Ítalski boltinn
186 187 188 189 190 191 192 193 194 … 198 ›
Gamlir refir íhuga að hætta Ítalska dagblaðið Gazzetta dello Sport greinir frá því í dag að einhver skörð verði væntanlega höggvin í stórlið AC Milan í vor, því þeir Paolo Maldini og Alessandro Corstacurta hallist að því að leggja skóna á hilluna. Þá er einnig reiknað með því að brasilíski bakvörðurinn Cafu sé að spila sína síðustu leiktíð með liðinu. Fótbolti 22.11.2006 14:40
Engar væntingar skiluðu okkur HM-titlinum Marcello Lippi, ítalski þjálfarinn sem stýrði þjóð sinni til sigurs á HM í Þýskalandi í sumar, segir að litlar væntingar hafi átt stærstan þátt í að Ítalir urðu heimsmeistarar. “Það var engin pressa á okkur og það hjálpaði gríðarlega,” sagði Lippi við ítalska fjölmiðla í gær. Fótbolti 19.11.2006 23:21
Inter með þriggja stiga forystu Inter Milan er með þriggja stiga forystu á toppi ítölsku A-deildarinnar í fótbolta eftir leiki dagsins. Hernan Crespo tryggði liðinu 1-0 sigur á Reggina en Roma burstaði Catania, 7-0. Fótbolti 19.11.2006 16:17
Cannavaro verður valinn bestur Ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro verður valinn leikmaður ársins af franska fótboltatímaritinu France Football, að því er Ramon Calderon, forseti Real Madrid, heldur fram. Fótbolti 18.11.2006 12:47
Ég á skilið að fá gullknöttinn Fabio Cannvaro, leikmaður Real Madrid og ítalska landsliðsins, segist vonast til að ítalskur leikmaður verði sæmdur gullknettinum þegar hann verður afhentur fljótlega, en hann og Gianluigi Buffon markvörður eru báðir tilnefndir. Fótbolti 15.11.2006 16:09
Palermo á toppnum Palermo situr í toppsæti ítölsku A-deildarinnar eftir leiki dagsins, en liðið vann 3-0 sigur á Torino í dag. Í kvöld mættust Parma og Inter í æsilegum og dramatískum leik, þar sem Inter tryggði sér sigur á lokamínútunum. Fótbolti 12.11.2006 21:32
Totti tryggði Roma sigur á Milan Francesco Totti var hetja Roma í kvöld þegar hann skoraði bæði mörk Roma í dramatískum 2-1 útisigri liðsins á AC Milan. Fyrir vikið er Roma aðeins einu stigi á eftir toppliðunum Inter og Palermo. Á sama tíma vann Fiorentina 3-1 sigur á Atalanta. Fótbolti 11.11.2006 22:06
Rændur og barinn af þjófum í Róm Dino Zoff, fyrrum fyrirliði ítalska landsliðsins í knattspyrnu, lenti í óskemmtilegri lífsreynslu þegar hann var á göngu með konu sinni í Róm á laugardagskvöldið. Óprúttnir náungar höfðu af þeim öll þeirra verðmæti og gáfu Zoff um leið vænt glóðurauga. Fótbolti 6.11.2006 10:33
Inter lagði Milan í æsilegum leik Inter Milano lagði granna sína í AC Milan 4-3 í æsilegu uppgjöri erkifjendanna í ítölsku A-deildinni í gær. Crespo, Stankovic og Ibrahimovic komu Inter í 3-0 í upphafi síðari hálfleiks áður en Seedorf minnkaði muninn fyrir Inter. Materazzi kom þá Inter í 4-1 og var rekinn af velli fyrir fagnaðarlæti sín og í kjölfarið minnkuðu þeir Gilardino og Kaka muninn fyrir AC. Fótbolti 29.10.2006 16:18
Dómurinn enn mildaður Refsing þriggja ítalskra knattspyrnufélaga sem gert var að sæta refsingu fyrir hlut sinn í knattspyrnuskandalnum þar í landi í sumar var í kvöld mildaður enn einu sinni. Átta stiga refsing AC Milan mun standa áfram, en Lazio, Juventus og Fiorentina fá refsingar sínar mildaðar og er þessu ljóta máli nú formlega lokið þar sem ekki verður um frekari áfrýjun að ræða. Nánari upplýsinga er að vænta innan skamms. Fótbolti 27.10.2006 21:05
Pressan er öll á Milan Framherjinn Hernan Crespo segir að pressan sé öll á liði AC Milan fyrir risaslag grannliðanna AC og Inter í ítölsku A-deildinni á laugardaginn. Inter er á toppi deildarinnar með 18 stig úr 8 leikjum, en AC er þar 11 stigum á eftir í 12. sæti og þá á eftir að reikna með stigarefsinguna úr skandalnum í sumar. Fótbolti 26.10.2006 17:56
Inter burstaði Livorno Heil umferð var á dagskrá í ítölsku A-deildinni í fótbolta í kvöld. Efsta liðið Inter Milan vann auðveldan 4-1 sigur á Livorno þar sem Ibrahimovic, Cruz og Materazzi skoruðu fyrir meistarana en fyrsta mark liðsins var raunar sjálfsmark. Fótbolti 25.10.2006 21:04
Ekki tilbúinn að fyrirgefa Zidane strax Ítalski landsliðsmaðurinn Marco Materazzi segist enn ekki vera tilbúinn til að fyrirgefa Zinedine Zidane fyrir að skalla sig í úrslitaleik HM í sumar. Hann segir þó að eflaust muni hann gera það í framtíðinni ef rétt tækifæri gefst. Fótbolti 25.10.2006 18:29
Enn fækkar áhorfendum á Ítalíu Svo virðist sem knattspyrnuáhugamenn á Ítalíu séu að snúa baki við keppni í A deildinni þar í landi ef marka má nýlega könnun blaðsins Gazzetta dello Sport, en sigur Ítala á HM í sumar hefur ekki komið í veg fyrir að áhorfendatölur í deildinni hafa lækkað níunda keppnistímabilið í röð. Fótbolti 25.10.2006 16:17
Adriano farinn í frí til heimalandsins Brasilíska framherjanum Adriano hjá Inter Milan hefur verið gefið vikufrí af forráðamönnum félagsins sem hann mun nota til að fara til heimalandsins í læknis- og sálfræðimeðferð. Adriano hefur alls ekki náð sér á strik á síðustu mánuðum og hefur ekki skorað mark síðan í vor. Fótbolti 24.10.2006 16:01
Buffon ætlar ekki að fara til Chelsea Umboðsmaður ítalska markvarðarins Gianluigi Buffon segir skjólstæðing sinn ekki ætla að ganga í raðir Englandsmeistara Chelsea í janúar eins og breskir fjölmiðlar hafa haldið fram í dag. Umboðsmaðurinn segir Buffon ekki ætla að fara frá félaginu í janúar, enda hefði hann farið strax frá Juve eftir að liðið féll í B-deildina ef hann hefði ætlað sér það á annað borð. Enski boltinn 20.10.2006 14:27
Ekki að taka við Inter Milan Fjölmiðlar á Ítalíu hafa gert því skóna undanfarna daga að Sven-Göran Eriksson muni verða næsti þjálfari Inter Milan ef Roberto Mancini nær ekki að koma liðinu á sigurbraut hið snarasta. Eriksson vísar þessu á bug og segist styðja fyrrum aðstoðarmann sinn hjá Lazio heilshugar. Fótbolti 18.10.2006 16:20
Ætlar að spila aftur fyrir Rangers Gennaro Gattuso hjá AC Milan segist ákveðinn í að spila aftur með liði Glasgow Rangers á ný áður en hann leggur skóna á hilluna, en þessi magnaði miðjumaður var aðeins 19 ára gamall þegar Walter Smith keypti hann frá Perugia á sínum tíma og gaf honum tækifæri með Rangers. Fótbolti 15.10.2006 17:29
Inter á toppinn Inter Milan skellti sér á toppinn í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í dag með 2-1 sigri á Catania í dag. Það var Dejan Stankovic sem skorað bæði mörk Inter í dag og eru ítölsku meistararnir þar með komnir með 14 stig eftir 6 leiki og hafa 2 stiga forskot á Roma sem tapaði 1-0 úti gegn Reggina. Fótbolti 15.10.2006 17:39
Roma á toppinn Roma skellti sér á toppinn í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið lagði Empoli 1-0 á heimavelli sínum með marki frá Vincenzo Montella. Meistarar Inter þurftu að láta sér lynda 1-1 jafntefli á útivelli gegn Cagliari og AC Milan tapaði sömuleiðis stigum þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Siena. Fótbolti 1.10.2006 19:04
Sigurganga Juventus heldur áfram David Trezeguet skoraði tvö mörk annan leikinn í röð fyrir lið Juventus þegar það vann 2-0 sigur á Piacenza í dag og er því aðeins með fjögur stig í mínus í deildinni og er því 15 stigum á eftir efsta liði deildarinnar Brescia, sem gerði jafntefli í dag. Trezeguet skoraði líka tvö mörk um síðustu helgi í 4-0 sigri á Modena, en það var gamla kempan Alessandro Del Piero sem lagði upp bæði mörk Frakkans í dag. Fótbolti 30.9.2006 20:39
Kominn með HM húðflúr Varnarmaðurinn umdeildi Marco Materazzi hjá Inter Milan er búinn að fá sér enn eitt húðflúrið og er það minnisvarði um sigur Ítala á HM í sumar. Materazzi komst þar eins og allir vita í heimsfréttirnar með því að verða fyrir reiðum skalla Zinedine Zidane, en ítalski varnarmaðurinn skoraði líka mark Ítala í leiknum dramatíska. Fótbolti 28.9.2006 19:32
Inter skaust á toppinn Ítalíumeistararnir í Inter unnu 4-3 sigur á Chievo í gær í ótrúlegum leik á heimavelli sínum. Með þessum sigri komst Inter á toppinn en það munaði litlu að liðið glopraði niður forskoti sínu eftir að hafa komist í 4-0. Á seinasta stundarfjórðungi leiksins skoraði Chievo þrjú mörk og fékk færi í viðbótartíma til að ná jafntefli. Fótbolti 24.9.2006 19:25
Juventus heldur mér nauðugum Franski framherjinn David Trezeguet heldur því fram við fjölmiðla í heimalandi sínu að forráðamenn Juventus haldi honum nauðugum hjá félaginu eftir að það féll í B-deildina á Ítaliu í kjölfar þátttöku þess í knattspyrnuskandalnum fræga. Fótbolti 15.9.2006 16:39
Jafntefli hjá Juve í fyrsta leik Stjörnum prýtt lið Juventus náði aðeins 1-1 jafntelfi gegn Rimini í fyrsta leik sínum í Serie-B deildinni á Ítalíu í dag. Til að gera jafnteflið enn meira niðurlægjandi var Rimini einum leikmanni færra stóran hluta leiksins. Fótbolti 9.9.2006 18:57
Framlengir við Milan til 2011 Ítalski landsliðsmaðurinn Andrea Pirlo hjá AC Milan hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2011. Gamli samningurinn hans náði til ársins 2008, en greinilegt er að félagið vill ekki missa þennan öfluga miðjumann úr röðum sínum. Þá framlengdi Georgíumaðurinn Kakha Kaladze einnig samning sinn við Milan á dögunum og hefur hann sömuleiðis bundið sig til ársins 2011. Fótbolti 8.9.2006 13:16
Útskrifaður af spítala Fyrrum landsliðsmaðurinn Gianluca Pessotto hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi í Tórínó eftir meinta sjálfsvígstilraun hans í júní. Pessotto starfaði sem framkvæmdastjóri Juventus og slasaðist lífshættulega þegar hann stökk út um glugga í höfuðstöðvum liðsins. Ítalska blaðið Gazzetta dello Sport segir að Pessotto hafi brosað út að eyrum og gert að gamni sínu þegar hann var fluttur heim á leið með sjúkrabifreið í dag. Fótbolti 5.9.2006 15:47
Pongolle til Spánar Franski framherjinn Florent Sinama-Pongolle hjá Liverpool er genginn í raðir spænska liðsins Recreativo sem vann sér sæti í úrvalsdeildinni í vor. Pongolle hefur skrifað undir eins árs samning við ítalska liðið, en hann náði ekki að festa sig í sessi hjá Liverpool og var hjá Blackburn sem lánsmaður á síðustu leiktíð. Fótbolti 30.8.2006 21:39
Juventus mætir Rimini í fyrsta leik Í dag var loksins gefin út leikjaniðurröðun í ítalska boltanum, en miklar tafir hafa orðið á því í kjölfar knattspyrnuskandalsins sem tröllriðið hefur Ítalíu í sumar. Stórlið Juventus spilar sinn fyrsta leik í B-deildinni á útivelli 9 september gegn smáliði Rimini sem var í fallbaráttu í deildinni á síðustu leiktíð. Fótbolti 30.8.2006 21:25
Genginn í raðir Atalanta Ítalski framherjinn Christian Vieri hefur gengið frá samningi við lið Atalanta í A-deildinni. Vieri var síðast á mála hjá Sampdoria, en hefur lítið geta spilað undanfarið vegna hnémeiðsla. Hjá Atalanta fær þessi 33 ára gamli fyrrum dýrasti leikmaður heims nokkuð sérstakan samning, því hann spilar fyrir aðeins 1500 evrur á mánuði og fær svo greitt sérstaklega fyrir spilaða leiki og mörk sem hann skorar. Fótbolti 29.8.2006 21:10
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent