Sport

Essien gæti fengið bann

NordicPhotos/GettyImages
Miðjumaðurinn Michael Essien gæti átt yfir höfði sér leikbann fyrir ljóta tæklingu hans á varnarmanninn Tal Ben Haim hjá Bolton um helgina, en vel má vera að knattspyrnusambandið fari yfir myndband af atvikinu í vikunni. Rob Styles dómari leiksins hefur ákveðið að fara yfir atvikið á myndbandi og Sam Allardyce, stjóri Bolton, sagði að þetta hefði verið líkara árás. "Ég er steinhissa á því að hann hafi ekki verið rekinn af leikvelli fyrir þetta brot, en hann kastaði sér sjálfur niður eins og hann hefði meiðst. Hann vissi vel að þetta væri ljót tækling og ég held að öllum hafi þótt hann eiga skilið að fjúka útaf fyrir þetta," sagði Allardyce.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×