetin á morgun Rýming verður í gildi á Eskifirði að minnsta kosti til hádegis á morgun, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Austurlandi. Þá verður staðan á Seyðisfirði endurmetin í fyrramálið Innlent 19.12.2020 15:00
Telja jarðlög enn óstöðug vegna skriðu sem féll í morgun Óheft umferð um Seyðisfjörð verður óheimil í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi. Þá verða rýmingar á Seyðisfirði og Eskifirði áfram í gildi. Skriða sem féll í morgun gefur vísbendingar um óstöðugleika í jarðlögum. Innlent 19.12.2020 12:19
Óvíst hvenær íbúar geta snúið aftur til Seyðisfjarðar Ekki liggur fyrir hvenær íbúar Seyðisfjarðar geta snúið aftur til síns heima eftir að bærinn var rýmdur í gærkvöldi. Stórar aurskriður féllu á bæinn og skemmdu minnst tíu hús. Innlent 19.12.2020 11:45
„Verst af öllu er að þurfa að bíða en við verðum að vona það besta“ Páll Thamrong Snorrason segir aðgerðir á Seyðisfirði í gærkvöldi hafa gengið vel en fólk sé margt óttaslegið og kvíðið fyrir næstu skrefum. Innlent 19.12.2020 10:34
Seyðfirðingar allir komnir með svefnpláss fyrir nóttina Seyðfirðingar eru allir komnir til Egilsstaða í fjöldahjálparstöð Rauða krossins sem opnuð var í grunnskólanum þar. Að sögn Rögnvaldar Ólafssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, hafa allir fengið rúmpláss fyrir nóttina og enginn mun þurfa að halda til í skólanum í nótt. Innlent 18.12.2020 21:44
Um 30 ár síðan heilt bæjarfélag var síðast rýmt Neyðarástand er í gildi á Seyðisfirði vegna aurskriða sem þar hafa fallið síðustu sólarhringa. Stór skriða féll á byggðina um klukkan hálf fjögur á föstudag sem hreif með sér hús sem jafnaðist nánast við jörðu. Innlent 18.12.2020 19:06
Fjöldi fólks á Eskifirði þarf að yfirgefa hús sín vegna skriðuhættu Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi og Veðurstofu Íslands, hefur lýst yfir hættustigi á Eskifirði vegna skriðuhættu. Óvissustig er á öllum Austfjörðum, neyðarstig á Seyðisfirði og nú hættustig á Eskifirði. Innlent 18.12.2020 18:09
„Þetta var bara áfall“ Kristinn Már Jóhannesson, slökkviliðsmaður á Austfjörðum, var við störf í námunda við húsin sem urðu fyrir stóru skriðunni sem féll á Seyðisfirði um þrjúleytið í dag. Slökkviliðsmenn voru við dæluvinnu þegar drunurnar byrjuðu. Kristinn Már var að ganga frá slöngu með félögum sínum í slökkviliðinu. Innlent 18.12.2020 17:47
Myndband af stóru skriðunni sem féll á Seyðisfirði Neyðarstigi hefur verið lýst yfir á Seyðisfirði eftir að skriður féllu síðdegis í dag. Stefnt er að því að rýma bæinn. Innlent 18.12.2020 16:41
Stefnt að því að rýma Seyðisfjörð Allir íbúar Seyðisfjarðar eru beðnir um að gefa sig fram í fjöldahjálparstöðinni í bænum. Almannavarnir stefna að því að rýma bæinn. Stór aurskriða féll þar um klukkan þrjú. Óttast er að hún hafi fallið á stærra svæði en í fyrstu var talið og að tjónið sé mikið. Innlent 18.12.2020 15:56
Minnst tíu hús skemmdust þegar stór skriða féll Aurskriða féll á hús á Seyðisfirði um klukkan þrjú. Hún er mögulega sú stærsta sem fallið hefur á svæðinu á síðustu dögum. Ekki er vitað um nein slys á fólki að svo stöddu. Almannavarnarstig á Seyðisfirði hefur verið hækkað úr hættustigi í neyðarstig. Stefnt er að því að rýma bæinn. Innlent 18.12.2020 15:08
Helgustaðavegur lokaður vegna aurskriðu Aurskriða féll á Helgustaðaveg, út með Eskifirði milli Engjabakka og Högnastaða, í nótt og er vegurinn því lokaður. Innlent 18.12.2020 11:17