Sport

Tottenham í fjórða sæti

Tottenham Hotspurs skaust í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld þegar liðið lagði Fulham 1-0 á heimavelli sínum White Hart Lane. Það var enski landsliðsmaðurinn Jermain Defoe sem skoraði sigurmark Tottenham strax í upphafi leiks. Leikurinn var nokkuð fjörugur og fengu bæði lið góð tækifæri til að skora fleiri mörk, en niðurstaðan var naumur sigur heimamanna, sem hafa aðeins tapað fyrir Chelsea í úrvalsdeildinni. Það var að öðrum ólöstuðum unglingurinn Aaron Lennon hjá Tottenham sem var maður leiksins, en hann sýndi nokkra mjög lipra spretti og gerir nú fast tilkall til byrjunarliðssætis í liði Tottenham.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×