
Jóhann Helgason gegn Universal

Jóhann beið lægri hlut en sleppur við lögfræðikostnað í Saknaðarmáli
Tónlistarmaðurinn Jóhann Helgason beið lægri hlut í höfundarréttarmáli sínu gegn norska tónlistarmanninum Rolf Løvland og bandarísku tónlistarrisunum Universal, Warner og Peer Music. Hann mun þó ekki þurfa að standa straum af lögfræðikostnaði stefnda vegna málsóknarinnar.

Enn glímir Jóhann við tónlistarrisana í dómsal
Munnlegur málflutningur í máli Jóhanns Helgasonar gegn tónlistarrisunum Warner og Universal hófst í Los Angeles í dag. Jóhann er vongóður um að í þetta skiptið hafi hann betur.

Máli Jóhanns Helgasonar vísað frá
Máli tónlistarmannsins Jóhanns Helgasonar gegn tónlistarrisunum Warner og Universal var vísað frá dómi í Los Angeles í Bandaríkjunum á föstudag.

Útivistardóms krafist á Løvland í LA
Lögmaður Jóhanns Helgasonar krefst þess nú að kveðinn verði upp útivistardómur yfir höfundum lags og texta You Raise Me Up þar sem þeir hafi í engu sinnt stefnum í málinu um lögin You Raise Me Up og Söknuð.

Hafna málatilbúnaði tónfræðings Jóhanns
Lögmenn fyrirtækja sem Jóhann Helgason stefnir í málinu um lagið Söknuð segja mikla galla á málatilbúnaði tónlistarfræðings sem vann álitsgerð fyrir Jóhann. Þeir krefjast þess að málinu verði vísað frá dómi í Los Angeles.

Vitni styðja Jóhann í dómsmálinu
Lögmaður Jóhanns Helgasonar í málinu um hvort lagið You Raise Me Up sé stuldur á laginu Söknuði hefur lagt fyrir dómstólinn í Los Angeles skjöl með yfirlýsingum tiltekinna einstaklinga sem eiga að sýna fram á að Rolf Løvland hafi haft margvísleg tækifæri til að heyra lagið Söknuð áður en hann sendi frá sér You Raise Me Up.

Prófessor sagður tapa trúverðugleika sínum
Tónlistarprófessor sem gerði samanburðargreiningu á lögunum Söknuði og You Raise Me Up er sagður hafa fórnað trúverðugleikanum með vinnubrögðunum. Þetta kemur fram í andsvörum lögmanns Jóhanns Helgasonar fyrir dómi.

Réttað í máli Jóhanns í desember 2020
Alríkisdómstóll í Los Angeles hefur nú breytt dagsetningum í málaferlum Jóhanns Helgasonar vegna meints stuldar á laginu Söknuði. Nú er gert ráð fyrir að réttarhöldin sjálf verði ekki fyrr en í desember 2020 í staðinn fyrir í maí það ár.

Sérfræðingur stórfyrirtækja hafnar líkindum við Söknuð
Prófessor sem starfar fyrir lögmenn Warner Music og Universal Music í dómsmálinu sem Jóhann Helgason rekur gegn tónlistarfyrirtækjunum í Los Angeles segir í 110 síðna greinargerð að engin marktæk líkindi séu með laginu Söknuði og laginu You Raise Me Up. Bæði lögin eigi fyrirmyndir í eldri lögum.

Hafnar því að Söknuður byggi á Danny Boy
Jóhann Helgason, tónlistarmaður, hafnar því að lag hans "Söknuður“ sé byggt á írska þjóðlaginu Danny boy eins og lögmenn fyrirtækja, sem Jóhann hefur stefnt vegna líkinda við lagið You Raise Me Up, segja.

Dregið í efa að Jóhann hafi samið Söknuð
Lögmenn fyrirtækja sem Jóhann Helgason stefnir í Bandaríkjunum vegna meints stuldar á laginu Söknuði með útgáfu á laginu You Raise Me Up segja bæði lögin byggð á írska þjóðlaginu Danny Boy og boða kröfu um frávísun.

Warner og Universal hafna fullyrðingum Jóhanns Helgasonar í LA
Lögmenn lögmannsstofunnar Loeb & Loeb í Bandaríkjunum, sem gætir hagsmuna fjögurra fyrirtækja sem stefnt er í höfundarréttarmáli Jóhanns Helgasonar, hafa skilað sinni fyrstu greinargerð í málinu til alríkisdómstólsins í Los Angeles.

Fá Slotnick og Dickstein gegn Jóhanni Helgasyni
Lögmannsstofa fyrir Universal og Warner fékk leyfi dómara til að kalla til lögmenn frá New York til að annast málsvörn tónlistarrisanna í höfundarréttarmáli Jóhanns Helgasonar í Los Angeles. Leggja á fram greinargerðir fyrir 7. febrúar.

Engin viðbrögð fást frá Løvland og Universal
"MJÖG líkt“ You Raise Me up, segir vefurinn tmz.com um lagið Söknuð. Hvorki fást viðbrögð frá Rolf Løvland né Universal eftir málshöfðun Jóhanns Helgasonar.

Tekist á um eitt mest selda lag allra tíma
Helstu útgáfurisar eru meðal þeirra sem Jóhann Helgason stefnir fyrir dóm í Los Angeles í Bandaríkjunum.

Ekki lokaákvörðun um Söknuð í Skandinavíu
Fullyrðing norska lagahöfundarins Rolfs Lövland um að höfundaréttarsamtök í Skandinavíu hafi endanlega skorið úr um að lag hans You Raise Me Up sé ekki stuldur á laginu Söknuði virðist byggð á misskilningi um hlutverk samtakanna.

Forstjóri norska STEFs hafnar íslenskri frásögn
Þáverandi framkvæmdastjóri höfundarréttarsamtakanna STEFs hafði eftir forstjóra systursamtakanna í Noregi að honum kæmi ekki á óvart að komið væri upp lagastuldarmál tengt Rolf Løvland. Norski forstjórinn neitar þeirri frásögn.

Universal boðar mikla hörku í lagastuldarmáli
Útgáfurisinn Universal hafnar algerlega kröfu Jóhanns Helgasonar vegna lagsins You Raise Me Up og kveðst munu verjast af krafti láti hann verða af þeirri "hótun“ að fara með málið fyrir dómstóla. Rolf Løwland svaraði ekki fyrirspurnum.

Samdi heimsfrægt lag en skrifar ósjaldan gúmmítékka fyrir mat
Jóhann Helgason freistar þess á ný að fá viðurkenndan höfundarrétt á laginu heimsfræga You Raise Me Up.

Eurovision, Pétur Kristjáns og Icelandair mögulegir örlagavaldar í máli Jóhanns
Sjáðu blaðamannafund Jóhanns Helgasonar í Hljóðrita þar sem hann fór yfir málshöfðun sína vegna You Raise Me Up.

Ensk útgáfa af Söknuði birt á netinu
Lagið heitir á Into the Light og er það söngvarinn Edgar Smári sem flytur.

Jóhann útskýrir milljarðamál sitt gegn Universal
Vill meina að laginu Söknuði hafi verið stolið þegar You Raise Me Up var samið.

Jóhann Helgason höfðar mál vegna You Raise Me Up
Vill meina að lagið Söknuður hafi verið selt í hundrað milljónum eintaka og skaðabætur geti hlaupið á milljörðum króna.