Sport

Rautt spjald í Frostaskjóli

Sölvi Sturluson fékk rautt spjald á 40. mínútu leiks KR og Vals fyrir að toga niður Matthías Guðmundsson, sóknarmann Vals, er hann var kominn einn gegn markverði KR. Valsmenn fá aukaspyrnu á hættulegum stað sem reyndar ekkert verður úr en KR-ingar leika einum færri það sem eftir er. Rógvi Jacobsen kemur í stöðu miðvarðar í stað Sölva en hann hafði verið í fremstu víglínu ásamt Grétari Hjartarsyni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×