Tónlist
188 189 190 191 192 193 194 195 196 … 226 ›
Færeyskir tónleikar í Norræna húsinu Í kvöld verða færeyskir tónleikar í Norræna húsinu þar sem Jensina Olsen, Budam og Jógvan Íslandsvinur Hansen munu stíga á stokk. Budam er einn af ástsælustu listamönnum Færeyja og hefur fengið firnagóða dóma hér. Tónlist 15.9.2007 14:00
Miðasala á Iceland Airwaves hefst á morgun Miðasala á hina árlegu tónlistarhátíð Iceland Airwaves hefst á morgun. Hátíðin fer fram í níunda sinn í miðborg Reykjavíkur dagana 17-21 október næstkomandi. Þegar hafa 160 hljómsveitir og flytjendur boðað komu sína á hátíðina en gert er ráð fyrir að þeir verði um 200. Tónlist 11.9.2007 14:39
Mezzoforte til Köben Sigurður Kolbeinsson sem er í forsvari fyrir Hótelbókanir í Kaupmannahöfn mun standa fyrir tónleikum með hljómsveitinni Mezzoforte á skemmtistaðnum Vega í Kaupmannahöfn þann 25. apríl næstkomandi. Tónlist 4.9.2007 12:06
Ljótu Hálfvitarnir og Hvannadalsbræður á NASA Ljótu Hálfvitarnir og Hvannadalsbræður munu leiða saman hesta sína fimmtudaginn 6. september og halda tónleika á NASA. Báðar sveitirnar gáfu út plötur snemma í sumar undir merkjum Senu. Hvannadalsbræður gáfu út diskinn "Skást off" þar sem skástu lög af þremur diskum sveitarinnar var safnað saman. Ljótu hálfvitarnir gáfu út frumraun sína "Ljótir Hálfvitar." Tónlist 4.9.2007 11:25
Fáanleg í október Fyrsta sólóplata rokkstjörnunnar Magna Ásgeirssonar verður fáanleg í stafrænu formi í Bandaríkjunum frá og með 2. október næstkomandi. Magni á stóran aðdáendahóp í Bandaríkjunum eftir þátttöku sína í raunveruleikaþættinum Rock Star: Supernova og því verður fróðlegt að sjá hvernig viðtökur platan fær. Tónlist 3.9.2007 08:00
Melódísk poppmúsík Laga- og textasmiðurinn Ólafur Sveinn Traustason hefur gefið út sína fyrstu plötu, sem nefnist einfaldlega Óli Trausta. Á plötunni, sem kemur út á vegum Zonet, eru tólf lög í flutningi söngvara á borð við Pál Rósinkranz, Sigurjón Brink og Edgar Smára Atlason. Tónlist 2.9.2007 12:30
Ánægður með Volta Bandaríski tónlistarmaðurinn Josh Groban hefur miklar mætur á nýjustu plötu Bjarkar Guðmundsdóttur, Volta, sem kom út fyrr á árinu. Tónlist 2.9.2007 09:00
Unnið að komu Pearl Jam Rokkarinn Chris Cornell hyggst nýta væntanlega Íslandsferð sína vel en hann heldur tónleika í Laugardalshöll laugardaginn 8.september. Rokkarinn kemur hingað ásamt eiginkonu sinni, Vicky Karayiannis, á fimmtudaginn og fer ekki fyrr en á sunnudeginum. Tónlist 1.9.2007 12:30
Kórfélagar sungu í MH Fyrrum meðlimir kórs Menntaskólans við Hamrahlíð komu fram á tónleikum á fimmtudagskvöld í tilefni þess að kórinn er fertugur á árinu. Einnig var um styrktartónleika að ræða því allur ágóði rennur í ferðasjóð kórsins, sem er á leiðinni til Kína. Tónlist 1.9.2007 10:00
Funheit ferðalög Magga og KK „Ferðaplötur“ KK og Magga Eiríks hafa selst í um 28 þúsund eintökum. Þeir félagar fá afhenta gullplötu fyrir þá síðustu, Langferðalög, á lokatónleikum sínum í Salnum 13. september. Tónlist 1.9.2007 07:00
Ljósanæturlagið umdeilt í Reykjanesbæ Lag Ljósanætur í ár er umdeilt í Reykjanesbæ ef marka má vefinn mannlif.is. Lagið, sem heitir Ó, Keflavík og er eftir Jóhann Helgason þykir hefja Keflavík upp til skýjanna og gagnrýnt er að sveitarfélögin sem mynda Reykjanesbæ ásamt Bítlabænum komi hvergi við sögu. Tónlist 29.8.2007 07:30
Benni og Lekman í hljóðver Tónlistarmennirnir Benedikt Hermann Hermannsson og hinn sænski Jens Lekman fóru í hljóðver um síðustu helgi og tóku upp nokkur lög saman. Ekki hefur verið ákveðið hvenær lögin koma út. Tónlist 29.8.2007 07:00
Ölvis: Bravado - þrjár stjörnur Ölvis er einmenningssveit Örlygs Þórs Örlygssonar en hann kom mjög á óvart með annarri breiðskífu sinni, The Blue Sound, sem kom út seint á árinu 2005. Bravado er því þriðja breiðskífa Ölvisar og er hún gefin út af Resonant í Bretlandi. 12 Tónar sjá hins vegar um dreifingu hér heima. Bravado inniheldur margt af því góða sem finna mátti á The Blue Sound. Tónlist 28.8.2007 09:30
Yndislegur metnaður Hljómsveitin Skátar fær góðan dóma fyrir fyrstu plötu sína, Ghost of the Bollock to Come, í enska tónlistartímaritinu Plan B Magazine. Þar segir að platan sé aldeilis frábær þar sem ýmsum tónlistarstefnum sé blandað saman. Tónlist 28.8.2007 09:00
Tónleikaferð lokið Hljómsveitin The Rolling Stones hefur lokið "A Bigger Bang"-tónleikaferð sinni um heiminn sem hefur staðið yfir í tvö ár. Orðrómur hefur verið á kreiki um að þetta sé síðasta tónleikaferð sveitarinnar, enda Jagger, Richards og félagar komnir vel á sjötugsaldurinn. Tónlist 28.8.2007 08:30
Hjaltalín og Magnet - fjórar stjörnur Norræna menningarhátíðin Reyfi er eitt stórt metnaðarfullt fyrirbæri sem hefur ekki fengið nærri nógu mikla umfjöllun. Menningaratburðir af þessu tagi hefur vantað í íslenskt þjóðlíf. Sérstakur glerskáli hefur verið fluttur til landsins til þess að hýsa aðalatburði hátíðarinnar og sómaði hann sig vel á lóðinni fyrir utan Norræna húsið. Tónlist 28.8.2007 08:00
Í Höllinni í október Tónlistarmaðurinn Rúnar Júlíusson heldur stórtónleika í Laugardalshöll 27. október. Þar mun Rúnar, ásamt stórri hljómsveit, flytja mörg sín bestu lög af löngum ferli, auk laga af nýjustu plötu sinni, Snákar í garðinum. Tónlist 28.8.2007 07:30
Fyrsta plata Eagles í 28 ár Sveitarokksveitin The Eagles gefur þann 31. október út sína fyrstu hljóðversplötu með nýju efni í 28 ár. Platan heitir Long Road Out Of Eden og nefnist fyrsta smáskífulagið How Long. Tónlist 28.8.2007 07:00
Feðgin sungu með Sniglabandinu Tónlistarmaðurinn Magnús Þór Sigmundsson steig óvænt á svið með Sniglabandinu er þeir útvörpuðu beint frá Hveragerði síðastliðinn sunnudag. "Ég var bara staddur þarna og þeir kölluðu mig upp," segir Magnús Þór, sem söng með þeim lag sitt "Jörðin sem ég ann". Tónlist 28.8.2007 06:30
Hljómsveit öfganna Ein sérstæðasta hljómsveit nútímans, Liars, fagnar þessa dagana útkomu nýrrar breiðskífu. Steinþór Helgi Arnsteinsson lagði við hlustir og grúskaðist fyrir um sveitina. Tónlist 24.8.2007 08:00
Iceland Airwaves á iTunes Icelandic Music Export, í samstarfi við aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves, mun gefa út sérstakan safndisk í tilefni hátíðarinnar sem fáanlegur verður á iTunes í Bandaríkjunum. Tónlist 24.8.2007 07:45
BB og Blake í leitirnar „Samstarfið byrjaði þegar ég fékk Magga til að semja tónlist fyrir stuttmyndina mína, Monsieur Hyde,“ segir BB, eða Vera Sölvadóttir, annar helmingur hljómsveitarinnar BB and Blake. Stuttmynd þessi verður sýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík í haust. Tónlist 24.8.2007 07:00
Sigga hátíðleg á væntanlegri sólóplötu „Það var kominn tími á að drífa sig í gang. Ég er búin að liggja allt of lengi í leti,“ segir söngkonan Sigríður Beinteinsdóttir, en hún er að hefjast handa við að búa til sína fyrstu sólóplötu í fjögur ár. Upptökur á plötunni hefjast strax eftir helgi og mun Sigríður meðal annars njóta aðstoðar sinfóníuhljómsveitar Búlgaríu við gerð hennar. Tónlist 24.8.2007 06:45
Fyrsta plata Pink Floyd endurútgefin Fyrsta plata Pink Floyd, The Piper at the Gates of Dawn, verður endurútgefin á þremur diskum hinn 3. september í tilefni af fjörutíu ára afmæli hljómsveitarinnar. Tónlist 24.8.2007 06:30
Ólöf Arnalds með síðdegistónleika Ólöf Arnalds heldur síðdegistónleika í verslun 12 Tóna við Skólavörðustíg á morgun. Þar mun hún leika lög af plötunni Við og Við sem kom út hjá 12 Tónum í vor og kemur út í Evrópu í næsta mánuði. Tónlist 23.8.2007 11:38
Stuðmenn í Mosó Hljómsveitirnar Stuðmenn og Gildran spila á útitónleikum á íþróttavellinum að Varmá í Mosfellsbæ í kvöld. Tilefnið er bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima, sem er nú haldin í þriðja sinn dagana 23. til 26. ágúst. Bærinn er tuttugu ára og verður dagskráin því sérlega vegleg í þetta sinn. Tónlist 23.8.2007 09:45
Jónas með tónleika Jónas Ingimundarson píanóleikari verður með tvenna tónleika á næstunni utan höfuðborgarinnar. Á föstudagskvöld spilar hann í kirkjunni í Borgarnesi. Þeir tónleikar hefjast kl. 20, og annan fimmtudag verður hann með tónleika á Sögusetrinu á Hvolsvelli, kl. 21. Tónlist 23.8.2007 09:30
Í Höllinni 13. október Megas og Senuþjófarnir halda tónleika í Laugardalshöll laugardaginn 13. október. Eins og kom fram í Fréttablaðinu fyrir skömmu ætlar Megas að spila í Höllinni í tilefni af útgáfu plötunnar Frágangur. Hefur platan selst í um þrjú þúsund eintökum og er fjórða söluhæsta plata Megasar frá upphafi. Tónlist 23.8.2007 08:45
Frumsamið R&B á Gauknum Hljómsveitin Soul 7 heldur tónleika á Gauki á Stöng í kvöld. Leikin verða frumsamin lög eftir söngkonuna Katrínu Ýr Óskarsdóttur og Katherine Dawes, samnemanda Katrínar í tónlistarskóla í London. Einnig verða leikin þekkt R&B lög með blús-, fönk- og gospelívafi. Tónlist 23.8.2007 07:00
Endurnærðir Papar snúa aftur Paparnir ætla að dusta rykið af hljóðfærunum eftir gott frí og spila á nokkrum vel völdum stöðum frá 24. ágúst til 19. október. Þeir hafa ekkert komið fram síðan 18. apríl og eru því orðnir verulega endurnærðir. Tónlist 23.8.2007 06:45