Samkeppnin mun að líkindum stóraukast 22. mars 2007 13:06
Leiðtogar Evrópusambandsins náðu í morgun samkomulagi um umfangsmikinn loftferðasamning við Bandaríkin sem búist er við að muni stórauka samkeppni á flugleiðum yfir Atlantshafið.Loftferðasamningurinn hefur legið í loftinu, ef svo má segja, í fjögur ár en í byrjun þessa mánaðar tók loks skriður að komast á málin. Á fundi samgönguráðherra ESB-ríkjanna í Brussel í morgun náðist svo loks samkomulag um þetta mikla hagsmunamál enda er markaðurinn í Atlantshafsfluginu metinn á rúma eitt þúsund milljarða króna. Samkomulagið kveður á um að flugfélög hvar sem er í Bandaríkjunum og ríkjum ESB geta hafið flug yfir Atlantshafið en hingað til hefur það verið háð allströngum skilyrðum. Vonast til að samkeppni í flugi á milli Evrópu og Bandaríkjanna muni með þessu aukast, verð lækka og ferðir verði tíðari. Alger samstaða náðist um málið á fundinum í Brussel í morgun en fyrirfram var búist við að Bretar myndu leggjast gegn því af ótta við að of mikið myndi þrengja að British Airways á Heathrow-flugvelli og vegna þess að heimildir evrópskra flugfélaga til að fjárfesta í bandarískum flugfélögum væru takmarkaðar.Samningurinn gengur í gildi í mars á næsta ári. Óvíst er hvaða áhrif hann hefur á stöðu Icelandair sem árum saman hefur verið í eldlínunni á þessum markaði.
Erlent Fréttir Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira