GOG nálgast toppsætið í Danmörku Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. nóvember 2007 09:05 Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fjögur mörk fyrir GOG í gær. Nordic Photos / Bongarts
Heil umferð fór fram í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær og nálgaðist Íslendingaliðið GOG toppinn eftir leiki gærkvöldsins. GOG vann góðan útisigur á Nordsjælland, 42-35, eftir að hafa leitt með fjórum mörkum í hálfleik. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fjögur mörk fyrir GOG í leiknum og Ásgeir Örn Hallgrímsson þrjú. Topplið FCK missteig sig í gær og gerði jafntefli við Team Tvis Holstebro. Arnór Atlason er kominn aftur á fullt eftir að hafa jafnað sig á meiðslum og skoraði sex mörk í leiknum í gær. Skjern og Århus GF töpuðu einnig dýrmætum stigum í gær er liðin gerðu jafntefli, 32-32. Vignir Svavarsson skoraði tvö mörk fyrir Skjern en Sturla Ásgeirsson skoraði fjögur fyrir AGF. Skjern er í áttunda sæti deildarinnar, AGF í því sjöunda og Fredericia í fimmta sæti. Fredericia vann í gær tveggja marka sigur á Mors-Thy á útivelli, 20-18. Hannes Jón Jónsson skoraði fjögur mörk fyrir Fredericia og Gísli Kristjánsson eitt. Fannar Þorbjörnsson komst ekki á blað hjá liðinu. TMS Ringsted er í næstneðsta sæti deildarinnar með þrjú stig og tapaði í gær fyrir AaB, 36-24. Þorri Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir TMS. FCK og Bjerringbro-Silkeborg eru á toppi deildarinnar með átján stig og GOG er í því þriðja með sautján. Team Tvis og Kolding koma næst með sextán stig. Bjerringbro-Silkeborg vann í gær auðveldan sigur á botnliði Skanderborg, 36-28, og Kolding vann sigur á Viborg á útivelli, 33-25.
Handbolti Mest lesið Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Fótbolti Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum Handbolti Segir Leipzig hinn fullkomna áfangastað fyrir unga og efnilega leikmenn Fótbolti Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ Íslenski boltinn LIV-kylfingar mega áfram taka þátt í Ryder-bikarnum og PGA-meistaramótinu Golf Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Handbolti „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ Handbolti Dagskráin í dag: Besta kvenna, Formúlu 1, hafnabolti, fótbolti og golf Sport Fleiri fréttir Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Íslendingaliðið byrjar vel í titilvörninni Rakel Dögg: Lokuðum vel varnarlega og Alfa skildi liðin að sóknarlega Uppgjörið: Fram - Haukar 27-26 | Heimakonur unnu æsispennandi leik Fyrsti sigurinn hjá bæði Stjörnukonum og Framkörlum Segir að Haukur Þrastar geti gert mikið fyrir íslenska landsliðið á HM í janúar Stjarnan sótti ekki gull í greipar Eyjamanna „Þurfum að vera fljótir að læra“ Valur ekki í vandræðum í Vestmannaeyjum Íslenskt markaflóð í Svíþjóð Uppgjörið: Valur - Afturelding 31-34 | Frábær sigur gestanna „Í versta falli fer allt til fjandans, svo kemur nýr dagur“ „Alltaf gaman að spila í KA heimilinu” Sjá meira