
FIFA

Blatter og Platini aftur sýknaðir af spillingarákæru
Svissneskur áfrýjunardómstóll staðfesti sýknu í spillingarmáli Sepps Blatter, fyrrverandi forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins, og Michels Platini, fyrrverandi forseta Knattspyrnusambands Evrópu, í gær. Málinu gæti enn verið áfrýjað til æðri dómstóls.

Meðalárslaun í kvennaboltanum ein og hálf milljón króna
Atvinnukona í fótbolta fær að meðaltali tæplega eina og hálfa milljón í árslaun. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu FIFA um kvennaboltann.

FIFA gæti fjölgað liðum í 64 á HM
Möguleikar Íslands á að komast aftur á HM í fótbolta gætu aukist ef hugmyndir um enn frekari stækkun mótsins ganga eftir. Til greina kemur að fjölga þátttökuþjóðum í 64 fyrir HM 2030.

FIFA dæmir þjálfara í lífstíðarbann fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum
Gabonski fótboltaþjálfarinn Patrick Assoumou Eyi, sem er jafnan kallaður Capello, hefur verið dæmdur í lífstíðarbann af Alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA, fyrir að beita leikmenn sína kynferðisofbeldi.

Ekkert áfengi verði leyft á HM 2034
Engin áfengisneysla verður heimiluð á HM 2034 í Sádi-Arabíu samkvæmt sendiherra landsins í Bretlandi. Engar undanþágur verði gefnar í kringum mótið.

Collina vill breyta vítaspyrnureglunni
Hinn goðsagnakenndi ítalski dómari, Pierluigi Collina, hefur kastað fram áhugaverðri hugmynd.

Framarar fundu strax leið úr skammarkróknum
Það tók ekki langan tíma fyrir Fram að losna af lista FIFA, alþjóða knattspyrnusambandsins, yfir félög í félagaskiptabanni. Grótta er hins vegar enn í banni.

Forseta FIFA boðið á innsetningu Donald Trump
Donald Trump sór í gær embættiseið sem nýr forseti Bandaríkjanna og meðal áhorfenda voru margir af hans bestu mönnum. Gianni Infantino, forseti FIFA, tilheyrir þeim hópi.

Lið Jóhanns Berg kært til FIFA
Forráðamenn velska liðsins New Saints hafa lagt inn formlega kvörtun til Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, vegna sádiarabíska liðsins Al-Orobah. Síðarnefnda liðið skuldi því velska rúmar 30 milljónir.

„Þeir reyndu að gera lítið úr mér“
Vinícius Júnior lét gagnrýnendur sína heyra það eftir að hann fékk verðlaunin sem besti fótboltamaður ársins hjá Alþjóða knattspyrnusambandinu.

Lýsa þungum áhyggjum af HM í Sádi-Arabíu
Hópur Evrópuþingmanna hefur sent Alþjóðaknattspyrnusambandinu (FIFA) bréf þar sem lýst er þungum áhyggjum af ákvörðun sambandsins um að halda heimsmeistaramótið 2034 í Sádi-Arabíu. Hún veki spurningar um hvort FIFA láti sig mannréttindi varða.

Ofurdeild Evrópu aftur á dagskrá en undir nýju nafni og með 96 liðum
A22 Sports, skipuleggjandi Ofurdeildarinnar, segist hafa sent UEFA og FIFA beiðni um að samböndin viðurkenni rétt fyrirtækisins til að stofna nýja Evrópukeppni fyrir félagslið.

FIFA þurfti að biðja verðandi mótherja Íslands afsökunar
Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, hefur sent Úkraínumönnum afsökunarbeiðni vegna dráttarins í undankeppni HM 2026 á föstudaginn var.

Utan vallar: Þetta er að gerast aftur
Sléttur áratugur er þar til heimsmeistaramót karla fer fram í Sádi-Arabíu. Það hefst að líkindum í desember 2034. En hvernig kom þetta til? Hvað gengur á hjá Sádum annars vegar og FIFA hins vegar? Hvernig getur verið að Sádar fái mótið án mótframboðs? Tilraun er gerð til að svara helstu spurningum sem málinu viðkoma hér að neðan.

HM 2034 verður í Sádi Arabíu
Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, tilkynnti í dag hvar HM karla í knattspyrnu fer fram árin 2030 og 2034.

Norðmenn mótmæla meingölluðum starfsháttum FIFA
Norska knattspyrnusambandið ætlar ekki að styðja úthlutun Alþjóða Knattspyrnusambandsins á næstu tveimur heimsmeistaramótum karla en það verður gefið út formlega á morgun hvar mótin fara fram.

Hjálpaðu Glódísi að komast í heimsliðið
Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Bayern München og íslenska landsliðsins, kemur til greina í heimsliðið í fótbolta. Íslendingar geta hjálpað henni að komast í það með því að kjósa hana á heimasíðu FIFA.

HM í fótbolta 2034 mun fara fram um vetur
Sádi-Arabía mun halda heimsmeistarakeppnina í fótbolta árið 2034 en hún getur ekki farið fram um sumar.

Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða
Gianni Infantino, forseti FIFA, kynnti í vikunni nýjan og glæsilegan bikar sem keppt verður um í nýrri heimsmeistarakeppni félagsliða næsta sumar.

Ný keppni FIFA sem enginn virðist vilja spila í
Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, tilkynnti á mánudag að dregið verði í riðlakeppni í nýrri heimsmeistarakeppni félagsliða þann 5. desember næstkomandi. Fyrirhuguð keppnin hefur sætt mikilli gagnrýni víða að.

FIFA hótar félögunum stórum sektum
Heimsmeistarakeppni félagsliða í fótbolta fer fram næsta sumar sem ný 32 liða og 63 leikja keppni. Það er eins gott fyrir félögin að mæta til leiks með alla sína bestu leikmenn því annars mun FIFA refsa þeim harðlega.

Annar heimsmeistaratitill Norður-Kóreu á sex vikum
Norður-Kórea tryggði sér heimsmeistaratitilinn hjá sautján ára landsliðum kvenna í fótbolta í gær eftir sigur á Spáni í vítaspyrnukeppni í úrslitaleiknum.

Emilía á löngum lista kvenna sem skora á FIFA
Yfir hundrað knattspyrnukonur, þar á meðal ein íslensk landsliðskona, hafa sent FIFA opið bréf og skorað á sambandið að rifta styrktarsamningi sínum við sádiarabíska olíurisann Aramco.

Lögðu inn formlega kvörtun vegna yfirgangs FIFA
Samtök evrópska knattspyrnudeilda og leikmannasamtökin Fifpro hafa tekið höndum saman í gagnrýni sinni á Alþjóða knattspyrnusambandið.

„Ekki vera með ef þið eruð á móti þessu“
Forseti franska stórliðsins Paris Saint-Germain hefur komið til varnar nýrri heimsmeistarakeppni félagsliða í knattspyrnu sem fer fram næsta sumar.

Forsetinn Eto‘o fær ekki að mæta á leiki þjóðar sinnar
Samuel Eto‘o, fyrrverandi leikmaður Barcelona og Inter er í dag forseti Fecafoot, Knattspyrnusambands Kamerún. Hann hefur nú verið settur í sex mánaða bann af aganefnd FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandsins, og má ekki mæta á neina landsleiki hjá þjóð sinni.

„Þeir hótuðu að handtaka konuna mína“
Son Jun-ho er einn þeirra sem hefur verið dæmur í lífstíðarbann frá kínverskum fótbolta. Hann hélt hins vegar blaðamannafund í gær og sagði frá sinni hlið á málinu.

FIFA tekur enn enga ákvörðun um að banna Ísrael
Alþjóða knattspyrnusambandið hefur seinkað því að taka á beiðni Palestínumanna um að banna Ísrael frá alþjóðlegum fótbolta.

FIFA vill nú fara sáttaleiðina
Alþjóða knattspyrnusambandið virðist loksins vera að sjá ljósið og því sér mögulega fyrir endanum á þeirri pattstöðu sem er komin upp á milli FIFA og leikmannasamtakanna.

Stærstu deildir Evrópu ætla að kæra FIFA vegna misnotkunar á valdi
Stærstu deildir Evrópu, þar á meðal ensku úrvalsdeildarinnar, ætla sér að kæra FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandið, fyrir að misnota vald sitt og ógna velferð leikmanna.