Innlent
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 334 ›
Samfélagsleg ábyrgð komi í stað arðsemi Lífeyrissjóðirnir gegna lykilhlutverki í uppbyggingu íslensks samfélags, sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á aðalfundi Landssamtaka lífeyrissjóða í gær. Ráðherra sagði að sjóðunum bæri til þess siðferðisleg skylda auk þess sem það væri efnahagslega skynsamlegt fyrir þá. Innlent 18.5.2010 23:09
Ævisparnaður hjá Kaupþingi varð að fimm þúsund krónum Stór hluti starfsfólks gamla Kaupþings tapaði svo gott sem öllum viðbótarlífeyrissparnaði sínum sem það átti í séreignarsjóði Kaupþings fyrir starfsmenn. Sjóðurinn fjárfesti eingöngu í hlutabréfum bankans. Í lok september 2008 voru í sjóðnum tveir milljarðar króna. Þegar skilanefnd á vegum Fjármálaeftirlitsins tók lyklavöldin yfir í Kaupþingi í annarri viku október 2008 varð viðbótarlífeyrissparnaðurinn að engu. Viðskipti innlent 18.5.2010 23:09
Askan getur hindrað alla sjúkraflutninga Vegna öskufalls kom sú staða upp í Vestmannaeyjum um helgina að erfitt eða ómögulegt hefði verið að koma veikum eða slösuðum undir læknishendur utan eyjanna. Sjúkraflug, hvort sem er með flugvél eða þyrlu, var óhugsandi vegna öskufallsins og vafasamt að fara sjóleiðina. Innlent 17.5.2010 22:31
Stjórnvöld vilja stytta leigutíma Magma á auðlindum Kanadíska fyrirtækið Magma Energy hefur eignast 98,53 prósenta hlut í HS Orku. Sænskt dótturfélag þess keypti hlut Geysis Green Energy í fyrirtækinu. Stjórnvöld höfðu óskað eindregið eftir því að beðið væri með undirskrift þar til eftir ríkisstjórnarfund í dag, ekki var orðið við þeirri ósk. Innlent 17.5.2010 22:31
Lögreglumenn leiða hvor sinn listann Oddvitar framboðslistanna tveggja í Skaftárhreppi eru lögregluþjónarnir tveir sem starfa í hreppnum, Guðmundur Ingi Ingason varðstjóri og Þorsteinn Kristinsson lögreglustjóri. „Við erum fagmenn á okkar sviði, það er langt því frá að þessi staða trufli okkur," sagði Þorsteinn þegar Fréttablaðið grennslaðist fyrir um málið. Innlent 17.5.2010 22:31
Mun verjast af fullum krafti Jón Ásgeir Jóhannesson sendi frá sér yfirlýsingu vegna afsagna sinna úr stjórnum bresku fyrirtækjanna House of Fraser og Iceland Foods. Þar segir að ákvörðun um afsagnirnar hafi verið tekin í kjölfar málsóknar slitastjórnar Glitnis á hendur Jóni Ásgeiri og fólki sem honum tengist. Innlent 17.5.2010 22:31
Flytja þarf mörg þúsund fjár af öskusvæðum Fyrstu kindurnar verða fluttar af öskufallssvæðunum undir Austur-Eyjafjöllum á beitarsvæði innan varnarlínu í dag. Að sögn Hermanns Árnasonar, starfsmanns hjá Búnaðarsambandi Suðurlands, verða á annað hundrað lambær fluttar á jörðina Þverá í Skaftárhreppi. Innlent 17.5.2010 22:31
Rannsaka þurfi allt söluferlið á HS orku Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs ítrekar, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gærkvöldi, þá grundvallarstefnu sína að allar auðlindir þjóðarinnar eigi að vera sameign hennar. Innlent 17.5.2010 22:31
Lyfjafyrirtæki þegar hætt að skrá ný lyf Farið er að bera á því að lyfjafyrirtæki hætti við að skrá ný lyf á markað hér á landi þar sem stjórnvöld voru ekki tilbúin til að borga sambærilegt verð og fæst fyrir lyfin á hinum Norðurlöndunum, segir Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Frumtaka, samtaka framleiðenda frumlyfja. Innlent 17.5.2010 22:31
Kókaínsmygl og peningaþvætti Tveir menn og tvær konur hafa verið dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stórfellt fíkniefnasmygl og peningaþvætti. Sá sem þyngstan dóm hlaut, David Erik Crunkleton, var dæmdur í átján mánaða fangelsi. Hinn karlmaðurinn var dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af þrjá á skilorði. Önnur konan var dæmd í tíu mánaða fangelsi en hin í fjóra mánuði á skilorði. Innlent 17.5.2010 22:31
Mikil eldvirkni á Íslandi um þessar mundir Hrina eldgosa í Vatnajökli sem hófst árið 1996 er í samræmi við rannsóknir sem íslenskir vísindamenn gerðu og voru birtar fyrst fyrir rúmum áratug. Innlent 17.5.2010 22:31
Sextándi hver íbúi á Vesturlandi er í kjöri Óvenjulega margir eru nú í framboði á Vesturlandi, en það helgast af því að í Dalabyggð er enginn listi í boði. Við slíkar aðstæður eru allir íbúar sveitarfélagsins, sem kjörgengir eru, í framboði, nema þeir sem setið hafa í sveitarstjórn og gefa ekki kost á sér. Innlent 17.5.2010 22:31
Prófessor líkir Grikklandi við Lehman Efnahagsvandi Grikkja, Portúgals og Spánar mun ganga af evrunni dauðri. Þetta segir breski hagsöguprófessorinn Niall Ferguson í grein í nýjasta hefti vikuritsins Newsweek. Viðskipti erlent 17.5.2010 22:31
Jóni vikið úr starfi hjá Stoðum Jóni Sigurðssyni hefur verið veitt lausn frá störfum sem framkvæmdastjóri Stoða samkvæmt tilkynningu sem Eiríkur Elís Þorláksson, stjórnarformaður Stoða, sendi frá sér í dag. Viðskipti innlent 17.5.2010 17:15
Bókari dæmdur til þess að greiða 28 milljónir til baka Fyrrverandi bókari og gjaldkeri húsnæðissamvinnufélagsins Búseta var dæmdur í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur til þess að greiða til baka 28 milljónir til Búseta sem hann dró að sér. Bókarinn, sem heitir Jón Jóhannesson, starfaði í 16 ár hjá félaginu áður en upp komst um fjárdráttinn. Innlent 14.5.2010 17:56
Ölvaður á ofsahraða Karl um þrítugt var stöðvaður í akstri á Vesturlandsvegi á móts við Höfðabakka síðdegis í gær. Bíll hans mældist á 147 km hraða en þarna er 80 km hámarkshraði. Maðurinn reyndist jafnframt vera ölvaður. Innlent 14.5.2010 16:52
Meintur svikahrappur áfram í gæsluvarðhaldi Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem er grunaður um að hafa svikið um 300 milljónir króna út úr 90 einstaklingum. Innlent 14.5.2010 16:47
Ingólfur færður til yfirheyrslu eftir næturvist hjá lögreglunni Ingólfur Helgason, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, hefur verið færður til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara. Innlent 11.5.2010 13:45
Embætti sérstaks saksóknara þögult sem gröfin Björn Þorvaldsson, fulltrúi sérstaks saksóknara, segist ekki staðfesta neitt varðandi handtökur Ingólfs Helgasonar, fyrrverandi forstjóri Kaupþings á Íslandi og Steingríms Kárason, framkvæmdastjóra áhættustýringar bankans. Innlent 11.5.2010 12:21
Ellefu ákærðir fyrir að skipta við Miðbaugsmaddömuna Ríkissaksóknari hefur gefið út ellefu ákærur á jafn marga einstaklinga sem greiddu eða reyndu að greiða fyrir vændi á tímabilinu október til desember á síðasta ári. Innlent 10.5.2010 15:48
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hafin Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga 29. maí næstkomandi er hafin í Laugardalshöll. Innlent 10.5.2010 13:02
Gengi hlutabréfa Össurar lækkaði um 1,52 prósent Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar lækkaði um 1,52 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdu bréf Marels, sem lækkaði um 1,07 prósent og færeyska olíuleitarfélagsins Atlantic Petroleum. Gengi hlutabréfanna fór niður um 0,62 prósent. Viðskipti innlent 29.4.2010 16:36
Ágreiningur um fréttamat: Sagði upp á Morgunblaðinu Blaðakonan Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir sagði upp starfi sínu sem kvöldfréttastjóri Morgunblaðsins vegna ágreinings um forsíðu blaðsins sem birtist daginn eftir að rannsóknarskýrsla Alþingis var birt. Það var Smugan.is sem greindi frá því að Gunnhildur hefði sagt upp vegna þess að henni mislíkaði inngrip ritstjórans á forsíðu blaðsins. Innlent 29.4.2010 10:39
Síminn stefnir Samkeppniseftirlitinu vegna húsleitar Síminn hf. sakar símafyrirtækið Þekkingu, sem á í samkeppni við Símann á upplýsingatæknimarkaði, um að hafa afritað tölvugögn Símans og Skipta við húsleit sem Samkeppniseftirlitið framkvæmdi í síðustu viku. Þar á Þekking að hafa starfað sem undirverktaki. Innlent 27.4.2010 15:40
Niðurstaða dómstólsins kom á óvart „Þetta kom svolítið á óvart en ég var alltaf ótrúlega bjartsýnn,“ segir Vörður Ólafsson, húsasmiður, en hann kærði gjaldtöku Samtaka Iðnaðarins til Mannréttindadómstóls Evrópu sem komst að þeirri niðurstöðu að iðnmálagjald stæðist ekki ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu. Innlent 27.4.2010 11:20
Sakaður um pyntingar - dæmdur mánuði áður fyrir hrottaskap Einn mannanna, sem var handtekinn vegna frelsissviptingar í Reykjanesbæ rétt eftir páska, var dæmdur aðeins mánuði áður fyrir hrottalega líkamsárás þegar hann ruddist inn á heimili manns ásamt öðrum manni í Keflavík. Innlent 26.4.2010 13:27
Mikið um þjófnaði á Akranesi 6 þjófnaðir voru tilkynntir til lögreglunnar á Akranesi í síðustu viku. Innlent 19.4.2010 15:11
AGS opnar á 105 milljarða lán Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins lauk í gær við endurskoðun annars áfanga efnahagsáætlunar sjóðsins fyrir Ísland. „Þar með opnast fyrir verulegt lánsfé sem ætti að hafa verulegar, jákvæðar afleiðingar,“ sagði Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra. Viðskipti innlent 16.4.2010 22:42
Borgin hreinsar til í kringum lóð Hrafns Reykjavíkurborg mun fjarlægja allar óleyfisframkvæmdir utan lóðamarka Hrafns Gunnlaugssonar á Laugarnestanga á mánudag. Hann hefur frest til klukkan 9 á mánudagsmorgun til að fjarlægja muni sem hann telur sig eiga, að öðrum kosti mun borgin láta fjarlægja án frekari fyrirvara „þaðan grjót og annað, sem ekki á þar heima“. Innlent 16.4.2010 22:42
Grunur um salmonellusmit i ferskum kjúkling Komið hefur upp grunur um salmonella smit í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf. Frekari rannsókna er þörf til þess að staðfesta gruninn en þangað til þykir fyrirtækinu rétt að innkalla vöruna samkvæmt tilkynningu frá þeim. Innlent 16.4.2010 17:31