Liverpool er eins og ítalskt lið fyrir tíu árum 5. maí 2007 08:45 nordic photos/getty
Gennaro Gattuso, leikmaður AC Milan, segir að Manchester United sé hæfileikara lið en Liverpool, sem mætir Milan í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í Aþenu. Milan sló Manchester United út í undanúrslitunum. „Liverpool er eins og ítalskt lið fyrir tíu árum. Allar sendingar eru langar og liðið reynir að verjast með alla menn fyrir aftan boltann og einn framherja," sagði Gattuso. „United er með mun teknískari leikmenn. Þeir eru fljótir og geta gert eitthvað þegar þeir fá boltann. Liverpool hefur ekki slíka leikmenn í sínum röðum." Hann segir enn fremur að úrslitaleikurinn nú verði öðruvísi en sá fyrir tveimur árum þegar liðin mættust af sama tilefni í Istanbúl. Þar vann Liverpool í vítaspyrnukeppni eftir að framlengdum leik lauk með 3-3 jafntefli. „Ég lofa því að þessi úrslitaleikur verði öðruvísi. Það er mikilvægt að leiðrétta það sem miður fór þá." Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, viðurkenndi að það hefði komið honum á óvart að AC Milan skyldi komast í úrslitin en ekki Manchester United.„Ég er sannfærður um að við getum farið til Aþenu og komið með bikarinn aftur heim. Milan er þó með frábært lið og við vitum að leikurinn verður afar erfiður. Við þurfum að sýna okkar besta leik. Ég hélt að Liverpool og Manchester United myndu mætast í úrslitunum en leikmenn Milan eiga hrós skilið þar sem þeir voru frábærir í leiknum og unnu hann verðskuldað."
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Fleiri fréttir Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Búlgarskur formaður skotinn til bana „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Sjáðu mörkin hjá ungu strákunum gegn Sviss Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ „Það er ekkert grín að skora fimm mörk í landsleik“ Sjá meira