Erlent
Forstjóri GM fylgjandi samstarfi Viðskipti erlent 12.7.2006 17:01 Engin þörf á hærri vöxtum Viðskipti erlent 12.7.2006 14:39 Litháinn lýsir sig saklausann Lithái, sem var handtekinn í Leifsstöð í desember með tvær áfengisflöskur fullar af vökva til amfetamínframleiðslu, lýsti sig saklausan við aðalmeðferð málsins sem hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 12.7.2006 13:38 Aukið atvinnuleysi í Bretlandi Viðskipti erlent 12.7.2006 11:41 ESB sektar Microsoft Viðskipti erlent 12.7.2006 11:00 Hermenn Ísraelshers hafa haldið inn í Líbanon Hermenn Ísrelshers hafa haldið inn í Líbanon til að frelsa tvo hermenn sem Hizbollah skæruliðar fönguðu við landamærin landsins. Al-Jazeera-sjónvarpsstöðin segir að sjö ísraleskir hermenn hafi fallið í átökunum. Erlent 12.7.2006 09:54 Rumsfeld í heimsókn í Afganistan Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, fullvissaði Afgönsku ríkisstjórnina í gær, um að aukið öryggishlutverk NATO í landinu þýddi ekki að bandaríkjamenn væru að draga sig út úr átökunum þar, eftir fimm ára þáttöku. Erlent 12.7.2006 07:29 Loftárás á Gaza í nótt Að minnsta kosti sex, þarf af tvö börn, létust í loftárás Ísraelsmanna á Gazaborg í nótt. Tuttugu og fjórir særðust í árásinni. Erlent 12.7.2006 07:20 « ‹ 311 312 313 314 315 316 317 318 319 … 334 ›
Olíuverð í sögulegu hámarki Olíuverð fór í tæpa 76 Bandaríkjadali á helstu mörkuðum í dag og hefur aldrei verið hærra. Ástæðan fyrir verðhækkuninni eru minni umframbirgðir af olíu í Bandaríkjunum, vaxandi spenna í Mið-Austurlöndum og gruns um sprengingu í olíuleiðslu í Nígeríu, sem aðili er að samtökum olíuframleiðsluríkja, OPEC. Viðskipti erlent 13.7.2006 09:14
Bush í Þýskalandi George Bush, Bandaríkjaforseti, hóf í gærkvöldi opinbera heimsókn sína til Þýskalands. Bush kom til Rostock í Þýskalandi í gær en ætlar að stoppa stutt í Þýskalandi því hann heldur þaðan aftur á morgun. Erlent 13.7.2006 08:47
Sakaður um kynferðislega áreitni Orðrómur um meinta kynferðislega áreitni forseta Ísraels, Moshe Katsav, tröllríður öllum fjölmiðlum í Ísrael og gæti tímasetningin varla verið verri fyrir Ísraela, sem sæta nú miklum alþjóðlegum ádeilum vegna innrása á Gaza-strönd og í Líbanon. Erlent 12.7.2006 21:40
Eldar í Kaliforníu Reykjarmökkur svífur nú yfir Yucca dal, í Kaliforníu, þar sem eldar geysa á stóru svæði. Erlent 13.7.2006 07:20
Loftárásir á alþjóðaflugvöllinn í Beirút Ísraelsher gerði loftárásir á alþjóðaflugvöllinn í Beirút í Líbanon í morgun, og þurfti að loka flugvellinum vegna þessa. Erlent 13.7.2006 07:16
Ísraelsher ræðst inn í Suður-Líbanon Viðbrögð Ísraelshers við handtöku Líbana á tveimur ísraelskum hermönnum hafa vakið mikil mótmæli um allan heim. Forsætisráðherra Ísraels segir viðbrögð landa sinna verði "öguð en afar, afar sársaukafull". Erlent 12.7.2006 21:40
Þjóðarhreinsun í uppsiglingu Við mótmælum framferði Ísraelshers sem bitnar á hinum almenna íbúa, körlum, konum og ekki síst börnunum, sem reyna alltént að vera úti við leik, að minnsta kosti á meðan sprengjunum rignir ekki, segir Sveinn Rúnar Hauksson, formaður félagsins Ísland-Palestína, sem heldur mótmælafund á Austurvelli klukkan 17.30 í dag. Erlent 12.7.2006 21:40
Enginn hefur lýst yfir ábyrgð Sérfræðingar leituðu í gær að vísbendingum í rústum lestarvagna sem sprungu í loft upp í átta sprengjum á háannatíma í Mumbai (Bombay) á Indlandi á þriðjudag. Svo virðist sem sprengjunum hafi verið komið fyrir á farangursgrindum í lestunum, en þær urðu yfir 200 manns að bana og særðu fleiri en 700. Erlent 12.7.2006 21:40
Á heimaslóðir kanslarans George W. Bush Bandaríkjaforseti kom í gær til Þýskalands í boði Angelu Merkel Þýskalandskanslara. Bush verður í Þýskalandi þangað til á morgun, en þá heldur hann til Rússlands á leiðtogafund G8. Í Þýskalandi fer Bush á heimaslóðir Merkel við strönd Eystrasalts, þar sem áður var Austur-Þýskaland. Erlent 12.7.2006 21:40
Einn þungt haldinn á gjörgæsludeild Tugir manna slösuðust í sjötta nautahlaupinu af átta á San Fermin-hátíðinni í Pamplona á Spáni í gær. Þó ráku vel hyrnd nautin engan í gegn og eingöngu einn maður slasaðist illa þegar nautin tröðkuðu á honum. Hann var lagður inn á sjúkrahús með nokkuð alvarlega bak- og höfuðáverka, en var þó ekki í lífshættu.Hlaupið stóð í tvær og hálfa mínútu. Erlent 12.7.2006 21:40
Ráðgjafi Blairs handtekinn Helsti fjáröflunarmaður breska Verkamannaflokksins, Levy lávarður, var í gær handtekinn í tengslum við rannsókn bresku lögreglunnar á ásökunum um að Tony Blair forsætisráðherra hafi með óeðlilegum hætti séð til þess að auðkýfingar, sem styrktu flokkinn, fengju sæti í lávarðadeild þingsins. Erlent 12.7.2006 21:40
Aftur fyrir öryggisráð SÞ Stjórnvöld sex heimsvelda ákváðu í gær að senda Íran aftur fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, sem hugsanlega gæti fyrirskipað refsiaðgerðir. Ástæðan er sú að heimsveldin telja Írana ekki hafa sýnt neina alvöru í samningaviðræðum varðandi auðgun þeirra á úrani. Erlent 12.7.2006 21:40
Snerti fjölskyldu mína Zinedine Zidane mætti í viðtal hjá Canal Plus sjónvarpsstöðinni í gær og bað aðdáendur sína fyrirgefningar á ruddalegri framkomu sinni í lokaleik heimsmeistarakeppninnar í fótbolta. Hann sagðist þó ekki sjá eftir henni, til þess hefðu ummæli Materazzis verið of meiðandi. Erlent 12.7.2006 21:40
Vilja herstöð í Tékklandi Bandarískir sérfræðingar munu ferðast til Tékklands í næstu viku í þeim tilgan-gi að leita að hugsanlegri staðsetningu fyrir bandaríska herstöð, þar sem langdrægar eldflaugar yrðu geymdar. Erlent 12.7.2006 21:40
Asíuflugið er mest vaxandi Stöðugt fleiri farþegar kjósa að fljúga með finnska flugfélaginu Finnair en tekjurnar fara minnkandi. Ástæðan er sú að samkeppnin er hörð og olían verður stöðugt dýrari, að sögn Dagens Industri. Erlent 12.7.2006 21:40
Óttast um afdrif nashyrninga Vísindamenn telja að búið sé að útrýma svörtum nashyrningum í Vestur-Afríku, en margar tegundir nashyrninga standa ákaflega höllum fæti vegna aðgerða veiðiþjófa. Þetta kemur fram á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC. Erlent 12.7.2006 21:40
Slagsmál brutust út á Úkraínuþingi Slagsmál brutust út á þinginu í Úkraínu í gær þegar Viktor Júsjenko forseti var beðinn um að tilnefna helsta andstæðing sinn, Viktor Janúkovitsj, í embætti forsætisráðherra. Erlent 12.7.2006 21:40
Microsoft sektað Evrópusambandið hefur sektað bandaríska hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft um 280 milljónir evra, jafnvirði 26 milljarða íslenskra króna. Erlent 12.7.2006 18:29
Síðasta geimgangan Tveir geimfarar úr áhöfn geimferjunnar Discovery brugðu sér í dag í síðustu geimgöngu yfirstandandi leiðangurs. Erlent 12.7.2006 18:24
Indverjar reiðir Pakistönum Enn hefur enginn lýst yfir ábyrgð á hryðjuverkunum í Mumbai á Indlandi í gær, sem kostuðu 183 mannslíf. Samskipti Indverja og Pakistana hafa kólnað vegna ódæðanna. Erlent 12.7.2006 18:21
Ófriðarskýin hlaðast upp Forsætisráðherra Ísraels segir að Líbanar hafi kastað stríðshanskanum í morgun þegar skæruliðar Hizbollah-samtakanna tóku tvo ísraelska hermenn í gíslingu. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna fordæmdi gíslatökuna harðlega í yfirlýsingu sinni í dag. Erlent 12.7.2006 18:17
Biðst afsökunar á framkomu sinni í úrslitaleiknum Franski knattspyrnumaðurinn Zinedine Zidane hefur beðist afsökunar á framferði sínu í úrslitaleiknum á HM um síðustu helgi þegar hann skallaði ítalska varnarmanninn Marco Materazzi og var sendur af velli í sínum síðasta leik. Hann segir Materazzi hafa látið mjög ljót orð falla um fjölskyldu sína. Nánar má lesa um málið á íþróttasíðu Vísis. Erlent 12.7.2006 18:31
Litháinn lýsir sig saklausann Lithái, sem var handtekinn í Leifsstöð í desember með tvær áfengisflöskur fullar af vökva til amfetamínframleiðslu, lýsti sig saklausan við aðalmeðferð málsins sem hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 12.7.2006 13:38
Hermenn Ísraelshers hafa haldið inn í Líbanon Hermenn Ísrelshers hafa haldið inn í Líbanon til að frelsa tvo hermenn sem Hizbollah skæruliðar fönguðu við landamærin landsins. Al-Jazeera-sjónvarpsstöðin segir að sjö ísraleskir hermenn hafi fallið í átökunum. Erlent 12.7.2006 09:54
Rumsfeld í heimsókn í Afganistan Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, fullvissaði Afgönsku ríkisstjórnina í gær, um að aukið öryggishlutverk NATO í landinu þýddi ekki að bandaríkjamenn væru að draga sig út úr átökunum þar, eftir fimm ára þáttöku. Erlent 12.7.2006 07:29
Loftárás á Gaza í nótt Að minnsta kosti sex, þarf af tvö börn, létust í loftárás Ísraelsmanna á Gazaborg í nótt. Tuttugu og fjórir særðust í árásinni. Erlent 12.7.2006 07:20