Páfinn bað fyrir Madeleine 30. maí 2007 18:58
27 dagar eru liðnir síðan bresku telpunni Madeleine McCann var rænt af hótelherbergi í Portúgal og enn hefur ekkert til hennar spurst. Foreldrar Madeleine hittu Benedikt páfa sextánda í Róm í dag. Hann blessaði mynd af dóttur þeirra og bað fyrir fjölskyldu. Benedikt hitti þau Kate og Gerry McCann, foreldra Madeleine litlu á vikulegri samkomu sinni á Péturstorginu í Róm í morgun. Mikill fjöldi fólks fylgdist með fundum þeirra og var hluttekning viðstaddra með hinum ógæfusömu foreldrunum augljós. McCann-hjónin sýndu páfa mynd af Madeleine sem hann blessaði og síðan báðu þau saman eftir að móðir Madeleine bað Benedikt um það. Á blaðamannafundi sem hjónin héldu eftir fundinn sögðu þau páfa hafa þekkt myndina samstundis og þau myndu geyma hana vandlega. McCann-hjónin hyggjast ferðast um Evrópu til að leita að dóttur sinni. Á fundinum í dag skoruðu þau á alla þá sem hefðu upplýsingar um Madeleine litlu að gefa sig fram. Í dag eru 27 dagar síðan Madeilene, sem er fjögurra ára, var rænt af hótelherbergi á Praia de Luz á Algarve í Portúgal en foreldrar hennar höfðu brugðið sér út til að fá sér að borða. Ítarleg leit portúgölsku lögreglunnar, með aðstoð erlendra sérfræðinga, hefur enn engan árangur borið og með hverjum deginum sem líður fara vonirnar þverrandi að Madeleine finnist.
Madeleine McCann Mest lesið Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Innlent Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Erlent Mojtaba Khamenei særður en óhultur Erlent Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlent Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Erlent Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Erlent Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Innlent Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Erlent Stúlkan sem leitað var að er fundin Innlent Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Fleiri fréttir Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Sjá meira