Vladimír Pútín
2 3 4 5 6 7 8 … 8 ›
Forysta Rússa í öryggisráðinu „versti brandari í heimi“ Rússar sitja nú í stóli forseta öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þrátt fyrir mótmæli Úkraínumanna og annarra landa. Síðast þegar Rússar gegndu sama embætti réðust þeir inn í Úkraínu. Erlent 1.4.2023 11:06
Kallar eftir samstöðu með Pútín Rússar þurfa að fylkja liði um Vladimír Pútín, forseta Rússlands, því stríðsrekstri ríkisins mun ekki ljúka í bráð. Þetta segir talsmaður Pútíns sem segir einnig að Rússar eigi í stríði við Vesturlönd. Erlent 29.3.2023 13:17
Funduðu í fjóra og hálfan tíma Xi Jinping og Vladimír Pútín, forsetar Kína og Rússlands og tveir valdamestu einvaldar heimsins, ræddu saman í einrúmi í fjóra og hálfan tíma eftir að Xi lenti í Moskvu í gær. Fyrir fundinn í gær lofuðu forsetarnir vinasamband ríkjanna tveggja og hvorn annan. Erlent 21.3.2023 10:26
Xi lentur í Moskvu Xi Jinping, forseti Kína, er lentur í Moskvu. Hann mun eiga óformlegan fund með Vladimir Pútín Rússlandsforseta í dag og í kvöld munu þeir snæða saman kvöldverð. Erlent 20.3.2023 11:14
Pútín fór óvænt til Maríupól í nótt Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fór í óvænta heimsókn til Maríupól í Úkraínu í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem Pútín heimsækir nýlega hernumin svæði í Úkraínu, en hann ferðaðist til Krímskaga í gær. Erlent 19.3.2023 08:05
Pútin heldur upp á ólöglega innlimun Krímskaga Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lenti óvænt á Krímskaga í dag. Þangað ku hann vera mættur til að halda upp á að níu ár eru frá „endursameiningu“ Krímskaga og Rússlands. Erlent 18.3.2023 14:56
Biden segir augljóst að Pútín sé sekur um stríðsglæpi Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fagnar því að dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafi í gær gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Pútín er sakaður um að bera ábyrgð á því að fjöldi barna hafi verið flutt frá Úkraínu til Rússlands en Biden sagði augljóst að svo væri. Erlent 18.3.2023 09:57
Gefa út handtökuskipun á hendur Pútín Dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafa gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Handtökuskipunin er gefin út vegna fjölda úkraínska barna sem rænt hefur verið til Rússlands. Erlent 17.3.2023 15:23
Xi heimsækir Pútín eftir helgi Xi Jinping Kínaforseti mun halda í opinbera heimsókn til Rússlands í næstu viku þar sem hann mun meðal annars eiga fundi með Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Erlent 17.3.2023 07:45
Pútín dásamaður á mikilli hyllingarsamkomu í Moskvu Biden Bandaríkjaforseti fundaði í dag í Varsjá með leiðtogum níu aðildarríkja NATO í austur Evrópu um varnir álfunnar og stuðning við Úkraínu. Pútín reyndi að fá Kínverja til liðs við sig og mætti síðan á hyllingarsamkomu með stuðningsmönnum sínum. Erlent 22.2.2023 19:05
Putin segir Rússland fórnarlamb innrásar Vesturlanda Rússlandsforseti lýsir Rússlandi sem algjöru fórnarlambi stríðins í Úkraínu, þar sem íbúar væru gíslar stjórnar nýnasista og Vesturlanda sem hefðu byrjað stríðið í þeim tilgangi að eyða Rússlandi. Forseti Bandaríkjanna segir Vesturlönd hins vegar standa einhuga gegn einræðisöflum og þau muni styðja Úkraínu allt til sigurs. Erlent 21.2.2023 20:00
Lítið sem kom á óvart í stefnuræðu Pútíns Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hét því enn og aftur fram í morgun að Rússar bæru ekki ábyrgð á stríðinu í Úkraínu og að Vesturlönd væru að reyna að gera útaf við ríkið. Þetta sagði Pútín í stefnuræðu sinni sem hann hélt í dag. Ræðuna átti fyrst að halda í desember en henni var frestað vegna stríðsins í Úkraínu. Erlent 21.2.2023 10:36
Pútín Rússlandsforseti flytur stefnuræðu sína í dag Vladimír Pútín Rússlandsforseti mun í dag flytja árlega stefnuræðu sína til rússnesku þjóðarinnar. Til stóð að ræðan yrði flutt í desember síðastliðnum en henni var frestað vegna stríðsins í Úkraínu. Erlent 21.2.2023 08:47
Pútín hafi ákveðið að senda eldflaugina sem notuð var gegn MH17 Alþjóðlegt teymi rannsakenda segist hafa fundið sterkar vísbendingar um að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefði persónulega heimilað sendingu loftvarnarkerfis til aðskilnaðarsinna í Úkraínu sem notað var árið 2014 til að skjóta niður farþegaþotu frá Malasíu. Ólíklegt sé þó að hægt verði að sækja hann til saka. Erlent 8.2.2023 19:15
Segir Rússa reiðubúna til að semja Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir Rússa reiðubúna til að semja um endalok innrásar þeirra í Úkraínu. Hann segir Úkraínumenn og vesturlönd ekki vilja ganga að samningaborðinu. Erlent 25.12.2022 13:44
Búist við auknum sóknarþunga Rússa Valdímír Pútin Rússlandsforseti hefur fundað með herforingjum sínum nú þegar hávær orðrómur er um að Rússar muni gera metnaðarfulla tilraun til að snúa vörn í sókn á vígvellinum. Erlent 17.12.2022 16:48
Hættir við blaðamannafund í fyrsta sinn í tíu ár Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur hætt við að halda árlegan blaðamannafund í lok árs. Er það í fyrsta sinn í tíu ár sem þessi fundur fer ekki fram. Forsetinn hefur notað fundina til að styrkja ímynd sína í Rússlandi og svara spurningum blaðamanna ríkismiðla Rússlands. Erlent 12.12.2022 18:07
Merkel segist hafa skort vald til að hafa áhrif á Pútín Angela Merkel fyrrverandi kanslari Þýskalands segist í nýju viðtali hafa skort vald til að hafa áhrif á Vladimír Pútín Rússlandsforseta síðustu ár sín í embætti. Erlent 25.11.2022 07:43
Tóku eigin málaliða af lífi með sleggju Rússneskir málaliðar Wagner Group birtu um helgina myndband sem sýndi meðlim hópsins tekinn af lífi með sleggju. Rússneski auðjöfurinn sem rekur málaliðahópinn og tengist Vladimír Pútín, forseta Rússlands, nánum böndum, lofaði myndbandið. Erlent 14.11.2022 13:10
Selenskí heimsótti Kherson Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, heimsótti Kherson-borg í morgun. Hersveitir Rússa hörfuðu nýverið frá borginni en eru þrátt fyrir það í nokkur hundruð metra fjarlægð, hinu megin við Dniproá. Erlent 14.11.2022 10:46
Lofar að láta Pútín heyra það Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, heitir því að láta ríkisstjórn Vladímírs Pútíns, forseta Rússlands, heyra það á fundi þjóðarleiðtoga stærstu þjóða heims í vikunni. Erlent 13.11.2022 16:23
Pútín firrir sig ábyrgð á undanhaldinu Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir allar hersveitir Rússa hafa hörfað frá vesturbakka Dniproár í Kherson-héraði í suðurhluta Úkraínu. Á undanhaldinu felldu Rússar brúnna yfir Dnipro. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, firrir sig allri ábyrgð á undanhaldinu. Erlent 11.11.2022 10:48
Pútín segir að frestun samnings um kornútflutning sé tímabundin Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir að Rússar hafi ákveðið að frysta samning sem gerður var um að flutningaskip fái að flytja korn frá Úkraínu um svartahaf. Erlent 1.11.2022 08:56
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Pútín segist ekki sjá eftir neinu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir sextán þúsund menn sem skikkaðir voru til herþjónustu hafa verið senda á vígstöðvarnar í Úkraínu. Gagnrýni í garð herkvaðningarinnar hefur aukist í Rússlandi og fregnir hafa borist af dauðsföllum meðal kvaðmanna en Pútín segist ekki sjá eftir neinu í tengslum við innrásina í Úkraínu. Erlent 14.10.2022 16:20
Segir Pútín sýna rökhugsun en hafa stórkostlega misreiknað stöðuna í Úkraínu Joe Biden Bandaríkjaforseti segir Vladimir Pútín Rússlandsforseta sýna rökhugsun en hann hafi hins vegar stórkostlega misreiknað þegar hann ákvað að ráðast inn í Úkraínu. Þá segir forsetinn hótanir Rússa um notkun kjarnorkuvopna mögulega geta leitt til hörmulegra mistaka. Erlent 12.10.2022 07:12
Sjálfsvígsheimsvaldastefna Kremlar Eins fráleit og hún var, þá var ekkert sem kom á óvart í ræðunni sem Pútín hélt í tilefni innlimunar úkraínsku landsvæðanna. Á undanförnum vikum hefur Rússland orðið fyrir hverju öðru, hernaðarlegu áfallinu í norðaustur Úkraínu. Að sýna veikleika er óhugsandi í huga Pútín og þar af leiðandi bætir hann upp dapurt gengi á vígvellinum með sífellt meira ógnandi málflutningi. Umræðan 8.10.2022 10:01
Einangraður einræðisherra sjötugur í dag Lík fimm hundruð þrjátíu og fjögurra, þar af nítján barna, hafa fundist í fjöldagröf á nýfrelsuðum svæðum í Kharkiv héraði í Úkraínu. Einnig hafa fundist rúmlega tuttugu staðir þar sem greinilegt er að rússneska hernámsliðið hafði stundað pyndingar á fólki. Leiðtogar Evrópusambandsins ræddu orkukreppu Evrópu vegna stríðsins í dag. Erlent 7.10.2022 19:33
Evrópuleiðtogar reyna að ná samkomulagi um hámarksverð á gasi Leiðtogar Evrópusambandsins reyna nú á 70 ára afmælisdegi Rússlandsforseta að ná samkomulagi um hámarksverð á gasi til heimila og fyrirtækja. Úkraínskar hersveitir halda áfram að endurheimta landsvæði í gagnsókn sinni gegn Rússum og Úkraínuforseti heitir því að endurheimta öll hertekin svæði, þeirra á meðal Krímskaga. Erlent 7.10.2022 11:49
Kadyrov kallar eftir herlögum og notkun kjarnorkuvopna Ramsan Kadyrov, einræðisherra Téténíu, birti í dag langan pistil þar sem hann gagnrýnir leiðtoga rússneska hersins harðlega vegna undanhaldsins frá Lyman í norðanverðu Donetsk-héraði. Meðal annars kallar hann eftir því að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, setji á herlög á landamærasvæði Rússlands við Úkraínu og beiti kjarnorkuvopnum gegn Úkraínumönnum. Erlent 1.10.2022 15:23
Putin segir Vesturlönd sækja að Rússum með skemmdarverkum og úrkynjun Úkraína hefur óskað eftir aðild að Atlantshafsbandalaginu með hraði eftir að Rússlandsforseti setti á svið innlimun fjögurra héraða í landinu með athöfn í Kreml í dag. Utanríkisráðherra segir ekkert mark takandi á svo kölluðum kosningum í þessum héruðum þar sem varla fannst maður á móti innlimuninni. Erlent 30.9.2022 19:21