Spænski boltinn
253 254 255 256 257 258 259 260 261 … 266 ›
Jafnt hjá Real Madrid og Sociedad Real Madrid náði aðeins jafntefli við Real Sociedad á heimavelli í kvöldleiknum í spænska boltanum. Ronaldo skoraði sitt 100. mark fyrir Real snemma leiks en þurfti síðar að fara af velli meiddur. Það var svo Gonzales sem tryggði Sociedad jafntefli með marki á 62. mínútu eftir skelfileg mistök Casillas í marki Madridarliðsins. Guti fékk svo að líta rauða spjaldið skömmu fyrir leikslok. Sport 8.4.2006 19:51
Real Madrid yfir gegn Sociedad Real Madrid hefur yfir 1-0 í hálfleik gegn Real Sociedad í kvöldleiknum í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en leikurinn fer fram á Bernabeu heimavelli Real Madrid. Það var brasilíski framherjinn Ronaldo sem kom heimamönnum yfir á 26. mínútu. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 8.4.2006 19:10
Eriksson hentar Real Madrid vel Danski harðjaxlinn Thomas Gravesen segir að Sven-Göran Eriksson væri kjörinn í að taka við stjórn Real Madrid þegar hann lætur af störfum sem landsliðsþjálfari Englendinga eftir HM í sumar. Forráðamenn Real Madrid eru nú að leita sér að góðum knattspyrnustjóra og er nafn Eriksson eitt þeirra sem oftast hefur verið nefnt til sögunnar að undanförnu. Sport 7.4.2006 06:27
Ronaldinho verðmætasti leikmaður heims Brasilíski knattspyrnusnillingurinn Ronaldinho hefur verið útnefndur verðmætasti knattspyrnumaður heims í ítarlegri könnun sem gerð var á dögunum og skýtur þar köppum á borð við David Beckham og Wayne Rooney ref fyrir rass. Sport 30.3.2006 17:54
Real Madrid burstaði Deportivo Real Madrid vann öruggan sigur á Deportivo La Coruna í La Liga á Spáni í dag. Madrídingar færast þar með nær erkifjendum sínum í Barcelona sem verma toppsæti deildarinnar en þeir náðu þó aðeins markalausu jafntefli gegn Malaga í gær. Sport 26.3.2006 19:01
Búinn að ákveða hver verður næsti þjálfari Forseti Real Madrid segist nú vera búinn að ákveða hvern hann geri að næsta þjálfara spænska stórveldisins, en neitar að gefa upp nafn hans. Margir af frægustu knattspyrnustjórum í Evrópu hafa verið orðaðir við stöðuna, en flestir þeirra hafa þegar neitað að vera á leið til Real Madrid. Sport 22.3.2006 19:59
Viðræður hafnar við Liverpool Umboðsmaður varnarmannsins sterka hjá Valencia, Fabio Aurelio, segist þegar vera kominn í viðræður við Liverpool um kaup á leikmanninum í sumar. Aurelio verður með lausa samninga í sumar og er því brátt laus allra mála hjá spænska félaginu. Aurelio er 26 ára gamall og hefur leikið mjög vel með Valencia í vetur. Sport 22.3.2006 17:55
Barcelona með 14 stiga forystu Meistarar Barcelona náðu í gær 14 stiga forystu í úrvalsdeildinni spænsku þegar liðið lagði Getafe 3-1 á heimavelli sínum Nou Camp. Barca lenti undir í leiknum, en jafnaði með sjálfsmarki í fyrri hálfleik og það var svo Kamerúninn skæði Samuel Eto´o sem kláraði leikinn með tveimur mörkum í síðari hálfleiknum. Sport 22.3.2006 00:20
Larsson fæst ekki til að vera áfram Frank Rijkaard, knattspyrnustjóri Barcelona segist ásamt öllu starfsliði sínu hafa gert ótal árangurslausar tilraunir til að sannfæra sænska sóknarmanninn Henrik Larsson um að vera eitt ár í viðbót í herbúðum liðsins, en Larsson ætlar sem kunnugt er að ganga í raðir Helsingborg í heimalandi sínu í sumar. Sport 21.3.2006 18:04
Eto'o ekki falur fyrir neina fjárhæð Frank Rijkaard, knattspyrnustjóri Barcelona segir að kamerúnski sóknarmaðurinn Samuel Eto'o sé ekki falur, sama hvaða fjárhæð verði boðin í leikmanninn. Sögusagnir herma að Chelsea hafi boðið 50 milljónir punda í leikmanninn þegar liðin mættust í Meistaradeildinni fyrr í mánuðinum. Sport 19.3.2006 14:35
Barcelona jók forystuna á toppnum Barcelona jók forystu sína á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld með 2-0 sigri á Real Sociedad. Henrik Larsson skoraði fyrra mark Barca á 8. mínútu og Samuel Eto'o hið síðara á 51. mínútu. Diego Forlan skoraði sigurmark Villareal sem lagði Atlético Madrid 1-0 í deildinni í kvöld og að lokum vann Deportivo La Coruña 2-3 útisigur á Getafe. Sport 18.3.2006 21:33
Útilokar ekki að snúa aftur Vicente del Bosque, fyrrum stjóri Real Madrid, segist alls ekki útiloka að taka aftur við liðinu ef sá möguleiki kæmi upp á borðið, en nú stendur leitin að næsta þjálfara félagsins sem hæst. Fel Bosque náði ágætum árangri með liðið á sínum tíma, en var engu að síður rekinn eftir að hafa gert liðið að spænskum meistara árið 2003. Sport 16.3.2006 16:13
Osasuna lagði Barcelona Spútniklið Osasuna vann góðan 2-1 sigur á Barcelona í kvöldleiknum í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld, en Börsungar misstu tvö menn af velli með rauð spjöld í leiknum. Valdo og Punal skoruðu mörk Osasuna, en Henrik Larsson minnkaði muninn fyrir gestina, sem hafa þó enn 9 stiga forskot á toppi deildarinnar. Osasuna situr sem fyrr í fjórða sætinu. Sport 12.3.2006 22:15
Ronaldinho hefur engan áhuga á Chelsea Besti knattspyrnumaður í heimi, Ronaldinho, segist ekki hafa neinn áhuga á því að ganga til liðs við Chelsea. Barcelona tekur á móti Englandsmeisturunum í seinni leik liðanna í Meistaradeildinni á morgun. Sport 6.3.2006 00:21
Sevilla í 6. sætið Sevilla komst í dag í 6. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með 2-1 sigri á Athletic Bilbao. Freddie Kanoute, fyrrverandi leikmaður West Ham skoraði sigurmark Sevilla en vandræði Bilbao halda áfram og er liðið í fallsæti eða þriðja neðsta sæti. Sport 5.3.2006 20:58
Barcelona heldur 10 stiga forystu á Spáni Barcelona og Real Madríd unnu bæði mótherja sína í spænsku knattspyrnunni í gærkvöldi. Barcelona lagði Deportivo La Coruña, 3-2 seint í gærkvöldi eftir að Real Madrid hafði lagt granna sína í Atletico, 2-1. Samuel Etoo skoraði sigurmark Börsunga á 61. mínútu. Sport 5.3.2006 14:08
Real Madrid vann nágrannaslaginn Real Madrid vann 2-1 sigur á Atletico Madrid í nágrannaslagnum í spænska fótboltanum í kvöld. Liðið er nú í 2. sæti deildarinnar, átta stigum á eftir toppliði Barcelona sem mætir Deportivo kl 21 í kvöld. Antonio Cassano og Julio Baptista skoruðu mörk Real Madrid. Tveimur öðrum leikjum er lokið í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Cadiz lagði Espanyol 2-0 og Villareal vann 3-2 sigur á Alaves. Sport 4.3.2006 21:05
Tveir stórleikir í beinni frá Spáni í kvöld 26. umferðin í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hefst í kvöld. Klukkan 19 mætast grannaliðin í Madríd, Real og Atletico og verður sýndur beint á Sýn. Strax á eftir verður skipt yfir til Barcelona þar sem Barcelona mætir Deportivo La Coruna. Sport 4.3.2006 16:37
Borgarstjórinn í Zaragoza býður Eto´o í heimsókn Juan Alberto Belloch, borgarstjóri í Zaragoza á Spáni brást hinn versti við þegar hann heyrði að stuðningsmenn knattspyrnuliðsins þar í borg hefðu sýnt Samuel Eto´o hjá Barcelona kynþáttafordóma á leik liðanna um síðustu helgi. Belloch hefur því sent knattspyrnumanninum bréf og boðið honum í sérstaka heimsókn til borgarinnar. Sport 3.3.2006 17:34
Ronaldo settur út úr liðinu Brasilíski framherjinn Ronaldo verður ekki í leikmannahópi Real Madrid í grannaslag liðsins við Atletico Madrid um helgina og talið er að það sé að frumkvæði forseta félagsins sem hefur boðað nýja stefnu í leikmannamálum hjá félaginu. Sport 3.3.2006 16:38
Tiltekt í vændum hjá Real Fernando Martin, sem á dögunum tók við embætti forseta Real Madrid í kjölfar afsagnar Florentino Perez, segist ekki kæra sig um að vera með lið fullt af milljónamæringum sem ekki leggi sig fram á knattspyrnuvellinum. Sport 2.3.2006 19:25
Sainz sækist eftir forsetaembætti hjá Real Madrid Hinn fyrrum tvöfaldi heimsmeistari í rallakstri, Carlos Sainz, er alvarlega að íhuga að bjóða sig fram sem næsta forseta knattspyrnuliðs Real Madrid eftir að Florentino Perez sagði af sér á dögunum. Sport 1.3.2006 15:28
Englendingar taka vel á kynþáttafordómum Spænsku leikmennirnir í ensku úrvalsdeildinni hafa bent á að spænsk knattspyrnuyfirvöld ættu að taka sér ensku úrvalsdeildina til fyrirmyndar þegar kemur að því að taka á kynþáttafordómum í deildarkeppninni á Spáni, en áhorfendur þar í landi voru enn í fréttunum um helgina vegna kynþáttafordóma. Sport 1.3.2006 15:08
Ekki liðtækur í heimanáminu Knattspyrnuhetjan David Beckham ætti líklega að halda sig við knattspyrnuiðkun á meðan hann hefur tök á því ef marka má grein í breska blaðinu Mail on Sunday, því þar kemur fram að Beckham treysti sér ekki til að hjálpa syni sýnum Brooklin við heimanámið. Brooklyn er sex ára gamall. Sport 27.2.2006 21:11
Florentino Perez segir af sér Florentino Perez, forseti Real Madrid, sagði af sér í kvöld og mun fyrrum Fernando Martin, fyrrum aðstoðarforseti félagsins taka við embætti hans. Real hefur ekki unnið titil síðan 2003 í stjórnartíð Perez, sem þótti réttast að segja af sér þar sem árangurinn hefur verulega látið á sér standa undanfarið. Sport 27.2.2006 21:22
Hefði gengið af velli með Eto´o Brasilíumaðurinn Ronaldinho segir að ef félagi hans Samuel Eto´o hjá Barcelona hefði látið verða af því að ganga af velli í leiknum gegn Real Zaragoza um helgina, hefði hann sjálfur farið með honum. Ronaldinho fordæmir harðlega þá kynþáttafordóma sem viðgangast í spænska boltanum og segir tíma til kominn til að binda enda á þá. Sport 27.2.2006 20:40
Mallorca - Real Madrid í beinni í kvöld Leikur Real Mallorca og Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 17:50. Madrid er enn í baráttu um Meistaradeildarsæti í úrvalsdeildinni, en Mallorca hefur aftur gengið afleitlega og því hlýtur pressan að vera mikil á gestina að klára leikinn. Sport 26.2.2006 09:53
Kynþáttafordómar skyggðu á sigur Barca Barcelona bar sigurorð af Real Zaragoza 2-0 í kvöldleiknum í spænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi, en fáránleg framkoma stuðningsmanna Zaragoza í garð framherjans Samuel Eto´o hjá Barcelona var til háborinnar skammar. Dómari leiksins og samherjar hans náðu naumlega að hindra að Eto´o gengi af leikvelli vegna kynþáttafordóma. Sport 26.2.2006 07:45
Zaragoza - Barcelona í beinni á Sýn Leikur Real Zaragoza og Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan 20:50 í kvöld. Zaragoza mun eflaust reyna að endurtaka leikinn frá því liðin mættust í spænska bikarnum fyrir mánuði, þegar Zaragoza sigraði 4-2 í hörkuleik en það var stærsta tap Barca á leiktíðinni. Sport 25.2.2006 19:36
Ósáttur við stuðningsmennina Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá Real Madrid hefur látið í veðri vaka að hann fari frá félaginu í sumar því honum finnist stuðningsmenn liðsins aldrei hafa tekið sér opnum örmum. Sport 20.2.2006 16:39