Ítalski boltinn
191 192 193 194 195 196 197 198 … 198 ›
Öruggur sigur Inter á Lecce Inter Milan vann auðveldan sigur á Lecce með þremur mörkum gegn engu í ítölsku fyrstu deildinni í fótbolta í gær og Parma marði 1-0 sigur á Empoli. Inter er efst í deildinni með sjö stig en það gæti breyst í dag þegar þriðju umferðinni lýkur. Sport 14.10.2005 06:43
Óvænt tap hjá AC Milan AC Milan tapaði óvænt fyrir Sampdoria í ítalska fótboltanum í dag, 2-1 þar sem nýliðinn Alberto Gilardino skoraði sitt fyrsta mark fyrir Milan. Leikurinn markaði tvöföld tímamót fyrir fyrirliðann Paolo Maldini sem var að leika sinn 800. leik fyrir félagið auk þess sem hann jafnaði leikjamet Dino Zoff sem lék 570 leiki í efstu deild á Ítalíu. Sport 14.10.2005 06:43
Juventust burstaði Empoli Juventus, Livorno og Udinese eru einu liðin með fullt hús stiga eftir tvær umferðir í ítölsku fyrstu deildinni í knattspyrnu. Juve burstaði Empoli 4-0 í gær. Frakkinn Patrick Viera skoraði fyrsta mark sitt fyrir Juve og landi hans, David Trezeguet, skoraði tvívegis. Sport 14.10.2005 06:42
Þrír leikir á Sýn í dag Þrír leikir verða sýndir beint á Sýn í dag og í kvöld. Klukkan 16 hefst leikur Palermo og Internazionale í ítölsku úrvalsdeildinni. Strax á eftir klukkan 18 verður skipt yfir til Madrídar á Spáni en þá hefst leikur Real Madríd og Celta Vigo. Sport 14.10.2005 06:41
Rekinn eftir einn leik Attilio Tesser komst ekki á spjöld sögunnar sem þjálfari Cagliari í ítölsku knattspyrnunni, því í gær var hann rekinn úr starfi sínu eftir að hafa stýrt liðinu í aðeins einum leik. Sport 13.10.2005 19:46
Collina hættur að dæma Ítalski dómarinn Pierluigi Collina er hættur að dæma, það tilkynnti hann forráðamönnum ítalska knattspyrnusambandsins í dag. Hann hafði nýverið gert auglýsingasamning við bílaframleiðandann Opel sem einnig styrkir A.C. Milan en samningurinn var afar illa séður af ítölsku knattspyrnuforustunni og aðdáendum annara liða en A.C Milan. Sport 14.10.2005 06:39
Inter meistari meistaranna Internazionale í Mílano sigraði Juventus í framlengdum leik í ítölsku meistarakeppninni. Argentínumaðurinn Juan Sebastian Veron skoraði sigurmarkið á 6. mínútu í framlengingu. Keppni í ítölsku úrvalsdeildinni hefst um næstu helgi. Sport 13.10.2005 19:43
Abbiati til Juventus að láni Markvörðurinn Christian Abbiati er genginn til liðs við Juventus að láni frá A.C. Mílan. Gianluigi Buffon, aðalmarkvörður Juventus meiddiist illa í leik gegn A.C. Mílan um helgina þegar hann fór úr axlarlið eftir samstuð við Kaká leikmann Mílan og því þurfti Juventus sárlega á markverði að halda. Sport 13.10.2005 19:42
Buffon frá í átta vikur Gianlugi Buffon, markvörður Juventus og ítalska landsliðsins er meiddur og mun því missa af upphafi leiktíðarinnar. Buffon fór úr axlarlið í leik gegn A.C. Milan um helgina og verður frá keppni í 8 vikur. Sport 13.10.2005 19:41
AC Milan vann Berlusconi-bikarinn AC Milan sigraði Juventus 2-1 í Berlusconi-bikarnum í fótbolta í gær. Patrick Viera kom Juventus yfir en Brasilíumennirnir Kaka og Serginho skoruðu fyrir AC Milan. Tveir leikmenn Juventus fóru meiddir af velli, Pavel Nedved og Gianluigi Buffon. Ítalska úrvalsdeildin hefst eftir hálfan mánuð. Sport 13.10.2005 19:41
Inter Milan loks að landa Figo Portúgalski knattspyrnusnillingurinn Luis Figo virðist vera búinn að ná samkomulagi við Inter Milan á Ítalíu um að ganga til liðs við félagið ef marka má spænska fjölmiðla í kvöld. Útvarpsstöðin Marca í Madrid segir að Figo muni fljúga til Mílanóborgar á morgun fimmtudag til þess að gangast undir læknisskoðun og skrifa svo undir 2 ára samning. Sport 13.10.2005 19:37
Walter Samuel til Inter Argentínski varnarmaðurinn Walter Samuel, er genginn til liðs við ítölsku bikarmeistaranna í Inter Milan frá spænska risanum Real Madrid. Samuel er 27 ára gamall og lék afleitlega með Real á síðustu leiktíð. Sport 13.10.2005 19:36
Mutu skoraði Rúmenski landsliðsmaðurinn Adrian Mutu skoraði í fyrrakvöld sitt fyrsta mark fyrir Juventus sem sigraði Cesena naumlega í æfingaleik 1-0. Mutu skoraði sigurmarkið á 88.mínútu í leik sem fer ekki í sögubækurnar að öðru leyti. Mutu kom til Juventus í janúar á frjálsri sölu eftir að hafa afplánað leikbann vegna lyfjamisnotkunar. Sport 13.10.2005 19:35
Gilardino leikur með Milan í kvöld Markahrókurinn Alberto Gilardino sem gekk til liðs við A.C. Milan frá Parma í síðustu viku fyrir 17.2 milljónir punda leikur sinn fyrsta leik fyrir félagið í kvöld. Milan mætir Chicago Fire í kvöld vestur í Bandaríkjunum þar sem liðið er í æfingaferð. Sport 13.10.2005 19:35
Inzaghi ætlar að hjálpa Gilardino Filippo Inzaghi, sóknarmaður AC Milan, segist ekki geta beðið eftir því að fá að spila við hlið Alberto Gilardino sem nýgenginn er í raðir félagsins. Gilardino var keyptur frá Parma fyrir 17,2 milljónir punda en hann er 23 ára. Inzaghi segist vera rétti maðurinn til að kenn honum enn meira. Sport 13.10.2005 19:35
Inter aflýsir vegna hryðjuverka Ítalska knattspyrnuliðið Inter Milan aflýsti í dag fyrirhugaðri æfingaferð sinni til Englands af öryggisástæðum í ljósi hryðjuverkanna í London. Liðið átti að leika við Portsmouth, Leicester, Norwich og Crystal Palace á Englandi á komandi vikum. Ákvörðun félagsins hefur valdið miklum vonbrigðum og reiði meðal félaganna fyrrnefndu. Sport 13.10.2005 19:34
Schevchenko ekki á förum Andriy Schevchenko, knattspyrnumaður Evrópu árið 2004, er ekki á förum frá A.C.Milan eins og fjölmiðlar greindu frá í gær. "Ég hef alltaf sagt Roman Abramovich að það sé ekkert hægt að ræða um félagaskipti yfir í Chelsea. A.C.Milan vill mig og ég vil Milan. Það er nóg fyrir mig," sagði Schevchenko. Sport 13.10.2005 19:33
Gilardinho til AC Milan Alberto Gilardinho er gengin í raðir AC milan fyrir um 2 milljarða króna. Hinn 23 ára gamli Gilardinho kemur frá Parma og hefur verið næst markahæsti leikmaður ítölsku seríu A deildinni undanfarin 2 ár. Sport 13.10.2005 19:32
Gilardino til A.C. Milan Markahrókurinn Alberto Gilardino er genginn til liðs við A.C. Milan frá Parma fyrir 17.2 milljónir punda. Gilardino, 23 ára, gerði 23 mörk á nýafstöðnu tímabili fyrir Parma og hélt nánast Parma í A deild eins síns liðs. Sport 13.10.2005 19:32
Jon Dahl Tomasson til Stuttgart Danski landsliðsmaðurinn, Jon Dahl Tomasson er genginn til liðs við þýska liðið Stuttgart frá A.C. Milan. Það hafa orðið miklar breytingar hjá Stuttgart í sumar því Matthias Sammer þjálfari liðsins á síðustu leiktíð er farinn og við starfi hans hefur tekið Giovanni Trappatoni. Sport 13.10.2005 19:31
Viera verður okkur mikilvægur Fabio Capello, þjálfari Juventus, segir að Patrick Vieira verði algjör lykilmaður í liði sínu á næstu leiktíð og hlakkar til að sjá hann spila með liðinu. Sport 13.10.2005 19:31
Vieira á förum til Juventus Arsenal hefur staðfest að félagið hefur tekið tilboði frá ítalska stórliðinu Juventus í fyrirliða sinn Patrick Vieira. Tilboðið hljóðar upp á 13,75 milljónir punda í þennan 29 ára miðjumann. Sport 13.10.2005 19:30
Beretta tekinn við Parma Mario Beretta hefur verið ráðinn nýr þjálfari ítalska liðsins Parma. Beretta var rekinn frá Chievo seint á síðasta tímabili eftir að liðið var komið niður í fallsvæðið. Það stoppaði þó ekki Parma. Sport 13.10.2005 19:30
Beretta tekinn við Parma Mario Beretta hefur verið ráðinn nýr þjálfari ítalska liðsins Parma. Beretta var rekinn frá Chievo seint á síðasta tímabili eftir að liðið var komið niður í fallsvæðið. Það stoppaði þó ekki Parma. Sport 13.10.2005 19:30
Figo til Inter? Massimo Moratti, forseti itölsku bikarmeistaranna í Inter Milan, vill fá Portúgalann Luis Figo frá Real Madrid. Figo, sem Evrópumeistarar Liverpool höfði áhuga á allt þar til í gær, er nú að leita sér að nýju liði því krafta hans er ekki lengur óskað á Bernabeau. Sport 13.10.2005 19:30
Vieira á leiðinni til Torínó Ítalska stórliðið Juventus er ákveðið í því að klófesta miðjumanninn Patrick Vieira frá Arsenal. Viðræður milli félaganna tveggja hafa staðið yfir undanfarna daga og talað er um að þær þokist í rétta átt fyrir Juventus. Samkvæmt fréttum er Juventus búið að bjóða átta milljónir punda í leikmanninn. Sport 13.10.2005 19:29
Crespo spilar með Chelsea Argentínski sóknarmaðurinn Hernan Crespo verður í herbúðum Englandsmeistara Chelsea á næstu leiktíð en hann var í láni hjá AC Milan á síðustu leiktíð. Milan keypti Christian Vieri á dögunum en hann lék með Inter á síðasta tímabili. Sport 13.10.2005 19:28
AC Milan fær Christian Vieri AC Milan gerði í dag 2 ára samning við ítalska landsliðssóknarmanninn Christian Vieri en aðeins nokkrir dagar eru síðan hann fékk sig lausan undan samningi hjá erkifjendunum í Inter Milan. Sport 13.10.2005 19:28
Roma má ekki kaupa í eitt ár Alþjóða knattspyrnusambandið hefur bannað ítalska liðinu Roma að kaupa leikmenn í eitt ár. Romaliðið braut reglur þegar það keypti franska leikmanninn Philp Mexes í fyrra. Mexes var búinn að ganga frá samningi við franska liðið Auxerre en forráðamenn Roma settu sig í samband við leikmanninn og hvöttu hann til þess að hætta við félagaskiptin. Sport 13.10.2005 19:27
Samningi Vieris rift Ítalska knattspyrnuliðið Internazionale hefur rift samningi við framherjann Christian Vieri. Vieri átti ár eftir af samningi en það varð að samkomulagi milli leikmannsins og félagsins að leiðir myndu skilja. Sport 13.10.2005 19:27
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent