Sport

Beckham og Rooney sættust

NordicPhotos/GettyImages
Ensku landsliðsmennirnir Wayne Rooney og David Beckham, sem rifust heiftarlega á vellinum í tapi Englendinga fyrir Norður-Írum á dögunum, hafa nú náð sáttum á ný. Rooney brá sér yfir til Spánar í gærkvöld ásamt konu sinni og snæddi kvöldverð með Beckham hjónunum. Rooney á að hafa hringt í Beckham fljótlega eftir leikinn á dögunum til að biðjast afsökunar og landsliðsfyrirliðinn tók vel í það og bauð þeim hjónum yfir til Spánar í mat í kjölfarið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×