

Túlkar NHK, ríkissjónvarps Japans, áttu í miklum vandræðum með vinnu sína í nótt.
Stjórnmálaskýrendur vestanhafs eru margir hverjir sannfærðir um að að fyrstu kappræður Donald Trump og Joe Biden hafi ekki verið álitlegar. Þáttastjórnendur Bandaríkjanna virðast sammála.
Frammistöðu Trumps hefur verið líkt við framgöngu hans á kosningafundum hans, þar sem forsetinn hefur sjaldan látið sannleikann standa í vegi fyrir sér.
Fyrstu kappræður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna og frambjóðanda Repúblikana, og Joe Biden, fyrrverandi varaforseta og frambjóðanda Demókrata, fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum fóru fram í Cleveland í nótt. Kappræðurnar einkenndust af framíköllum og deilum.
Í nótt fara fram fyrstu kappræður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna og frambjóðanda Repúblikana, og Joe Biden, fyrrverandi varaforseta og frambjóðanda Demókrata, fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.
Mikill meirihluti kjósenda í Bandaríkjunum segist ætla að horfa en sérfræðingar og greinendur eru sammála um að kappræðurnar muni í raun litlu breyta. Nema Trump eða Biden misstígi sig verulega.
Amy Coney Barrett, áfrýjunardómari sem Donald Trump Bandaríkjaforseti tilnefndi til hæstaréttar um helgina, er sögð tilheyra kristnum trúarhópi sem fyrrverandi félagar fullyrða að kenni að konur verði að vera undirgefnar eiginmönnum sínum.
Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og æðsti kjörni fulltrúi Demókrata á landsvísu segir að skattamál Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, varði þjóðaröryggi Bandaríkjanna.
Það að forsetinn hafi einungis greitt 750 dali í alríkistekjuskatt árið sem hann bauð sig fram til forseta, 2016, og hann hafi engan skatt greitt tíu af síðustu fimmtán árum gæti komið niður á stöðu hans meðal verkafólks í Bandaríkjunum.
Brad Parscale, fyrrverandi kosningastjóri Donald Trump, var lagður inn á sjúkrahús í gær eftir að hann hótaði því að skaða sjálfan sig.
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, er ábyrgur fyrir 421 milljón dala lánum. Gjalddagar flestra þessara lána eru á næstu fjórum árum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að það sé hugsanlegt að dómurinn Roe gegn Wade frá árinu 1973 verði tekinn upp að nýju hjá Hæstarétti verði Amy Coney Barrett, tilnefning hans til Hæstaréttar, kosin til dómsins af öldungadeild Bandaríkjanna.
Hugmyndafræði Hæstaréttar Bandaríkjanna er líklegt til að taka skarpa hægribeygju til næstu áratuganna eftir að Donald Trump forseti tilnefndi Amy Coney Barrett, íhaldssaman áfrýjunardómara, til að taka sæti Ruth Bader Ginsburg í gær.
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti rétt í þessu tilnefningu sína til Hæstaréttar Bandaríkjanna.
Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að tilnefna Amy Coney Barrett til Hæstaréttar Bandaríkjanna.
Opinber minningarathöfn um Ruth Bader Ginsburg, bandaríska hæstaréttardómaranna sem andaðist á föstudag, fer fram í Washington-borg í dag. Ginsburg er fyrsta konan og fyrsti gyðingurinn til að liggja á viðhafnarbörum í bandaríska þinghúsinu.
Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikanaflokksins í öldungadeild Bandaríkjaþings, fullyrðir að valdaskipti eftir kosningar í nóvember fari fram á „skipulegan“ hátt þrátt fyrir að Donald Trump forseti hafi sagt að hann gæti ekki lofað að þau færu friðsamlega fram í gær.
Áhyggjur af því að hörð átök verði um úrslit forsetakosninga í Bandaríkjunum í vetur jukust í gær þegar Donald Trump forseti vildi ekki skuldbinda sig til þess að valdaskipti verði friðsöm sama hver úrslitin verða.
Í nýjum þætti Bandaríkjanna, hlaðvarps fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar, ræðum við af hverju bandarískir íhaldsmenn leggja svo mikla áherslu á Hæstarétt.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að hann teldi að Hæstiréttur Bandaríkjanna þyrfti að skera út um úrslit forsetakosninganna í nóvember. Þessa vegna segir hann mikilvægt að skipa nýjan dómara í sæti Ruth Bader Ginsburg eins hratt og auðið sé.
Stærsta alþjóðlega tilraunin með bóluefni gegn Covid-19, sjúkdómnum sem nýtt afbrigði kórónuveiru veldur, til þessa er hafin í Bandaríkjunum.
Cindy McCain, ekkja bandaríska öldungadeildarþingmannsins Johns McCain, lýsti yfir stuðningi við forsetaframboð Joe Biden í gær.
Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings virðast nú hafa tryggt sér atkvæði nógu margra þingmanna sinna til þess að geta staðfest dómaraefni Donalds Trump forseta til Hæstaréttar eftir að Mitt Romney, öldungadeildarþingmaður frá Utah, sagði ætla að greiða atkvæði með því.
Útlit er fyrir að Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hafi nægan stuðning Repúblikana í öldungadeildinni til þess að tilnefna nýjan dómara í Hæstarétt Bandaríkjanna eftir andlát Ruth Bader Ginsburg.
Dómaraefni Donalds Trump Bandaríkjaforseti til að fylla autt sæti í Hæstarétti gæti verið kynnt þegar á föstudag eða laugardag, að sögn forsetans.
Atkvæði nýs hæstaréttardómara í Bandaríkjunum gæti ráðið úrslitum í stórpólitískum málum, þar á meðal um réttinn til þungunarrofs og byssueignar, næstu áratugina.
Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, hefur kallað fyrirætlanir Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að tilnefna hæstaréttardómara fyrir kosningarnar í nóvember, misnotkun á valdi.
Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrata, hyggst ræða við Donald Trump Bandaríkjaforseta um áætlun hans um að tilnefna nýjan dómara til Hæstaréttar Bandaríkjanna áður en kjörtímabili hans lýkur.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist ætla að tilnefna konu til að taka við sæti Ruth Bader Ginsburg í Hæstarétti Bandaríkjanna. Hann segist þar að auki ætla að tilnefna konuna sem fyrst.
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir það skyldu sína að skipa nýjan Hæstaréttardómara án tafar.