Fótbolti

Öruggt hjá Liverpool

Steven Gerrard fagnar hér marki sínu á Anfield í kvöld.
Steven Gerrard fagnar hér marki sínu á Anfield í kvöld. AFP

Liverpool átti ekki í neinum vandræðum með að leggja Bordaeux af velli á heimavelli sínum í Meistaradeildinni í kvöld. Lokatölur urðu 3-0 og er Liverpool búið að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum, rétt eins og PSV sem sigraði Galatasary, 2-0.

Luis Garcia skoraði tvö mörk fyrir Liverpool í kvöld og þá skoraði Steven Gerrard sitt fyrsta mark fyrir liðið í nokkurn tíma. Gerrard lék sem fyrr á hægri kantinum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×