Hraðalestin heyrir sögunni til 2. október 2008 15:18 Shaquille O´Neal, Steve Nash og Amare Stoudemire NordicPhotos/GettyImages
Nýr þjálfari Phoenix Suns, Terry Porter, virðist ætla að breyta mikið um áherslur hjá liðinu frá því sem var undir forvera hans Mike D´Antoni. Undir stjórn D´Antoni var lið Suns gjarnan nefnt Phoenix-hraðalestin, en nú er D´Antoni tekinn við New York Knicks og nýr þjálfari með ólíkar áherslur kominn í bílstjórasætið í eyðimörkinni. Phoenix-liðið hefur verið eitt það skemmtilegasta á að horfa í deildinni undanfarin ár þar sem það spilaði undir kjörorðinu "sjö sekúndur eða minna" - en það var tilvísun í speki þjálfarans sem vildi leita að fyrsta mögulega færi á að skora í sókninni og keyra upp hraðann. Ef marka má skrif Arizona Republic hefur Porter aðrar hugmyndir um hvernig best megi nýta þann sterka leikmannahóp sem hann hefur undir höndum. Steve Nash, Shaquille O´Neal og Grant Hill eru þannig allir á síðustu metrunum á ferlinum og því mætti ætla að þeir hefðu gott af því að spila hægari og kerfisbundnari sóknarleik. Aðeins tíminn getur þó leitt það í ljós, en væntingarnar til Phoenix liðsins hafa heldur dalað eftir að það tapaði 4-1 fyrir San Antonio í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í vor.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland | Strákarnir okkar í Tókýó Fótbolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Körfubolti Fleiri fréttir „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sjá meira