Veður
39 40 41 42 43 44 45 46 47 … 47 ›
Áfram hlýtt á suðvestantil en fer kólnandi í öðrum landshlutum Landsmenn mega eiga von á fremur hægri, norðlægri átt í dag en þó verður norðvestan strekkingur á Austfjörðum fram undir kvöld. Veður 26.4.2021 07:27
Suðvestan gola og él á víð og dreif Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan golu eða kalda í dag, fimm til tíu metrum á sekúndu. Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, annars él á víð og dreif. Hiti verður á bilinu núll til sjö stig, en víða næturfrost. Veður 19.4.2021 07:13
Víða sunnanátt með skúrum á landinu Veðurstofan reiknar með sunnan og suðaustan tíu til átján metrum á sekúndu og rigningu eða súld fyrri part dags. Bjart verður að mestu norðaustantil á landinu. Hiti á landinu verður fimm til fjórtán stig, þar sem hlýjast verður á Norður- og Austurlandi. Veður 16.4.2021 07:17
Hlýjast á Norðurlandi og rigning sunnan- og vestantil Landsmenn mega eiga von á vaxandi suðaustanátt í dag, víða þrettán til tuttugu metrar á sekúndu eftir hádegi. Það verður rigning um landið sunnan- og vestanvert, og sums staðar talsverð rigning, einkum á Suðausturlandi. Veður 15.4.2021 07:23
Skýjað með köflum og dálitlar skúrir á víð og dreif Gera má ráð fyrir fremur suðlægri átt í dag þar sem skýjað verður með köflum og dálitlar skúrir á víð og dreif. Bjart veður verður um landið norðaustanvert. Hiti víða fimm til tíu stig. Veður 13.4.2021 07:14
Vindur gæti náð 40 metrum á sekúndu í hviðum Lægðin og snjókomubakkinn sem henni fylgdi er nú á leið austur og fjarlægist landið en skilur eftir hjá okkur norðan strekking eða allhvassann vind. Á Suðausturlandi og á Austfjörðum verður norðvestan hvassviðri eða stormur, 18 til 25 metrar á sekúndu. Veður 8.4.2021 07:16
Vaxandi austanátt og snjókoma eða él Veðurstofan gerir ráð fyrir hægt vaxandi austlægri átt með snjókomu eða él í dag. Má reikna með að í kvöld verði tíu til fimmtán metrar á sekúndu, en á Norðvesturlandi verður norðaustan hvassviðri með éljum og skafrenningi. Gular viðvaranir eru í gildi á Vestfjörðum og við Breiðafjörð frá síðdegis í dag og til morguns. Veður 7.4.2021 07:09
Yfirleitt þurrt og bjart sunnan- og vestanlands Landsmenn mega reikna með hægri, breytilegri átt í dag, en norðvestan strekkingi austast á landinu fram eftir degi. Það verður yfirleitt þurrt og bjart veður á sunnan- og vestanverðu landinu, og eftir hádegi rofar einnig til norðaustanlands. Veður 6.4.2021 07:14
Lægð beinir til okkar hlýju lofti Suðvestur af landinu er 1037 millibara lægð sem beinir til okkar hlýrri suðvestanátt. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands segir að í dag verði víða vindur á bilinu fimm til þrettán metrar á sekúndu en norðan- og norðvestanlands verði fimmtán til tuttugu metrar á sekúndu. Í kvöld mun svo hvessa á Austfjörðum. Veður 31.3.2021 07:42
Léttskýjað í öllum landshlutum Þrýstingur á landinu hefur hækkað nokkuð ört í nótt og er myndarleg hæð að byggjast upp yfir landinu að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Veður 30.3.2021 07:17
Norðanáttin ríkjandi á landinu Norðanáttin verður ríkjandi á landinu í dag þar sem reikna má með éljagangi og skafrenningi norðan- og austantil fram yfir hádegi. Má reikna með átta til fimmtán metrum á sekúndu í dag og frosti yfirleitt núll til fimm stig. Veður 29.3.2021 06:45
Gular viðvaranir vegna yfirvofandi hríðarveðurs Nú er hann lagstur í vaxandi norðanátt og fer að snjóa víða á landinu í dag. Það gengur á með hríðarveðri á norðurhelming landsins eftir hádegi og verða gular veðurviðvaranir vegna hríðar í gildi til hádegis á morgun. Veður 25.3.2021 06:55
Róleg suðvestanátt með éljum Það er spáð rólegri suðvestanátt með éljum í dag en væntanlega mun létta til á Norðaustur- og Austurlandi síðdegis. Hitinn ætti að skríða yfir frostmark víðast hvar en í nótt má svo búast við núll til fimm stiga frosti. Veður 24.3.2021 07:30
Hægur vindur og dálítil él Suðvestanáttin er að ganga niður á landinu og í eftirmiðdaginn verður yfirleitt fremur hægur vindur og dálítil él en þurrt austanlands. Veður 23.3.2021 07:27
„Litlar líkur á öðrum eins sumardegi á Austfjörðum“ Það hefur kólnað talsvert yfir landinu „og eru litlar líkur á öðrum eins sumardegi á Austfjörðum þrátt fyrir að veðrið sé í stórum dráttum svipað,“ að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Veður 19.3.2021 07:14
„Ákaflega hlýtt loft“ yfir landinu Það er ákaflega hlýtt loft yfir landinu nú og í nótt hefur verið allt að fimmtán stiga hiti í hnjúkaþey á Tröllaskaga og á Austfjörðum að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Veður 18.3.2021 06:55
Gul viðvörun og allt að fimmtán stiga hiti Víðáttumikil hæð sem er skammt vestur af Írlandi beinir hlýjum og rökum vindum til okkar en á Norður- og Austurlandi verður úrkomulítið auk þess sem þar munu jafnframt mælast hæstu hitatölurnar. Veður 17.3.2021 06:57
Spá allt að fjórtán stiga hita Víðáttumikil hæð á Biscayaflóa stýrir veðrinu í augnablikinu og beinir votum og mildum sunnanáttum að landinu að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Veður 16.3.2021 07:22
Áfram norðanátt og hvassast undir Vatnajökli Áfram er norðanátt í dag, tíu til átján metrar á sekúndu, þar sem hvassast verður undir Vatnajökli. Búast má við snjókomu norðan- og austanlands en annars bjart með köflum. Veður 12.3.2021 07:16
Djúp lægð nálgast sem veldur hvassri norðanátt Djúp 958 millibara lægð er nú í morgunsárið stödd milli Íslands og Færeyja. Hún nálgast landið enn frekar í dag og veldur hvassri norðanátt á landinu ásamt ofankomu sem einkum verður bundin við norðurhelming landsins. Veður 10.3.2021 07:30
Ný vika heilsar með suðaustanátt og rigningu Eftir hægviðri helgarinnar heilsar ný vika okkur með suðaustanátt og rigningu, víða átta til fimmtán metrum á sekúndu. Búast má við talsverðri rigningu fram eftir degi á Suðausturlandi en lengst af úrkomulítið norðaustanlands. Veður 8.3.2021 07:18
Lægð færir með sér vaxandi suðaustanátt og rigningu Í dag er útlit fyrir breytilega átt, þrjá til átta metra á sekúndu og bjartviðri en lítilsháttar vætu vestan- og norðvestanlands fram undir hádegi. Þá mun bera á vaxandi suðaustanátt og þykknar upp suðvestanlands seint í kvöld. Veður 7.3.2021 08:38
Veðrinu stjórnað af hæðum yfir Bretlandseyjum og Grænlandi Í dag er spáð suðlægri átt, þremur til tíu metrum á sekúndu en austan átta til þrettán við norðausturströndina. Gera má ráð fyrir dálítilli vætu með köflum en lítilsháttar slyddu eða snjókomu norðaustantil fram eftir degi. Hiti verður á bilinu tvö til sjö stig, bjart með köflum og milt veður. Léttir til um sunnanvert landið í kvöld. Veður 6.3.2021 09:00
Hæð milli Íslands og Færeyja heldur lægð fjarri 1.038 millibara hæð milli Íslands og Færeyja stjórnar nú veðrinu hér á landi. Víðáttumikil og djúp lægð gengur nú yfir nærri Nýfundnalandi, en hún kemur ekki við sögu í veðrinu hér á Íslandi þar sem hæðin heldur henni fjarri. Veður verður því með rólegra móti út vikuna. Veður 4.3.2021 07:30
Von á suðaustanátt og víða dálítilli vætu Útlit er fyrir suðaustan fimm til þrettán metrum á sekúndu á Suður- og Vesturlandi með dálítilli vætu. Hiti verður þar víðast á bilinu tvö til sex stig. Veður 3.3.2021 07:24
Víða strekkingur eða allhvasst og rigning Búast má við austan- og norðaustanátt í dag, víða strekkingi eða allhvössum vindi, átta til fimmtán metrar á sekúndu, en heldur hægari á Norðaustur- og Austurlandi. Talsverð rigning suðaustantil á landinu og rigning eða slydda með köflum í öðrum landshlutum eftir hádegi, en snjókoma norðaustanlands. Veður 23.2.2021 07:06
Hægir vestanvindar en sums staðar snjór Landsmenn mega búast við fremur hægum vestanvindum í dag og þar sem mun snjóa sums staðar norðvestan til. Annars staðar verður lítilsháttar slydda eða rigning og mun létta smám saman til á Suðausturlandi. Veður 22.2.2021 07:21
Breytileg átt og rigning, slydda eða snjókoma Spáð er breytilegri átt á landinu í dag, þremur til tíu metrum á sekúndu, og rigningu, slyddu eða snjókomu. Hiti verður um eða yfir frostmarki. Veður 17.2.2021 07:46
Allt að 9 stiga frost en mildara veður á næstunni Í dag er spáð suðaustan- og austanátt, 5 til 10 metrum á sekúndu en 10 til 15 við suðurströndina. Él sunnan- og austanlands, en víða bjartviðri á Norðvestur- og Vesturlandi. Heldur hægari vindur allra syðst seint á morgun. Hiti í kringum frostmark en frost 0 til 9 stig norðan- og austantil. Veður 6.2.2021 10:01
Suðaustlægar áttir ríkja enn um sinn Suðaustlægar áttir ríkja á landinu enn um sinn með strekkingi eða allhvössu við suður- og vesturströndina og stöku él með hita kringum frostmark á þeim slóðum. Veður 5.2.2021 07:10