Ástin á götunni

Fréttamynd

Laporta ætlar að ná í Henry

Joan Laporta, forseti Barcelona, er sagður ætla að tryggja sér áframhaldandi setu í embætti með því að ná að lokka Thierry Henry til félagsins frá Arsenal, ef marka má frétt frá The Daily Star. Sú staðreynd að Henry hefur neitað að ræða nýjan samning við Arsenal, hefur nú ýtt frekar undir sögusagnir um að hann sé á förum frá félaginu.

Sport
Fréttamynd

Ísland í 92. sæti á FIFA listanum

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu stendur í stað á nýja styrkleikalistanum frá FIFA, sem gefinn var út í morgun. Brasilíumenn eru enn í efsta sæti listans en Hollendingar koma þar á eftir og Tékkar eru í þriðja sætinu. Svíar eru efstir Norðurlandaþjóðanna á listanum og sitja í fjórtánda sæti, einu sæti fyrir ofan Dani.

Sport
Fréttamynd

Ronaldo handtekinn

Knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United hefur verið handtekinn og færður til yfirheyrslu vegna gruns um nauðgun. Forráðamenn Manchester United hafa enn ekki tjáð sig um málið, sem er í rannsókn.

Sport
Fréttamynd

Meistaradeildin á Sýn í kvöld

Átta leikir eru á dagskrá í Meistaradeildinni í knattspyrnu í kvöld og aðalleikur kvöldsins á Sýn er viðureign Chelsea og Real Betis, síðar um kvöldið verður svo leikur Anderlecht og Liverpool á dagskrá, en sá leikur verður í beinni á Sýn Extra. Leikirnir hefjast klukkan 18:30, en þar á undan verður upphitun með Guðna Bergs.

Sport
Fréttamynd

Rosenborg er yfir gegn Real Madrid

Nú er kominn hálfleikur í leikjunum átta í Meistaradeild Evrópu. Chelsea hefur örugga 2-0 forystu gegn Real Betis, þar sem Drogba og Carvalho skoruðu mörkin, en Real Madrid er undir 1-0 gegn Rosenborg á heimavelli.

Sport
Fréttamynd

Kerr ósáttur við uppsögnina

Brian Kerr, fráfarandi landsliðsþjálfari írska landsliðsins í knattspyrnu, sakar stjórn knattspyrnusambandsins um skammsýni eftir að honum var sagt upp störfum á dögunum og bendir á að uppsögn hans sé á skjön við stefnu sem sett hafi verið árið 2002.

Sport
Fréttamynd

Auðveldur sigur Chelsea

Chelsea burstaði Real Betis 4-0 á heimavelli sínum í kvöld. Ricardo Carvalho, Didier Drogba, Hernan Crespo og Joe Cole skoruðu mörk enska liðsins. Real Madrid valtaði yfir Rosenborg 4-1, eftir að hafa verið undir 1-0 í hálfleik.

Sport
Fréttamynd

Reyes verður ekki lengi frá

Spánverjinn Jose Antonio Reyes hjá Arsenal verður ekki eins lengi frá keppni og óttast var, eftir að hann meiddist í leiknum gegn Sparta Prag í fyrrakvöld. Talið var að hann yrði frá keppni í nokkrar vikur, en meiðslin eru ekki eins alvarleg og talið var. Hann verður þó tæplega með Arsenal gegn Manchester City á laugardaginn.

Sport
Fréttamynd

Rio tippar á Tottenham

Varnarmaðurinn Rio Ferdinand segir að kannski sé tími Tottenham kominn í ensku úrvalsdeildinni og bendir á að liðið virðist loksins að ná þeim stöðugleika sem það hafi skort á undanförnum árum. Manchester United og Tottenham mætast á Old Trafford um helgina.

Sport
Fréttamynd

Ballack lofar ákvörðun fyrir jól

Miðjumaðurinn sterki, Michael Ballack hjá Bayern Munchen, hefur lofað félaginu að hann tilkynni ákvörðun um framtíð sína fyrir jól, en hann hefur mikið verið orðaður við Manchester United eftir að samningi hans hjá þýska liðinu lýkur.

Sport
Fréttamynd

Owen meiddur á læri

Framherjinn Michael Owen hjá Newcastle er tæpur fyrir grannaslag Newcastle og Sunderland í ensku úrvalsdeildinni um helgina vegna meiðsla á læri sem hann hlaut í æfingaleik í fyrrakvöld. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kappinn meiðist á læri, en Shola Ameobi mun líklega taka stöðu hans um helgina.

Sport
Fréttamynd

Ferguson ekki kátur með jafnteflið

Alex Ferguson var ekki par hrifinn af leik franska liðsins Lille í Meistaradeildinni í gær og sagði liðið aldrei hafa reynt að vinna leikinn. Einnig þótti honum rauða spjaldið sem Paul Scholes fékk í leiknum vera ansi strangur dómur.

Sport
Fréttamynd

Giggs verður frá í nokkrar vikur

Ryan Giggs hjá Manchester United verður frá keppni í allt að sex vikur vegna kinnbeinsbrots sem hann hlaut í leiknum við Lille í Meistaradeildinni í gærkvöld og eykur þar með enn á ófarir liðsins, sem hefur verið einstaklega óheppið með meiðsli á leiktíðinni.

Sport
Fréttamynd

Melchiot meiddur

Varnarmaðurinn Mario Melchiot hjá Birmingham verður frá keppni í þrjár vikur í viðbót vegna hnémeiðsla, en hann missti af leik liðsins við grannaliðið Aston Villa um helgina. Fyrir eru þeir Stephen Clemence og David Dunne meiddir og verða frá í nokkurn tíma.

Sport
Fréttamynd

Ferguson vill hafa Keane í liðinu

Sir Alex Ferguson sagði í viðtali í gær að hann vildi hafa Roy Keane í liði sínu eins lengi og hann gæti reimað á sig skóna og hefur ekki gefið upp alla von um að halda fyrirliða liðsins hjá félaginu lengur en út þessa leiktíð.

Sport
Fréttamynd

Henry í metabækurnar

Thierry Henry varð í gærkvöldi markahæsti leikmaður Arsenal frá upphafi, þegar hann skoraði tvö mörk í sigri Arsenal á Sparta Prag í Meistaradeildinni. Hann hefur nú skorað alls 186 mörk fyrir félagið, eða einu meira en Ian Wright.

Sport
Fréttamynd

Samningur Kerr ekki endurnýjaður

Stjórn írska knattspyrnusambandsins ákvað á fundi í gær að samningur landsliðsþjálfarans Brian Kerr yrði ekki endurnýjaður og þar með er átta ára starfi hans með liðið senn lokið. Ákvörðunin kemur ekki á óvart í kjölfar þess að honum mistókst að koma írska liðinu á HM næsta sumar.

Sport
Fréttamynd

Giggs verður fyrirliði

Ryan Giggs er kominn inn í byrjunarlið Manchester United á ný og verður fyrirliði liðsins í leiknum gegn Lille í Meistaradeildinni nú á eftir. Manchester United mun spila kerfið 4-3-3 í leiknum og Darren Fletcher mun taka stöðu Park Ji-Sung á miðjunni.

Sport
Fréttamynd

Meistaradeildin á Sýn í kvöld

Nokkrir leikir fara fram í Meistaradeild Evrópu í kvöld og aðalleikur kvöldsins á Sýn verður stórleikur Bayern Munchen og Juventus, en útsending hefst klukkan 18:30. Þá verður leikur Manchester United og Lille sýndur klukkan 21:20, en hann er sýndur beint á Sýn Extra klukkan 18:30.

Sport
Fréttamynd

Cissé líklegur gegn Anderlecht

Rafael Benitez segir vel koma til greina að nýta hungur franska framherjans Djibril Cissé með því að gefa honum tækifæri í byrjunarliðinu gegn Anderlecht í Meistaradeildinni annað kvöld, en liðin eigast við í G-riðli.

Sport
Fréttamynd

Ótrúleg endurkoma Henry

Leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni er lokið og óhætt að segja að Thierry Henry hjá Arsenal hafi verið maður kvöldsins, en hann tryggði liði sínu 2-0 sigur í Prag með tveimur mörkum, eftir að hafa komið inná sem varamaður eftir aðeins fimmtán mínútna leik.

Sport
Fréttamynd

O´Leary kærður

Enska knattspyrnusambandið hefur kært David O´Leary, stjóra Aston Villa, fyrir óviðeigandi hegðun eftir að lið hans vann sigur á grönnum sínum í Birmingham í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Sport
Fréttamynd

Wenger hrósaði Henry

Arsene Wenger er yfir sig ánægður með gengi sinna manna í Arsenal í Meistaradeildinni í ár og þá ekki síður með framherja sinn Thierry Henry, sem í gærkvöld varð markahæsti leikmaður Arsenal frá upphafi þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í sigrinum á Sparta Prag.

Sport
Fréttamynd

Essien sleppur

Michael Essien, leikmaður Chelsea, sleppur við frekari refsingu frá enska knattspyrnusambandinu eftir að farið var yfir myndbandsupptökur af broti hans í leiknum gegn Bolton um helgina. Brot hans þótti ljótt og var hann talinn sleppa vel með gult spjald, en sambandinu þótti ekki fótur fyrir frekari aðgerðum í málinu.

Sport
Fréttamynd

Verða að sætta sig við fallbaráttu

Phil Neville, leikmaður Everton, segir að leikmenn liðsins verði nú að sætta sig við það að liðið sé í fallbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni, því þrátt fyrir að allir hafi beðið eftir að liðið rétti úr kútnum og færi að vinna, hefur það enn ekki gerst.

Sport
Fréttamynd

Henry kom Arsenal yfir

Thierry Henry er búinn að koma liði Arsenal yfir gegn Sparta Prag í Tékklandi, en liðin eigast við í Meistaradeildinni. Eins og fram kom í frétt hér á vefnum fyrir nokkrum mínútum, var Henry á varamannabekk liðsins í kvöld, en hann kom inná fyrir Jose Antonio Reyes eftir aðeins fimmtán mínútna leik og skoraði mark sex mínútum síðar.

Sport
Fréttamynd

Henry á bekknum hjá Arsenal

Thierry Henry verður á varamannabekknum hjá Arsenal í leiknum gegn Sparta Prag í Meistardeildinni á eftir, en Pascal Cygan og Kolo Toure verða vörninni. Þá koma þeir Robin van Persie og Gilberto aftur inn í liðið.

Sport
Fréttamynd

Wenger saknar Vieira

Arsene Wenger hefur nú í fyrsta sinn viðurkennt að kannski hafði það ekki verið mjög góð hugmynd að selja Patrick Vieira til Juventus í sumar, en bendir á að liðið hafi verið einstaklega óheppið með meiðsli.

Sport
Fréttamynd

Hálfleikur í Meistaradeildinni

Nú er kominn hálfleikur í leikjunum átta í Meistaradeild Evrópu. Aðeins fjögur mörk hafa litið dagsins ljós til þessa og þar af eru tvö þeirra í leik Bayern Munchen og Juventus, sem fyrirfram hefði ef til vill ekki verið talinn markaleikur umferðarinnar.

Sport
Fréttamynd

Xavier féll á lyfjaprófi

Portúgalski varnarmaðurinn Abel Xavier hjá Middlesbrough er kominn tímabundið leikbann í öllum keppnum, eftir að hafa fallið á lyfjaprófi sem hann fór í eftir leik Boro og Xanthi þann 29. september síðastliðinn.

Sport