
Skoðun

Hemjum hamfarahamingjuna
Í þriðja sinn á rúmum tveimur árum gýs nú á Reykjanesskaganum. Í þriðja sinn erum við tiltölulega heppin því hvorki er um að ræða mikið gosútfall sem ógnar flugi til og frá landinu eða veldur slæmu öskufalli í grennd gossins, né er gosið staðsett þannig eða af þeirri stærðargræðu að það ógni innviðum og íbúðabyggð.

Kyrrsett og réttindalaus á Íslandi
Íslenska ríkið hefur nú í vörslum sínum vegabréf afganskrar konu og barns hennar, sem eru kyrrsett á Íslandi án þess að ríkið telji sig bera ábyrgð á þeim.

Smábátaútgerð eða hefðbundin útgerð?
Nýlokin er ólympískum veiðum smábáta sem er tímabil þar sem fallegir hraðfiskbátar setja mark sitt á nokkrar hafnir landsins. Um leið birtast fallegar myndir af þessum draumaheimi smábátasjómannsins sem siglir um í veðurblíðunni eins og landsmenn hafa notið síðustu daga. En það getur verið fróðlegt að skoða nokkrar tölfræðilegar sviðsmyndir í kringum þessa draumaveröld.

Öryggi og velferð í Uppsveitum
Sem íbúi í Uppsveitum Árnessýslu er ég mjög hugsi þessa dagana varðandi öryggi og velferð okkar hér í því samfélagi sem við búum og störfum í.

Tímaspursmál hvenær sjókvíaeldi útrýmir villta laxinum
Hafrannsóknarstofnun gaf nýverið út skýrslu sem sýndi fram á það án nokkurs vafa að sjókvíaeldið hefur stofnað íslenska laxastofninum í mikla hættu. Ef miðað er við niðurstöður stofnunarinnar má ætla að hnitmiðuð árás hafi verið gerð á villta laxinn og heimkynni hans.

Eldgos hafið - Er heimilið tryggt?
Eldgos er hafið á Reykjanesskaga enn á ný, nú í norðvesturhluta Litla-Hrúts. Við mælum með að gefa viðbragðsaðilum rými til þess að kanna aðstæður og hvetjum fólk að leggja ekki leið sína að gosinu strax.

Öngstræti matvælaráðherra
„Allar mínar ráðstafanir eru í samræmi við ráðgjöf ráðuneytisins,“ sagði matvælaráðherra í kvöldfréttum Stöðvar tvö fyrir helgi. Það má vel staldra við þá yfirlýsingu ráðherrans í ljósi þess að fyrir liggur hvaða ráðleggingar hún fékk frá ráðuneyti sínu, hvað hún svo gerði og hverjar afleiðingarnar eru af þeirri ákvörðun. Þessi fullyrðing stenst einfaldlega ekki skoðun. Kjarni málsins er þessi.

Kurteisleg afkynjun Sigmundar Ernis, enda séu kyn í íslensku vart fleiri en tvö …
Mannlíf birtir okkur iðulega brot úr umræðunni eins og hún gengur og gerist á íslenskum samfélagsmiðlum, þ.á.m. nú um daginn textabrot úr hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar þar sem hann ræðir við Sigmund Erni Rúnarsson, rithöfund, ritstjóra og fjölmiðlamann með meiru, einnig fyrrum alþingismann:

Verður pláss fyrir börnin?
Ríkið setur ekki krónu til sveitarfélaganna til reksturs leikskóla og sveitarfélögin hafa tekið við þessu verkefni án þess að það sé skylduverkefni þeirra. Þau hafa í raun brugðist ótrúlega vel við og unnið kraftaverk miðað við þær aðstæður, þó kerfið sé samt allt í lamasessi.

Framsókn og Samfylking tapa fluginu
Fremsti framagosi Framsóknarflokksins gerðist staurfótur sísta Samfylkingarstjórans í Reykjavík. Viðreisn síðasta kjörtímabils var svo sem ekki tignarlegri, en þessi er grátleg. Við bundum nefnilega vonir við Einar Þorsteinsson, og að hann myndi verja þjóðarflugvöllinn með kjafti og klóm.

Á degi leiðtogafundar NATO í Litháen
Nú eru daprir tímar í sögu Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Flokkur ykkar er í ríkisstjórn sem styður og stendur að sívaxandi hernaðarbrölti. Nú hefur verið ákveðið að láta Úkraínumenn hafa svokallaðar klasasprengur, drápstól sem eru svo ógeðsleg og villimannleg að jafnvel hörðustu hernaðarsinnum ofbýður og hafna notkun þeirra, enda eru þau nær allstaðar bannaðar í hernaði.

Hvað um hvalina?
Ég hlustaði á Spengisand Bylgjunnar þann 9 júlí, m.a. viðtalið við Óla Björn Kárason þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins um hvalveiðibannið.

Hið smokklausa 9 daga sumar
Á hverju ári kem ég til Kaupmannahafnar og er þar í viku eða tvær. Ég vafra um á kassa hjólinu og heimsæki staði og vini. Í gær hjóluðum við um 100 kílómetra, Vesterbro-Langelinie-Norrebro-Vesterbro-Christania-Orested-Vesterbro, geggjaður 12 tíma túr.

Afmyndun þjóðarsálar
Áhugi minn á tilvonandi eldgosi hefur verið yfirstiginn af áhuga mínum á umræðunni í kringum það. Um leið og við byrjum að finna fyrir skjálftahrinum og förum að vænta eftir gosi er það fyrsta sem við viljum vita ekki hvort það muni koma til með að hafa áhrif á loftgæði, búskap eða almenn lífsskilyrði - heldur hvort það verði til þess fallið að auka streymi ferðamanna hingað til lands. Hvenær var þetta falska samasemmerki dregið milli ferðaþjónustunnar og almannahagsmuna?

Fals on í fals á fals ofan?
Undanfarnar vikur hefur opinberast smátt og smátt með hvaða hætti stöðugleikaeignir sem ríkissjóður eignaðist við uppgjör föllnu bankanna voru og hafa verið meðhöndlaðar í meðförum fjármálaráðuneytisins, Lindarhvols ehf, framkvæmdaaðilum sölu eignanna og þeirra sem sjá áttu um eftirlit með framkvæmd sölu eignanna.

Íbúalýðræði í Reykjavík komið til að vera
Íbúalýðræði og íbúaráðin í Reykjavík hafa verið til umræðu síðustu misserin eftir íbúaráðsfund Laugardals fyrir stuttu en þar átti sér stað einstakt atvik sem búið er að biðjast afsökunar á. Atvik sem á engan hátt endurspegla mikilvægt starf íbúaráðanna í hverfum borgarinnar.

Aðeins þau sterku lifa af, ef svo, hver eru þau?
Við þekkjum öll umræðuna – aðeins þau sterku lifa af. Þetta hefur verið viðloðandi í samfélögum og nokkuð eftirsóknarverð birtingarmynd að vera þau sem eru sterk og lifa af.

Siðleysi að sumri til
Ég sit hér úti í garði það sér mig ekki nokkur. Sólin leikur um mig og jörðin skelfur! Það er loksins komið sumar sem við öll höfuð þráð lengi sérstaklega sunnan heiða. En vegna sorglegra siðlausra mála undanfarna daga er ég ekki að njóta sólarinnar.

Mannréttindi eiga að vera í forgangi
Vandræðagangurinn á matvælaráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, virðist ómælanlegur þegar litið er til stjórn hennar á sameiginlegri fiskveiðiauðlind landsmanna. Frumvörp hennar um stjórn fiskveiða hafa annað hvort miðað að því að færa fleiri nytjategundir inn í gjafakvótakerfið á borð við grásleppuna eða hleypa togskipum með óheftu vélarafli upp í fjöru.

Um orð
Hvert einasta orð í hverju einasta tungumáli heimsins er búið til af mannfólki í þeim tilgangi að ná utan um tilveru okkar. Orðið orð var búið til, sömuleiðis orðið heimili, orðið foreldri og ævintýri, orðin uppþvottavél, fordrykkur og fartölva, líka stjörnuþoka, sorg og ljósleiðari, orðin vinátta og verkstæði, hugbúnaður og hamingja. Amma og afi.

Project Lindarhvoll
Greinargerð ríkisendurskoðanda sýnir hvernig helsti ráðgjafi fjármálaráðuneytisins mætir á fyrsta stjórnarfund Lindarhvols með prókúru á bankareikning félagsins og drög að samningi við sjálfan sig. Þannig er lagt af stað í það verkefni að selja stöðugleikaeignir hrunbankanna á útsölu - verkefni sem átti að vera til fyrirmyndar þar sem andvirði eignanna væri hámarkað.

Hvenær á að sækja um hjá Tryggingastofnun?
Hvernig myndum við lýsa vel heppnuðu opinberu kerfi? Ætli við getum ekki verið sammála um að slíkt kerfi þurfi að styðja við þau sem þurfa á stuðningi að halda? Það þarf væntanlega að vera sanngjarnt, þó svo endalaust verði eflaust deilt um hvað telst nógu sanngjarnt.

Fiskveiðiráðgjöf og strandveiðar
Árið 1995 var innleidd hér 25% aflaregla í fiskveiðiráðgjöf og var hún við líði í 10 ár Á þessum árum var veiði á þorski umfram ráðgjöf samtals um 149 þús tonn eða að jafnaði tæp 15 þús. tonn á ári. Við upphaf tímabilsins, þ.e. veiðiárið 1995-1996 var ráðgjöfin 155 þús tonn en við lok tímabilsins 2004-05 var hún 205 þús tonn eða um þriðjungi meiri en í upphafi. Umframveiðin virðist því ekki hafa haft neikvæð áhrif á veiðistofnstærðina, nema síður sé.

Um orðskrípagerð aktívista
Svokölluð hýryrðakeppni Samtakanna ´78 hefur borist í umræðuna undanfarna daga. Samtökin auglýsa eftir kynhlutlausum orðum enn eina ferðina sem eiga að ,,auðga tungumálið”. Í þetta sinn óska þau eftir orði sem á að vera kynhlutlaus amma/afi.

Heimsmarkmið um sjálfbæra þróun og alþjóðleg smitáhrif Íslands
Sjálfbærni og sjálfbær þróun eru lykilhugtök fyrir framtíð Jarðar og velsæld okkar og komandi kynslóða. Sjálfbær þróun hefur verið skilgreind sem þróun sem mætir þörfum samtímans án þess að draga úr möguleikum komandi kynslóða til þess að mæta sínum þörfum.

Gögnin afhent – alvarlegur misbrestur blasir við
Í gær afhenti matvælaráðuneytið loks gögn í máli tengdu ákvörðun hennar um að stöðva veiðar fyrirvaralaust á langreyðum þetta sumarið. Voru þá liðnir 15 dagar frá því SFS óskuðu eftir umræddum gögnum.

Fullyrðingar Bjarna Jónassonar hjá Umhverfisstofnun hraktar
Vísir birti 5. júlí frétt um hreindýraveiðar, en Fagráð um velferð dýra, sem á, skv. lögum, að veita stjórnvöldum leiðsögn og ráðgjöf um veiðar viltra dýra og velferð þeirra, hafði endurtekið beint þeim tilmælum til Umhverfistofnunar og umhverfisráðherra, að griðartími hreinkálfa yrði lengdur, en báðir aðilar höfðu hunzað þessi tilmæli Fagráðs, nú árum saman.

Lífsbjörg og lífsvon óháð kostnaði – Lögbundinn réttur sjúklinga
Stjórnmálamenn taka í sífellu ákvarðanir sem varða líf fólks og lífsafkomu. Ákvarðanirnar eru af margvíslegum toga og snerta alla fleti mannlegs lífs hvort sem um er að ræða fjárhagslega stöðu einstaklinga menntun þeirra eða heilbrigði. Heilbrigði er einmitt viðfangsefni þessa pistils.

Sjálfbært Ísland og smitáhrif okkar á heimsvísu
Sjálfbær þróun er eitt mikilvægasta viðfangsefni okkar tíma. Hún snýst um að við ofnýtum ekki auðlindir jarðar, svo að það komi niður á lífsgæðum komandi kynslóða. Á síðustu fimmtíu árum hefur hallað mjög á ógæfuhliðina í þessum efnum.

Samtök atvinnulífsins í mannréttinda-grímubúningi
Samtök atvinnulífsins (SA) eru hagsmunasamtök íslenskra atvinnurekenda. Samtökin taka hlutverk sitt sem hagsmunaverðir fyrirtækja mjög alvarlega og líta ekki á það sem markmið að gæta að réttindum launafólks.