Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Hætta er á mistökum í dag, bæði hjá þér og öðrum. Þess vegna er nauðsynlegt að fara varlega í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Ekki láta neinn telja þér hughvarf ef þú ert viss um hvað það er sem þú vilt. Gættu vel að eignum þínum og ekki lána neina fjármuni.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú átt mjög annríkt og er líklegt að þú gerir mistök vegna þess, sérstaklega í sambandi við einhverja mikilvæga ákvörðum sem þú þarft að taka.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þó að dagurinn verði annasamur og þú fáir krefjandi verkefni í hendurnar veitir það þér ánægju. Þér tekst vel upp með allt.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Viðskipti þín ættu að ganga vel í dag og nú er rétti tíminn til að ganga frá samningum. Þú gætir jafnvel gefið öðrum ráðleggingar.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þér finnst þú hafa mikið að gera og ert með mörg járn í eldinum. Með betra skipulagi gætir þú átt fleiri frístundir fyrir þig og fjölskylduna.

Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)

Þar sem skoðanir manna eru mjög mismunandi er gáfulegast fyrir þig að hlusta á hvað aðrir hafa að segja um málin. Eitthvað sem þú varst nærri búinn að gleyma kemur upp á yfirborðið.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Þú átt góðan dag í vændum bæði heima og í vinnunni. Þú lýkur verkefni sem þú hefur verið að vinna að lengi og er því ástæða til að gera sér glaðan dag.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú kynnist nýju og áhugaverðu fólki á næstunni. Það skiptir miklu máli að þú komir vel fyrir. Þú átt framtíðina fyrir þér.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Peningamálin eru ofarlega á baugi og þú þarft að fara vandlega í gegnum málin áður en þú tekur einhverjar ákvarðanir. Rómantíkin blómstrar.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Dagurinn verður að mörgu leyti sérstakur og þú kynnist nýrri hlið á persónu sem þú umgengst mikið. Kvöldið lofar góðu varðandi ástarlífið.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Það verður mikið um að vera í dag en ef þú leggur hart að þér mun allt ganga að óskum. Kvöldið verður skemmtilegt og ekki er ólíklegt að gamall vinur líti í heimsókn.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Breytingar verða á lífi þínu á næstunni og þær hafa áhrif til langs tíma. Þú þarft að lesa á milli línanna til að skilja hvað fólk er að fara.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Ef þú ert of fullur sjálfstrausts gæti það leitt til þess að þú takir of mikið að þér og getir ekki sinnt öllu sem skyldi. Hægðu aðeins á þér og reyndu frekar að gera það sem þú gerir vel.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þér finnst þú hafa of mikið að gera og aðrir í fjölskyldunni komast létt frá því sem gera þarf. Gamall vinur hefur samband við þig.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Ekki treysta á aðra til að hjálpa þér að halda loforð þín eða leysa verkefni fyrir þig. Treystu heldur á eigin dómgreind og þá mun allt fara vel.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú verður að vera á varðbergi gagnvart fólki sem vill hagnast á þér. Það gæti eyðilagt vinnu sem þú ert búinn að leggja á þig.

Menning