Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Lewis Hamilton, sjöfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn og liðsmaður Ferrari, sér eftir ummælum sem hann lét falla í samskiptum við lið sitt og í viðtölum eftir erfiða keppni í Hollandi um síðastliðna helgi. Formúla 1 25.8.2026 11:30
Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Eftir sigurinn í hollenska kappakstrinum í gær hefur Lando Norris unnið tvo kappakstra í röð í Formúlu 1. Ef McLaren-bíllinn heldur áfram að bæta sig gæti hann orðið mesti keppinautur Kimi Antonelli sem situr í efsta sæti heimsmeistaramótsins. Formúla 1 24.8.2026 20:00
Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Lewis Hamilton, ökuþór Ferrari, var pirraður út í lið sitt þegar að hollenski kappaksturinn fór fram í gær. Formúla 1 24.8.2026 07:30
Verstappen skrifaði undir nýjan samning Fjórfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn Max Verstappen hefur kveðið niður orðróm þess efnis að hann sé að fara yfirgefa mótaröðina með því að skrifa undir nýjan langtímasamning til ársins 2030 við Red Bull Racing liðið. Formúla 1 20.8.2026 09:07
Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Isack Hadjar mun ekki keyra í hollenska kappakstrinum um helgina. Hann er meiddur á úlnlið og mun Liam Lawson að öllum líkindum koma í hans stað þegar hollenski kappaksturinn fer fram. Formúla 1 19.8.2026 10:02
Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Alex Albon hefur framlengt samning sinn við Williams í Formúlu 1. Nýr samningur mun gilda fram yfir næsta tímabil. Formúla 1 18.8.2026 18:33
Rússar og Belarússar fá að keppa aftur Ökuþórar mega núna keyra undir bæði fána Rússlands og Belarús í öllum akstursíþróttum. Þjóðsöngur beggja landa hefur einnig fengið leyfi til þess að vera spilaður þegar það á við. Formúla 1 14.8.2026 15:17
Nýliðarnir skipta um liðsstjóra Cadillac hefur ráðið Marcin Budkowski sem liðsstjóra í Formúlu 1. Hann tekur við af Greame Lowdon sem var liðsstjóri Cadillac. Formúla 1 12.8.2026 15:34
Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Andrea Stella, liðsstjóri McLaren í Formúlu 1, er bjartsýnn á seinni hluta tímabilsins eftir að liðið vann ungverska kappaksturinn. Liðið á langt í land með að ná fyrsta sætinu en ef marka má frammistöðu liðsins í Ungverjalandi er allt mögulegt. Formúla 1 10.8.2026 14:45
Fór á skeljarnar í sumarfríinu Breski ökuþórinn George Russell nýtti sumarfríið í Formúlu 1 vel og trúlofaðist í sumarfríinu. Tímabilið í Formúlu 1 mun hefjast aftur í lok mánaðar og er George Russell í harðri toppbaráttu. Formúla 1 10.8.2026 09:31
Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Nú er mánaðarfrí í Formúlu 1 og flestir ökumenn taka sér frí í sólríkum löndum og slaka á. Aðrir fá ekki nóg af keppnum og leita í aðrar keppnir til að sigra. Formúla 1 2.8.2026 18:04
Formúla 1 leitar til Evrópu ef stríðsátökin halda áfram Ef átökunum mun ekki linna í Mið-Austurlöndum mun Formúla 1 ekki halda kappakstur þar á þessu tímabili. Verið er að finna lausnir ef þörf er á að færa keppnirnar sem eiga að vera nálægt átakasvæðunum til Evrópu. Formúla 1 29.7.2026 18:01
Hamilton kvartar undan ákvörðunum Ferrari: „Þetta var frekar slæmt“ Lewis Hamilton var ekki sáttur með ákvarðanir Ferrari í ungverska kappakstrinum í gær og sagði þær hafa kostað sig mikilvæg stig í baráttunni um heimsmeistaratitilinn. Formúla 1 27.7.2026 08:01
Ungverski kappaksturinn myndaður af forseta Petr Pavel, forseti Tékklands, var viðstaddur ungverska kappaksturinn í Formúlu 1 í dag. Hann var þó ekki í formlegri heimsókn heldur var hann að vinna sem myndatökumaður. Formúla 1 26.7.2026 17:02
Norris kom sér aftur á sigurbraut Ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1, Lando Norris, náði sínum fyrsta sigri á tímabilinu í ungverska kappakstrinum í dag. Miklar sviptingar voru í toppslag kappakstursins. Formúla 1 26.7.2026 15:14
Endurkoma Formúlu 1 til Malasíu staðfest vegna stríðsátaka Fresta þurfti Barein-kappakstrinum í Formúlu 1 fyrr á árinu vegna átaka á svæðinu í kring. Nú hefur verið ákveðið að sá kappakstur sem átti að vera í Barein og var frestað verður haldinn í Malasíu. Formúla 1 26.7.2026 11:32
Byrjar á ráspól eftir ótrúlegan lokahring Lando Norris keyrði hraðast allra í tímatökum fyrir ungverska kappaksturinn í dag. Hann mun því byrja keppnina á morgun fremstur með báða Ferrari-ökumennina fyrir aftan sig. Formúla 1 25.7.2026 15:23
Hefur fundið lausn á vandamálinu í Belgíu George Russell segir að lið hans Mercedes hafi fundið lausnina á því sem lét bílinn hans hökta í belgíska kappakstrinum um síðustu helgi. Hann er staðráðinn í því að geta bætt upp fyrir það í ungverska kappakstrinum um helgina. Formúla 1 24.7.2026 16:31
Keyrir gamla bíla til að viðhalda ást sinni á Formúlu 1 Fernando Alonso er að íhuga framtíð sína í Formúlu 1 en hann er elsti ökumaður sem keppir þar. Spánverjinn er orðinn 44 ára og er að keppa á sínu 24. tímabili í Formúlu 1. Formúla 1 23.7.2026 13:31
Antonelli aftur á sigurbraut eftir harða keppni Kimi Antonelli komst aftur á sigurbraut í Formúlu 1 kappakstrinum í Belgíu eftir að hafa misst af toppsætinu í síðustu þremur keppnum. Formúla 1 19.7.2026 14:50
Sjáðu árekstur Hamilton og Russell á fyrsta hring Lewis Hamilton hjá Ferrari og George Russell hjá Mercedes lentu í árekstri á fyrsta hring Formúlu 1 kappakstursins í Spa í Belgíu. Formúla 1 19.7.2026 14:05
Hamilton klessti og Ferrari í kapphlaupi við tímann Lewis Hamilton klessti á vegkant á lokaæfingunni fyrir Formúlu 1 kappaksturinn sem fer fram í Belgíu um helgina. Vélvirkjar Ferrari eru nú í óða önn að gera við bílinn og vonast til að gera hann kláran fyrir tímatökuna sem fer fram síðdegis. Formúla 1 18.7.2026 13:10
Verstappen breytir bílnum eftir tvo árekstra Max Verstappen mun breyta afturvængnum á Red Bull-bifreið sinni í Formúlu 1. Hann hefur klesst á í síðustu tveim keppnum og má ástæðuna rekja til afturvængs bílsins. Formúla 1 16.7.2026 14:30
Fyrsti sigur Leclerc í tvö ár Charles Leclerc vann sína fyrstu keppni í tvö ár eftir dramatískan breska kappakstur í Formúlu 1. Mikil dramatík var í keppninni en bíll Kimi Antonelli bilaði undir lok kappakstursins ásamt því að þurfti að senda út öryggisbíl. Formúla 1 5.7.2026 16:03