Innlent
307 308 309 310 311 312 313 314 315 … 334 ›
Ráðinn bæjarstjóri Vestubyggðar Ragnar Jörundsson hefur verið ráðinn bæjarstjóri Vesturbyggðar. Fréttavefurinn Bæjarins besta greinir frá því að þrír einstaklingar hafi sótt um starfið auk Ragnars. Ragnar er 61 árs að aldri og hefur áður gengt starfi sveitarstjóra í Hrísey og á Súðavík. Guðný Sigurðardóttir hefur gengt starfi bæjarstjóra frá því Guðmundur guðlaugsson fyrrum sveitarstjóri lét af störfum í vor. Innlent 26.7.2006 11:24
Atlassími ehf. og Síminn ná sáttum Atlassími ehf. og Síminn hf. hafa náð sátt í deilumáli félaganna vegna númeraflutnings úr almenna símakerfinu yfir í netsímaþjónustu Atlassíma. Innlent 26.7.2006 10:23
Taprekstur hjá Vinnslustöðinni Vinnslustöðin á Neskaupsstað skilaði 368 milljóna króna tapi á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er mikil breyting frá sama tímabili í fyrra þegar fyrirtækið skilaði 463 milljóna króna hagnaði. Þá skilaði félagið 260 milljóna króna tapi á öðrum ársfjórðungi. Viðskipti innlent 26.7.2006 10:19
Iceland America Energy gerir raforkusamning Iceland America Energy, dótturfélag Enex hf., og orkufyrirtækið Pacific Gas & Electric í Kaliforníu hafa undirritað samning um framleiðslu og sölu á 50 megavöttum af raforku. Innlent 26.7.2006 10:07
Hagnaður Kaupþings 31,8 milljarðar króna Hagnaður Kaupþings banka nam 13,0 milljörðum króna á öðrum ársfjóðungi en hagnaður bankans á fyrstu sex mánuðum ársins nemur 31,8 milljörðum króna, sem er 7 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Hagnaður bankans á öðrum ársfjórðungi er hins vegar 700 milljónum krónum minni en fyrir ári. Hagnaður bankans á öðrum ársfjórðungi er um þremur milljörðum krónum meiri greiningardeildir bankanna höfðu spáð. Viðskipti innlent 26.7.2006 10:01
Stjórn Heimdallar skorar á ráðherra Sjálfstæðisflokksins Stjórn Heimdallar skorar á ráðherra Sjálfstæðisflokksins um að fylgja eftir tillögum hagstofustjóra um afnám tolla og innflutningshafta á matvörur. Stjórnin fagnar aukinni umræðu eftir að skýrsla matvælanefndarinnar var kynnt. Innlent 26.7.2006 09:32
Leiðtogar funda í Róm Fundur utanríkisráðherra helstu ríkja og fulltrúa alþjóðsamtaka um átökin í Líbanon hófst í Róm á Ítalíu í morgun. Þar verður rætt um hvernig hægt verði að stilla til friðar milli Ísraela og skæruliða Hizbollah og hvernig hægt verði að flytja hjálpargögn til þjáðra á átakasvæðinu. Erlent 26.7.2006 09:05
Tveir kostir varðandi gengi krónunnar Aðeins tveir kostir eru í stöðunni varðandi framtíðarskipan gengismála hér á landi, segir í skýrslu, sem Viðskiptaráð hefur látið gera og kynnt verður í dag. Annarsvegar að að taka upp Evru og ganga þar með í Evrópusambandið, og hinsvegar að byggja áfram á sjálfstæðri krónu með fljótandi gengi. Tilgangur Viðskiptaráðs með gerð skýrsunnar, sem heitir: Krónan og atvinnulífið, er að leggja grunn að faglegri umræðu um gengismál hérlendis. Innlent 26.7.2006 07:59
Beðið eftir leyfinu Borgaryfirvöld fóru fram á í síðustu viku að framkvæmdum á lóð nýrrar bensínstöðvar Esso í Vatnsmýrinni yrði hætt. Innlent 25.7.2006 21:25
Actavis eykur við hlutafé Samþykktar voru á hluthafafundi Actavis í gær tvær tillögur í tengslum við fjármögnun væntanlegs yfirtökutilboðs í króatíska samheitalyfjafyrirtækið Pliva. Var annars vegar útgáfa nýs hlutafjár að verðmæti um 20 milljarða króna að markaðsvirði samþykkt. Hins vegar var veitt heimild til útgáfu breytiréttar í hlutafé vegna skuldbindinga félagsins samkvæmt lánasamningi fyrir allt að 525 milljónir evra, um 48,7 milljarða króna. Munu handhafar breytiréttar hafa heimild til að breyta kröfum sínum í hlutabréf í Actavis. Viðskipti innlent 25.7.2006 18:35
Kvóti seldur frá Grímsey til Sandgerðis Kvóti, sem dugað hefur til að gera út fjóra báta frá Grímsey, hefur verið seldur til Sandgerðis og eru seljendurnir hættir útgerð, að því er Morgunblaðið greinir frá. Þetta eru tæp 12.000 tonn af þorski og ýsu, sem er stór hluti af heildarkvóta Grímseyinga, og er söluvirðið nálægt tveimur milljörðum króna. Nú búa um það bil hundrað manns í Grímsey þannig að þeta er umtalsvert hlutfall af efnahag eyjarskeggja. Innlent 26.7.2006 07:15
Gríðarlegir fjármunir tapast Flugfélagið Icelandair skoðar rétt sinn til að krefja íslenska ríkið um skaðabætur vegna mikilla veikinda flugumferðarstjóra undanfarið. Eins og komið hefur fram í fréttum eru flugumferðarstjórar mjög ósáttir við nýtt vaktakerfi sem sett var á í mars síðastliðnum. Innlent 25.7.2006 21:26
Stækkun sem dugar til 2016 Fjölgun farþega um Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur kallað á stækkun og breytingar. Verklok eru áætluð í vor. Meðal nýjunga er farangursflokkunarkerfi. Innlent 25.7.2006 21:26
Áætluð fjölgun um 15 prósent Sveitarfélögin í landinu áætla að rúmlega ellefu þúsund einstaklingar muni njóta greiðslna húsaleigubóta á þessu ári. Það er 14,9 prósenta fjölgun frá árinu áður. Innlent 25.7.2006 21:25
Ökumennirnir gæta sín ekki Ellefu hafa látist í umferðinni á árinu. Slysin hafa orðið jafnt í þéttbýli sem dreifbýli og ýmist ökumenn, farþegar eða gangandi vegfarendur hafa látið lífið. Þá hafa orðið slys, bæði vegna árekstra og útafaksturs. Innlent 25.7.2006 21:25
Slapp úr brennandi hjólhýsi Maður slapp ómeiddur út úr brennandi hjólhýsi í Þjórsárdal í nótt, en hjólhýsið brann til kaldra kola. Um leið og hann komst út, hringdi hann á slökkvilið, sem brátt kom á vettvang, en þá var hjólhýsið al elda og ekki lengur við neitt ráðið. Svo vel vildi til að ringt hafði á svæðinu í gærkvöld og fram yfir miðnætti, þannig að eldur náði ekki að læsa sig í skóginn í grenndinni. Þá voru önnur hjólhýsi á svæðinu í öruggri fjarlægð. Eldsupptök eru ókunn. Innlent 26.7.2006 07:12
Framkvæmdum við tónlistarhús frestað Ríkisstjórnin vill fresta framkvæmdum við tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík um eitt ár. Þannig á að sporna gegn þenslu og hvetja aðra til að hægja á dýrum framkvæmdum. Portus group hefur þegar samþykkt frestun. Innlent 25.7.2006 21:26
Unglingum séu sett mörk Foreldrahús og skjólstæðingar þess vilja veita foreldrum stuðning með því að hvetja til samráðs og samheldni við að virða lög og reglur. Brýnt er að foreldrar setji skýrar reglur og hviki ekki frá þeim. Innlent 25.7.2006 21:26
Aukinn kraftur í rannsóknir Landsvirkjun setur nú aukinn kraft í rannsóknir á Norðausturlandi í tengslum við viðræður Alcoa um álver á Húsavík að sögn Bjarna Pálssonar, verkfræðings hjá Landsvirkjun. Innlent 25.7.2006 21:26
Mikil eldhætta skapaðist Rúmlega tíu þúsund lítrar af bensíni runnu niður í jarðveg eftir að tankbíll með tengivagn valt á þjóðveginum við Stórutjarnir í Ljósavatnsskarði í gærmorgun. Bílstjórinn var fluttur lítillega slasaður á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Innlent 25.7.2006 21:26
Brenndist illa þegar hann olli stórtjóni Karlmaður á þrítugsaldri brenndist alvarlega þegar hann olli stórtjóni með því að kveikja í bílum á bílasölu í Reykjavík í nótt. Lögreglumaður á eftirlitsför sá eldinn og kallaði á slökkvilið, en maðurinn var á bak og burt. Hann komst af sjálfsdáðum á Slysadeild Landsspítalans, þar sem hann er enn í meðferð vegna brunasára, einkum í andliti. Þaðan tilkynnti hann lögreglu að hann hefði kveikt í bílunum. Hann hefur borið eldfimt efni að einum eða tveimur bílum, sem eru gjörónýtur, en eldurinn varð svo mikill að hann barst í fjóra bíla til viðbótar, sem allir skemmdust nokkuð og hleypur tjónið á mörgum milljónum króna. Innlent 26.7.2006 07:03
Útgáfa jökla-bréfa í blóma Krónan styrktist um 1,4 prósent í gær en KfW, þýski landbúnaðarsjóðurinn, gaf í gær út erlend skuldabréf fyrir níu milljarða króna sem eru á gjalddaga eftir eitt ár. Innlent 25.7.2006 21:25
Segir skilyrðin engu breyta Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, um að setja samruna Dagsbrúnar og Securitas ákveðin skilyrði, breytir engu um starfsemi Securitas eða Dagsbrúnar, segir Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar. Innlent 25.7.2006 21:26
Lýsa stuðningi við formann Framkvæmdastjórn Öryrkjabandalags Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fullum stuðningi er lýst við formann bandalagsins, Sigurstein Másson. Harmar stjórnin persónugerða gagnrýni í fjölmiðlum frá hendi tveggja af þrjátíu fulltrúum aðalstjórnar á hann og störf stjórnar. Innlent 25.7.2006 21:25
Féll marga metra af gaffli lyftara og lést Banaslys varð við Hellisheiðarvirkjun í gær þegar maður sem stóð á vörubretti á gaffli lyftara féll marga metra til jarðar. Forstjóri Vinnueftirlitsins segir að öryggisráðstöfunum hafi ekki verið fylgt og hefur vinna við verkið verið stöðvuð. Innlent 25.7.2006 21:26
Breytir miklu fyrir farsímanotendur Ákveðið hefur verið að skylda farsímafélögin til þess að lækka lúkningargjöld. Miklar hagsbætur fyrir neytendur, segir Hrafnkell Gíslason. Fögnum breytingunni, segir fulltrúi Símans. Óþarfa inngrip, segir forstjóri Og Vodafone. Innlent 25.7.2006 21:26
Ætíð ný njósnaforrit í umferð Stöðugur straumur nýrra eða endurbættra njósnaforrita er í umferð á hverjum tíma að sögn Friðriks Skúlasonar tölvufræðings. Hann segir svokallaða auðkennislykla, sem eru samstarfsverkefni allra banka landsins og verða teknir í almenna notkun hér á landi í haust, vera mikilvæga vörn gegn heimabankaþjófnaði. Innlent 25.7.2006 21:25
200 ferðir með sjúklinga á dag Um 200 ferðir eru farnar á dag með sjúklinga á Landspítalanum sem þurfa að fara í myndatökur, hjartalínurit eða aðrar rannsóknir. Innlent 25.7.2006 21:25
Verulega dregur úr nýskráningum bíla Sala nýrra bíla það sem af er þessu ári er umtalsvert meiri en fyrir ári síðan en tæplega þúsund fleiri bílar hafa verið seldir nú en þá sem þó var algjört metár hvað sölu á nýjum bílum snerti. Innlent 25.7.2006 21:26
Nýr spítali haldi áætlun Áríðandi er að undirbúningur við byggingu nýs spítala haldi áætlun, segir í ályktun frá stjórn hjúkrunarráðs Landspítalans. Stjórnin segir frestun á framkvæmdum geta haft alvarlegar afleiðingar þar sem húsnæðisskortur sé nú þegar óviðunandi. Með nýrri byggingu muni þjónusta við sjúklinga batna, hagkvæmni í rekstri aukast og aðstaða starfsmanna og nemenda verða betri. Innlent 25.7.2006 21:25