NBA í nótt: Fimmtándi sigur Boston í röð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. desember 2008 09:12 Rajon Rondo sækir að Deron Williams í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Boston vann í nótt sigur á Utah, 100-91, og þar með sinn fimmtánda sigur í röð í NBA-deildinni í körfubolta. Níu leikir fóru fram í deildinni í nótt. Rajon Rondo fór á kostum í leiknum í nótt og skoraði 25 stig sem er persónulegt met. Þar af skoraði hann tólf stig á síðustu fimm mínútum leiksins. Utah, og þá helst Deron Williams, náðu að halda spennu í leiknum á síðustu mínútunum en Rondo sá ávallt til þess að Boston væri skrefi á undan. Hann var alls með níu fráköst, átta stoðsendingar og þrjá stolna bolta í leiknum. Kevin Garnett bætti við nítján stigum og tíu fráköstum og Kendrick Perkins var með fimmtán stig og fjórtán fráköst. Paul Pierce var einnig með fimmtán stig. Paul Millsap var með 32 stig og tíu fráköst fyrir Utah og Williams fimmtán stig. Denver vann Dallas, 98-88. JR Smith var með 25 stig og Carmelo Anthony 23 er Denver vann sinn fjórða leik í röð. Milwaukee vann Miami, 98-83. Michael Redd skoraði 21 stig, þar af sextán í fyrsta leikhluta. Milwaukee náði góðri forystu í byrjun leiks og náði að standa af sér áhlaup Miami undir lok leiksins. Indiana vann Washington, 118-98. Danny Granger skoraði 27 stig og Marquis Daniels bætti við 20 fyrir Indiana. Þetta var fyrsti sigur liðsins í síðustu sjö leikjum þess. Sacramento vann Minnesota, 118-103. Francisco Garcia skoraði 21 stig og John Salmons sautján fyrir Sacramento en þetta var fyrsti leikur Minnesota undir stjórn nýja þjálfarans, Kenny Natt. Orlando vann Golden State, 109-98. Jameer Nelson skoraði 23 stig í síðari hálfleik og alls 32 sem er persónuleg metjöfnun. Atlanta vann Charlotte, 83-79. Joe Johnson var með 28 stig í leiknum fyrir Atlanta og Josh Smith fimmtán. New Jersey vann Toronto, 94-87. Ryan Anderson skoraði 21 stig fyrir New Jersey og þeir Vince Carter og Devin Harris voru með tuttugu hvor. Phoenix vann New York, 111-103. Shaquille O'Neal var stigahæstur með 23 stig auk þess sem hann tók tólf fráköst. Amare Stoudemire og Steve Nash voru með 21 stig hvor.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Körfubolti Fleiri fréttir „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sjá meira