Sport

Loks sigur hjá Middlesbrough

Middlesbrough vann 2-3 útisigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og lyfti sér með sigrinum upp í 10. sæti deildarinnar. Aiyegbeni Yakubu skoraði 2 mörk fyrir Boro, það seinna úr vítaspyrnu á 88. mínútu en George Boateng eitt. Luke Moore og Steven Davis skoruðu mörk Aston Villa sem er í fimmta neðsta sæti með 6 stig. Þetta var fyrsti sigur Middlesbrough í deildinni síðan 10. september þegar liðið sigraði Arsenal óvænt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×