Fréttir
268 269 270 271 272 273 274 275 276 … 334 ›
Íslenska óperan heyrir sögunni til: „Við höfum kallað þetta menningarslys“ Íslenska óperan heyrir sögunni til í kjölfar ákvörðunar menningarmálaráðherra um að stofna Þjóðaróperu. Þær sýningar sem áformað var að sýna á þessu ári falla niður. „Menningarslys,“ segir stjórnarformaður sem furðar sig á framkvæmdinni. Innlent 19.2.2024 18:44
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Grindvíkingar mega frá og með morgundeginum dvelja allan sólarhringinn í bænum en verða þar á eigin ábyrgð. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við formann bæjarráðs um þessa breytingu, við verðum í beinni frá íbúafundi og heyrum í Magnúsi Tuma Guðmundssyni um mögulegar hættur í Grindavík. Innlent 19.2.2024 18:00
Óvænt aðstoð Íslendings í Búlgaríu og fengu skýrslurnar afhentar Fjölskylda Láru Bjarkar Sigrúnardóttur hefur fengið réttu pappíranna til þess að hægt sé að fljúga henni heim til Íslands frá Búlgaríu. Læknar hjá samtökunum SOS International, sem sjá um að meta ástand sjúklinga fyrir sjúkraflug, fara nú yfir skýrslurnar. Innlent 19.2.2024 17:57
Dæmdur í fangelsi en finnst ekki Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás og rán, með því að kýla mann á sextugsaldri í andlitið og ræna af honum síma og bíllyklum í félagi við annan mann. Í dómi Héraðsdóms Vesturlands segir að óvíst sé um dvalarstað mannsins og ekki hafi tekist að birta honum fyrirkall. Innlent 19.2.2024 17:51
Nýtt hættusvæði í uppfærðu hættumati Líkanareikningar benda til að kvika nái svipaðri stöðu og fyrir síðasta eldgos í lok febrúar eða byrjun mars. Þetta kemur fram í uppfærðu hættumati. Innlent 19.2.2024 17:17
Íbúafundur Grindvíkinga í Laugardalshöll Íbúafundur Grindvíkinga fer fram í dag og mun standa yfir frá klukkan fimm til klukkan sjö í kvöld. Innlent 19.2.2024 16:44
Sjálfstæðismenn skriðið í eina sæng með röngum bandamanni Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, beindi fyrirspurn til Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra á Alþingi nú áðan. Og vandaði Sjálfstæðisflokknum ekki kveðjurnar í leiðinni. Innlent 19.2.2024 16:28
Flutti DVD-diska með barnaníðsefni til Íslands Karlmaður hlaut í síðustu viku eins árs fangelsisdóm, skilorðsbundinn til þriggja ára, í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir vörslu barnaníðsefnis. Innlent 19.2.2024 16:07
Með tæplega 400 töflur innvortis á Litla-Hrauni Karlmaður hefur hlotið sextíu daga fangelsisdóm í Héraðsdómi Suðurlands fyrir fíkniefnabrot með því að hafa í vörslum sínum 366 stykki af lyfjum við komu á fangelsið Litla-Hrauni Innlent 19.2.2024 15:36
Góðkunningjum lögreglu vísað úr baðstofunni Óskað var eftir aðstoð lögreglu á laugardagsmorgun vegna sex einstaklinga karlmanna í baðstofunni í World Class í Laugum sem ónáðuðu aðra gesti. Félagarnir Björn Leifsson og Jóhannes Felixson, Jói Fel, brguðust við vandanum. Innlent 19.2.2024 15:35
Býst við að fáir muni gista í bænum Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir nýjar aðgengisreglur í bænum fyrst og fremst breyta miklu fyrir fyrirtækin. Hann býst ekki við að margir muni gista í bænum og brýnir fyrir íbúum að fara varlega. Innlent 19.2.2024 14:56
Óbyggðanefnd endurskoði afstöðu sína Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra hefur farið þess á leit við óbyggðanefnd að hún endurskoði afstöðu sína vegna kröfu ríkisins í Vestmannaeyjar. Innlent 19.2.2024 13:51
Þórdís leitar að arftaka Rómarfarans Guðmundar Fjármála- og efnahagsráðuneytisins hefur nú auglýst til umsóknar embætti ráðuneytisstjóra. Gert er ráð fyrir að skipað verði í embættið þann 1. apríl til fimm ára. Umsóknarfrestur rennur út þann 7. mars. Innlent 19.2.2024 13:01
Ólík upplifun pílukastara og framkvæmdastjóra af meintum flugdólgi Pílukastarinn Haraldur Egilsson, betur þekktur sem Halli Egils, segir ungan flugþjón í vél Icelandair á leiðinni frá Kaupmannahöfn til Íslands í gærkvöldi hafa sýnt aðdáunarverða stillingu gagnvart ógæfudreng í geðrofi í vélinni. Innlent 19.2.2024 13:01
Grindvíkingar fá aðgengi allan sólarhringinn Grindvíkingar og þeir sem starfa í bænum fá aðgengi að honum allan sólarhringinn. Þetta er ákvörðun Úlfars Lúðvíkssonar, lögreglustjórans á Suðurnesjum. Innlent 19.2.2024 12:27
Heitir því að halda áfram að berjast fyrir frjálsu Rússlandi „Ég vil lifa í frjálsu Rússlandi, ég vil byggja upp frjálst Rússland,“ segir Yulia Navalnaya, ekkja andófsmannsins Alexei Navalní, í myndskeiði þar sem hún heitir því að halda áfram baráttu eiginmanns síns. Erlent 19.2.2024 12:12
Sparar yfirlýsingar á ögurstundu Ögurstund er runnin upp í kjaraviðræðum breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins að mati formanns VR. Það skýrist á allra næstu dögum hvort viðræðum verði haldið áfram eða ekki. Innlent 19.2.2024 12:08
Diplómatarnir ræddu við sjálfboðaliðana um helgina Diplómatar í Egyptalandi á vegum utanríkisráðuneytisins höfðu um helgina samband við hóp sjálfboðaliða, sem hafa aðstoðað fólk út af Gasa. Sjálfboðaliðar eru á leið út til Kaíró til að halda verkefninu áfram. Innlent 19.2.2024 12:01
Starfsmenn Rapyd þurfi að sitja undir ómálefnalegum áróðri Forstjóri Rapyd á Íslandi segir fyrirtækið víst vera íslenskt þó móðurfélag þess sé ísraelskt. Starfsfólk fyrirtækisins sé jafn vanmáttugt um að stöðva átökin á Gasa og aðrir hér á landi. Krafa um sniðgöngu á fyrirtækinu í nafni mannréttinda sé því ómakleg. Innlent 19.2.2024 11:52
Tók 0,3 sekúndur að búa til nektarmynd af sér Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, baráttukona gegn kynferðisofbeldi og stjórnarformaður Nordref, segir engan óhultan fyrir gervigreind og möguleikum sem henni fylgja til stafræns kynferðisofbeldis. Innlent 19.2.2024 11:42
Hádegisfréttir Bylgjunnar Lögreglustjórinn á Suðurnesjum reiknar með að upp úr hádegi muni hann tilkynna um nýtt og breytt fyrirkomulag aðgengis fyrir Grindvíkinga en fyrirkomulagið verður þó óbreytt út daginn í dag. Innlent 19.2.2024 11:36
Lincoln bestur, Biden í fjórtánda sæti en Trump alverstur Samkvæmt sagnfræðingum í Bandaríkjunum er Joe Biden fjórtándi besti Bandaríkjaforseti sögunnar, á meðan Donald Trump er sá alversti. Mesta afrek Biden var að koma Trump frá völdum, segja prófessorarnir sem stóðu fyrir könnuninni. Erlent 19.2.2024 11:09
Heyrnartæki óheyrilega dýr á Íslandi Kristján E. Guðmundsson, fyrrverandi framhaldsskólakennari, hefur gert samanburði á verði heyrnartækja á Norðurlöndum og svo á Íslandi. Munurinn er sláandi. Hvað veldur er svo rannsóknarefni út af fyrir sig. Innlent 19.2.2024 10:46
Fleiri og fleiri bæjarhátíðir kveðja sjónarsviðið Fleiri og fleiri stórar bæjar- og tónlistarhátíðir hafa kvatt sjónarsviðið síðustu misseri. Framkvæmdastjóri Lunga telur að álag á skipuleggjendur og takmarkað fjármagn spili þar stórt hlutverk. Innlent 19.2.2024 10:05
Hvetur íslensk stjórnvöld að banna sjókvíaeldi áður en það verður of seint Umhverfisráðherra Washingtonríkis í Bandaríkjunum hvetur íslensk stjórnvöld að banna sjókvíaeldi. Hún segist óska þess að hún sjálf hefði bannað það í heimaríkinu áður en 350 þúsund eldislaxar sluppu út í náttúruna. Innlent 19.2.2024 10:00
Tugþúsundir mótmæltu aðför forsetans að frjálsum kosningum Tugir þúsunda mótmæltu á Zocalo-torgi í Mexíkóborg um helgina, tilraunum forsetans Andrés Manuel López Obrador til að grafa undan og veikja El Instituto Nacional Electoral. Erlent 19.2.2024 09:06
„Katrín sagðist ætla að grípa okkur“ Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður og kennari, segir síðustu mánuði hafa verið ótrúlega rússibanareið. Framtíð Grindvíkinga sé enn óráðin en að það sé nú komið fram frumvarp um húsnæðisstuðning sem þurfi þinglega meðferð en muni vonandi leysa úr einhverri óvissu. Innlent 19.2.2024 08:50
Með hústökumann í íbúðinni á Kanarí Sænsk fjölskylda er ráðþrota eftir að maður braust inn í íbúð í þeirra eigu á Kanaríeyjunum síðastliðinn nóvember og gerðist þar hústökumaður. Fjölskyldan bíður úrskurðar spænskra dómstóla en maðurinn hefur meðal annars leigt íbúð þeirra út til annarra á Airbnb í millitíðinni. Erlent 19.2.2024 08:22
Sendiherrar Bandaríkjanna og Bretlands minnast Navalní Sendiherrar Bandaríkjanna og Bretlands í Rússlandi lögðu báðir blóm að minnisvarða um andófsmanninn Alexei Navalní nú um helgina. Talið er að um 400 manns hafi verið handteknir á fjöldafundum í kjölfar dauða Navalní í síðustu viku. Erlent 19.2.2024 08:15
Danskur gullhringur sagður hafa verið í eigu konungborinna Danskir fornleifafræðingar hafa fundið danskan gullhring á suðurhluta Jótlands sem talinn er vera frá fimmtu til sjöttu öld. Hann er talinn hafa verið í eigu konungborinnar fjölskyldu sem er þá talin hafa ráðið lögum og lofum á svæðinu á þessum tíma. Erlent 19.2.2024 07:55