Sport

Hættur sem framkvæmdarstjóri og þjálfari annars flokks

Sigurður Helgason er hættur sem framkvæmdarstjóri KR sport en hann hefur gegnt því starfi síðan árið 2001. Hann hættir jafnframt sem þjálfari annars flokks KR. Að sögn Jónasar Kristinssonar, formans KR sports, óskaði Sigurður eftir því að vera leystur frá störfum og stjórnin varð við þeirri ósk. Þetta hafi verið gert í sátt beggja aðila.

„Það er búið að ráða Guðjón Kristinsson í starf framkvæmdarstjóra og Einar Sigurðsson tekur við öðrum flokki, hann gengur inn í þjálfarateymi liðsins," sagði Jónas um hverjir tækju við keflinu af Sigurði.

Ekki náðist í Sigurð Helgason vegna Þessa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×