Bruni hjá Betra lífi í Vatnagörðum

Leigusalar verði að átta sig á ábyrgðinni
Slökkviliðsstjóri segir leigusala verða að átta sig á ábyrgð sinni þegar kemur að brunavörnum. Húsið við Stangarhyl í Árbæ, þar sem eldur kom upp í morgun, var ekki samþykkt íbúðarhúsnæði. Einn liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi vegna brunans

„Auðvitað viljum við ekki hafa húsnæðið af fólki að óþörfu“
Sviðsstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins býst við frekari lokunum á atvinnuhúsnæði sem notað er til búsetu, eftir skurk í málaflokknum í fyrra. Aðeins um helmingur þeirra sem krafðir voru um úrbætur á brunavörnum hafa svarað. Málin séu erfið viðureignar; slökkviliðið vilji ekki hafa húsnæði af fólki að óþörfu.

„Látið líta út fyrir að maður sé með dauðagildru“
Eigandi áfangaheimilisins Betra líf, þar sem eldur kviknaði á föstudag, segir athugasemdir slökkviliðs um verulega annmarka á brunakerfi ekki eiga við nein rök að styðjast.

Alvarlegt brot á lögum um brunavarnir í Vatnagörðum
Verulegir annmarkar voru á brunavörnum í húsnæðinu að Vatnagörðum 18, þar sem eldur kviknaði á föstudag, samkvæmt úttekt Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu sem gerð var í vikunni fyrir brunann. Um alvarlegt brot á lögum um brunavarnir sé að ræða og varað er við lokun húsnæðisins.

Setur spurningamerki við að hver sem er geti opnað áfangaheimili
Formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar setur spurningamerki við að hver sem er geti opnað áfangaheimili. Borgin geti ekkert aðhafst á meðan engin lög séu til um eftirlit og rekstur slíkra heimila. Hún skorar á ráðherra að bregðast við.

Segir varla nokkurn hagnað af rekstrinum og sárnar umræðan
Eigandi Betra lífs, einkarekins úrræði fyrir fólk með fíknivanda þar sem mikill bruni varð á föstudag, segir varla nokkurn, ef einhvern, hagnað af starfseminni. Þá sé það fráleitt að leiga sé of há og hann myndi gjarnan vilja halda úti sólarhringsvöktun í húsnæðinu en skorti fjármagn til þess.

Fimm fermetra herbergi fyrir 140 þúsund krónur: „Þetta er náttúrulega gríðarlega hátt“
Íbúi áfangaheimilis, þar sem eldur kom upp í morgun, segist greiða 140 þúsund krónur á mánuði í leigu fyrir fimm fermetra herbergi. Borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins segir leiguna gríðarlega háa og að erfitt sé fyrir fólk í viðkvæmri stöðu að standa undir henni.

Heyrði öskrað „eldur, eldur“ og svo gaus mökkurinn upp
Íbúi áfangaheimilis í Vatnagörðum 18, sem vaknaði við eldsvoða í húsnæðinu í morgun, er sleginn eftir atburði morgunsins. Hann kallar eftir úrbótum í málum fólks með fíknivanda - og telur of hátt að borga 140 þúsund krónur í leigu á litlu herbergi á áfangaheimilinu.

Ekki taldir alvarlega slasaðir eftir brunann
Fimm voru fluttir á sjúkrahús eftir bruna í Vatnagörðum í Reykjavík í morgun en meiðsli þeirra eru ekki talin alvarleg að sögn lögreglu. Slökkvistarf gekk vel en margir voru í húsnæðinu, sem hýsir meðal annars áfangaheimili. Lögregla rannsakar nú vettvanginn.

„Við sátum nú bara einfaldlega á fundi þegar rúðurnar sprungu“
„Við sátum nú bara einfaldlega á fundi þegar rúðurnar sprungu og horfðum bara beint á þetta,“ segir Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri Iðunnar fræðsluseturs, um það þegar eldur kviknaði í Vatnagörðum 18 í morgun.

Þrjátíu manns með aðsetur á hæðinni í Vatnagörðum
Varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðinu segir að um þrjátíu manns hafi verið skráðir með aðsetur á hæð hússins við Vatnagarða 18 í Reykjavík þar sem eldur kom upp í morgun. Hann segir að slökkvistarf hafi gengið vel og eldurinn að mestu bundinn við tvö herbergi. Fimm voru fluttir á bráðamóttöku Landspítalans.

Eldur í húsnæði fyrir fólk í fíknivanda og flóttafólk í Vatnagörðum
Mikill eldur kviknaði í húsi við Vatnagarða neðan við Kleppsveg í Reykjavík upp úr klukkan hálf tíu í morgun. Fimm hafa verið fluttir á sjúkrahús, einhverjir með reykeitrun.