Sport

Portúgal yfir í hálfleik

Simao Sabrosa fagnar marki sínu fyrir Portúgal
Simao Sabrosa fagnar marki sínu fyrir Portúgal AFP
Portúgal hefur yfir 2-1 gegn Mexíkó í hálfleik í uppgjöri liðanna í D-riðlinum á HM. Maniche kom Portúgal yfir strax í upphafi og Simao Sabrosa bætti við öðru marki úr vítaspyrnu á 24. mínútu. Jose Fonseca minnkaði muninn skömmu síðar og hefur leikurinn verið einstaklega fjörugur og skemmtilegur. Staðan í leik Íran og Angóla er enn 0-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×