Innlent

Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssu­maðurinn dæmdur

Skipverji á fiskiskipi hefur verið sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og vopnalagabrot, með því að hafa skotið þremur skotum að dróna Fiskistofu, sem notaður var við veiðieftirlit, í nóvember árið 2024. Skipverjinn var dæmdur til greiðslu 150 þúsund króna sektar.

Innlent

Ís­land skari fram úr ESB á flestum mæli­kvörðum

Ísland stendur heilt yfir mjög vel í samanburði við ríki Evrópusambandsins þegar horft er til lífskjara, kaupmáttar, atvinnuþátttöku, framleiðni og opinberra fjármála. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri greiningu Konráðs Guðjónssonar hagfræðings hjá Kontext.

Innlent

Rann­saka málið sem hatursglæp

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál um skemmdarverk á regnbogafána á tröppum Grafarvogskirkju. Lögregla segir málið rannsakað sem hatursglæp. 

Innlent

Sneri sér við, greip í spaðann á Krist­rúnu og gekk út

Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins fór fram í Ankara í Tyrklandi í gær og í morgun en Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur farið mikinn þar. Athygli vakti að eftir myndatöku með leiðtogum bandalagsins sneri Trump sér við og tók í spaðann á Kristrúnu Frostadóttur en engum öðrum.

Innlent

Elds­voði á Siglu­firði nam þriðjungi bættra tjóna

Heildarupphæð bættra brunatjóna nam rúmum þremur milljörðum í fyrra en fjöldi bættra tjóna var lægri en undanfarin ár og stórbrunar færri. Bruni í atvinnuhúsnæði fyrirtækisins Primex á Siglufirði nam þriðjungi þeirra bættra tjóna. 

Innlent

Ekki já­kvætt þegar lög­regla tekur af manni launin

Stofnandi Rauðu regnhlífarinnar, samtaka kynlífsverkafólks, lýsir áhyggjum af því að lögregla hafi lagt hald á laun mansalsþolenda. Það sé til þess fallið að stefna þeim í frekari skuld. Það sé einnig áhyggjumál að tveimur þolendum hafi verið vísað úr landi enda haldi þeir líklegast áfram að vera vændismansalsþolendur þar. Seljendur vændis veigri sér við að tilkynna ofbeldi til lögreglu.

Innlent

Um­mæli Trump um Græn­land þurfi ekki að koma á ó­vart

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland þurfi ekki að koma á óvart. Hún segist þó vongóð um að farsæl lausn náist þar sem formlegur vinnuhópur bandarískra, danskra og grænlenskra stjórnvalda sé starfandi.

Innlent

Skemmdar­vargar máluðu yfir regn­bogafánann

Málað var yfir fána hinsegin fólks við tröppur Grafarvogskirkju í nótt með íslensku fánalitunum. Í samtali við fréttastofu staðfestir séra Arna Ýrr Sigurðardóttir að gjörningurinn hafi ekki verið á vegum kirkjunnar.

Innlent

Hættu­á­stand skapist eftir frá­hvarf 3G

Byggðaráð Múlaþings lýsir þungum áhyggjum af skerðingu fjarskipta í sveitarfélaginu í kjölfar þess að slökkt var á 2G og 3G sendum. Sveitarfélagið er sérlega víðfeðmt og teygir sig frá Borgarfirði eystri suður á Djúpavog.

Innlent

Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina

Suðvestlæg átt verður ríkjandi á landinu í dag, vindur þrír til tíu metrar á sekúndu. Skýjað er yfir landinu en bjart að mestu á austanverðu landinu. Hiti gæti náð allt að tuttugu og fimm stigum um helgina.

Innlent

Um­ferð eykst milli ára

Umferð á Hringveginum eykst um eitt prósent milli ára samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar á fyrstu sex mánuðum ársins. Telst sú aukning lítil þar sem árleg aukning frá árinu 2022 til 2025 nam 4,8 prósentum.

Innlent

Hand­tekinn eftir röð inn­brota

Alls gistu þrír fangageymslur Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Hún hafði afskipti af fjölmörgum ökumönnum í nótt og maður var gripinn eftir röð innbrota.

Innlent

„Hafa út­sendara á sínum snærum á Ís­landi“

Lögregla segir að starfsemi vændismansals hér á landi sé að miklu leyti stýrt erlendis frá. Að undanskildu vændinu sjálfu fari starfsemin stundum öll fram í gegnum netið, en erlendir glæpahópar hafi þó útsendara hér á landi til að sinna eftirliti með þolendum vændismansals.

Innlent