Féll í sprungu í Grindavík
1 2 ›
Engar vísbendingar og litlar upplýsingar Grindavíkurbær metur nú nýja stöðu sem upp er komin eftir að lögregla hætti í gær leit að Lúðvíki Péturssyni, sem féll í sprungu í Grindavík þann 10. janúar 2024. Ekki verður ráðist í frekari leitaraðgerðir og telst formlegri leit af hálfu lögreglu lokið. Innlent 28.10.2026 17:22
Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Leitinni að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík árið 2024 er formlega lokið. Engar vísbendingar hafi fundist sem varpað gætu ljósi á hvar jarðneskar leifar Lúðvíks sé að finna. Ekki verði ráðist í frekari leitaraðgerðir. Innlent 27.10.2026 19:12
Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Formleg leit að Lúðvík Péturssyni, sem féll í sprungu í Grindavík þann 24. janúar 2024, hófst í morgun. Fyrstu sigmennirnir sigu niður í sprunguna á tólfta tímanum en meðal annars verður notast við myndavélabúnað frá rústabjörgunarsveitinni til að kanna aðstæður. Innlent 27.10.2026 14:42
Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Í dag fer fram afmörkuð leitaraðgerð í Grindavík vegna Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í janúar 2024. Ekki er um að ræða björgun heldur er markmið leitaraðgerðar að kanna aðstæður samkvæmt tilkynningu lögreglu. Innlent 27.10.2026 10:07
„Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Leit verður hafin nú í morgunsárið að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. Bróðir hans gagnrýnir hversu langan tíma hefur tekið að hefja leit og telur að rannsaka þurfi aðdraganda þess að Lúðvík féll í sprunguna betur. Fjölskyldan voni að hann finnist í dag og þau geti jarðað hann. Rætt var við Elías í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 27.10.2026 08:07
Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Lögreglustjórinn á Suðurnesjum verður á morgun með aðgerð sem miðar að leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. Innlent 26.10.2026 11:18
Stefna á að hefja leit í nóvember Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að í næsta mánuði verði mögulega hægt að hefja leit að jarðneskum leifum manns sem féll ofan í sprungu í Grindavík árið 2024. Nú sé unnið að mótvægisaðgerðum. Innlent 20.10.2026 14:52
Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Erlendir sérfræðingar eru nú staddir hér á landi til að leggja mat á mögulegar aðgerðir til að sækja líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar upp úr sprungu í Grindavík. Innlent 21.8.2026 06:47
Ákvarðanir um aðgengi að Grindavík lausar í reipunum Losarabragur var á því hvernig lögreglustjórinn á Suðurnesjum tók ákvarðanir um aðgengi að Grindavík, skjalfesti þær og miðlaði til almennings. Hópur sérfræðinga finnur að því að lögreglustjóri hafi ítrekað sagt fólk á eigin ábyrgð í Grindavík þegar áhættumat fyrir svæðið hafi ekki verið aðgengilegt almenningi. Innlent 13.5.2026 10:22
Mæla með stigvaxandi aðgerðum fámenns teymis sigmanna Verkfræðistofan COWI hefur skilað minnisblaði um fýsileika þess að leita að og endurheimta jarðneskar leifar Lúðvíks Péturssonar, sem er talinn hafa látist þegar hann féll ofan í sprungu í Grindavík í janúar árið 2024. Innlent 13.5.2026 06:45
Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt „Við fögnum þessu. Við teljum það ákaflega mikilvægt að grafið verði eftir Lúðvík. Með því fær fjölskyldan mögulega einhverja lúkningu með því að geta jarðað Lúlla. Það er líka alveg öruggt að það vill enginn Grindvíkingur að Lúlli liggi í sprungu í Grindavík,“ segir Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks Péturssonar, sem lést þegar hann féll í sprungu í Grindavík 10. janúar 2024. Innlent 17.2.2026 06:41
Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Bróðir Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík í byrjun síðasta árs segir vel mögulegt að endurheimta líkamsleifar hans án þess að stofna lífi annarra í hættu. Dómsmálaráðuneytið hefur ekki svarað fyrirspurnum fjölskyldunnar um áframhald leitar. Innlent 12.12.2025 19:21
„Við munum berjast fyrir því til síðasta dags að fá pabba aftur“ „Ég myndi ekki óska mínum versta óvini að upplifa það sem við upplifðum,” segir Ásta Kristín Lúðvíksdóttir, dóttir Lúðvíks Péturssonar sem féll ofan í sprungu og lést þegar unnið var að því að bjarga húsi í Hópshverfi í Grindavík í janúar árið 2024. Þriggja daga leit fór fram eftir að hann hvarf, sem var að endingu blásin af vegna erfiðra og hættulegra aðstæðna á vettvangi. Í dag, tveimur árum síðar, situr fjölskylda Lúðvíks uppi með ótal spurningar en lítið er um svör. Innlent 9.12.2025 08:02
Grindvíkingar hugsa um að fara heim: Gott að vera í Grindavík en verður aldrei eins Grindvíkingar hugsa nú margir um möguleikann á því að flytja aftur heim. Grindavíkurnefndin vinnur að því að kanna hug Grindvíkinga til framtíðar í Grindavík og fasteignafélagið Þórkatla vinnur að endurkaupaáætlun fyrir Grindvíkinga sem seldu félaginu húsið sitt eftir rýmingu. Veðurstofan hefur spáð eldgosi á næstu vikum en segir óvissu þó hlaupa á mánuðum. Innlent 8.12.2025 06:31
Fréttamynd ársins er af sprunguleit í Grindavík Eggert Jóhannesson og Golli hlutu í dag verðlaun fyrir mynd ársins og fréttamynd ársins 2024. Verðlaunin voru afhent í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, en þar var á sama tíma opnuð ljósmyndasýning sem verður opin til 27. apríl 2025. Innlent 22.3.2025 15:43
Fimm með réttarstöðu sakbornings vegna andláts í Grindavík Lögreglan á Suðurnesjum lauk í síðustu viku rannsókn sinni á banaslysi í Grindavík þann 10. janúar í fyrra. Fimm hafa réttarstöðu sakbornings í málinu að sögn Úlfars Lúðvíkssonar lögreglustjóra á Suðurnesjum. Málið er nú á borði héraðssaksóknara. Innlent 12.2.2025 20:39
Krefjast þess að faðir þeirra verði úrskurðaður látinn Börn Lúðvíks Péturssonar, sem féll í sprungu í Grindavík fyrir rétt tæpu ári, hafa krafist þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að ákveðið verði með dómi að faðir þeirra sé talinn látinn. Innlent 16.12.2024 12:58
Ekki vanhæfur til að rannsaka banaslysið Lögreglustjórinn á Suðurnesjum var ekki vanhæfur til þess að fara með rannsókn banaslyss sem varð í Grindavík í janúar á þessu ári. Þetta er niðurstaða Ríkissaksóknara. Innlent 7.11.2024 13:29
Telur lykilspurningum um banaslysið enn ósvarað Bróðir Lúðvíks Péturssonar sem lést í vinnuslysi í Grindavík þann 10. janúar segir skýrslu Vinnueftirlitsins styðja eðlilega ósk fjölskyldunnar að heildstæð rannsókn verði gerð að aðdraganda slyssins og eftirleik þess. Innlent 1.10.2024 12:35
Ekkert skriflegt áhættumat og spurt hvort vinnan hafi verið áhættunnar virði Vinnueftirlitið segir að slysið í Grindavík í janúar, þar sem maður féll ofan í sprungu, megi rekja til þess að ekki hafi verið til staðar fullnægjandi áhættumat og að ekki hafi farið fram nægilega góð kynning á helstu hættum sem gætu steðjað að þeim sem ynnu á vettvangi. Þá veltir Vinnueftirlitið því fram hvort verkið sem var unnið hafi verið áhættunnar virði. Innlent 1.10.2024 10:50
„Þetta er óþarfa tjón“ Jarðeðlisfræðingur segir andvaraleysi hafa ríkt í skipulagsmálum með tilliti til náttúruvár. Til að mynda hefði verið hægt að koma í veg fyrir tjón í Grindavík. Innlent 11.2.2024 13:16
Unnur minnist unnusta síns Lúðvíks sem hvarf í sprungu Minningarathöfn um Lúðvík Pétursson var haldin í Langholtskirkju í dag, föstudaginn 9. febrúar, en hann týndist í Grindavík 10. janúar sl. þegar hann var að vinna við að fylla sprungur fyrir Náttúruhamfaratryggingar Íslands. Innlent 9.2.2024 17:00
Segir ekki hægt að kalla fall mannsins í sprunguna slys Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir ekki hægt að kalla það þegar maður féll í sprungu í Grindavík slys. Hann telur óafsakanlegt að vinna hafi þegar verið hafin við að fylla í sprungur sem ekki var nauðsynlegt að fylla í, né heldur að hann hafi verið einn að störfum. Innlent 31.1.2024 08:30
Vinnueftirlitið rannsakar slysið í Grindavík og vill lögregluskýrslu Vinnueftirlitið rannsakar nú vinnuslysið í Grindavík, þar sem maður féll ofan í sprungu. Hefur eftirlitið óskað eftir lögregluskýrslu um málið. Innlent 29.1.2024 06:51
Fjölskyldan kallar eftir rannsókn óháðra aðila á hvarfinu Fjölskylda mannsins sem féll ofan í sprungu í Grindavík þann 10. janúar á þessu ári vill að hvarf hans verði rannsakað af óháðum aðilum. Fjölskyldan vill svör um aðdraganda og aðstæður á vettvangi þar sem maðurinn, Lúðvík Pétursson, var við störf. Innlent 26.1.2024 06:57
Áfram líkur á að gossprungur opnist án fyrirvara Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi en of snemmt er að segja til um hraða landrissins svo snemma eftir eldgos. Samkvæmt reiknilíkönum liggur kvika grunnt í suðurenda kvikugangsins, þar virðist landið vera mikið sprungið og kvikan eigi því auðvelt með að komast upp á yfirborðið. Áfram eru því líkur á að nýjar gossprungur opnist án fyrirvara. Innlent 17.1.2024 14:53
Gefa sér ekki tíma til að óttast Pípulagningameistari sem fer fyrir vinnu í Grindavíkurbæ segir að unnið sé í kappi við tímann við að koma vatni og rafmagni á bæinn. Vinnumenn gefi sér ekki tíma til þess að óttast um eigið öryggi innan bæjarins en fari auðvitað varlega. Innlent 17.1.2024 11:50
Bein útsending: Íbúafundur Grindvíkinga Íbúafundur íbúa Grindavíkurbæjar í Laugardalshöll hefst klukkan 17 í dag. Fundinn má sjá í beinni útsendingu hér að neðan. Innlent 16.1.2024 16:30
Brotnir verktakar fari grjótharðir áfram á hnefanum Fjöldi íbúa Grindavíkur hefur skrifað undir pappíra sem heimila viðbragðsaðilum að fara inn í hús þeirr,a til þess að kanna ástand hitakerfa fasteigna, og afhent þeim lykla að heimilum sínum. Einn þeirra segir einsýnt að halda verði viðgerðum í bænum áfram. Verktakar hafi brotnað við slysið í bænum en fari áfram á hnefanum. Innlent 16.1.2024 16:11
Forsetinn boðar samstöðu og enga uppgjöf Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands vitnaði í forvera sinn Kristján Eldjárn og Snorra goða í ávarpi um kvöldmatarleytið þar sem hann blés baráttuhug í landsmenn. Skilaboðin voru skýr; við gefumst ekki upp. Innlent 14.1.2024 20:36