Jordan rekinn frá Washington 24. nóvember 2008 17:07 Eddie Jordan var á sínu sjötta ári með Wizards NordicPhotos/GettyImages
Eddie Jordan var í dag rekinn úr starfi sem þjálfari Washington Wizards í NBA deildinni. Hann er annar þjálfarinn á tveimur dögum sem er látinn taka pokann sinn í deildinni. Lið Washington hefur verið þjakað af meiðsladraugnum í vetur líkt og á síðustu árum og hafði aðeins unnið einn af fyrstu ellefu leikjum sínum það sem af er móts. Þetta er metjöfnun á verstu byrjun í sögu félagsins, en það hefur einu sinni áður byrjað 1-10 og það var árið 1966 þegar liðið hét Baltimore Bullets. Dropinn sem fyllti mælinn hjá stjórn félagsins var eflaust tap liðsins fyrir undirmönnuðu liði New York Knicks á laugardagskvöldið - þar sem New York var aðeins með sjö leikmenn á leikskýrslu. Ed Tapscott mun stýra liði Washington þar til eftirmaður Jordan finnst, en hann er partur af þjálfarateymi félagsins. Aðeins Jerry Sloan hjá Utah Jazz og Gregg Popovich hjá San Antonio Spurs höfðu setið lengur í sama þjálfarastólnum en Jordan í NBA deildinni. Hann var að byrja sína sjöttu leiktíð hjá Wizards og kom liðinu í úrslitakeppnina fjórum sinnum á þessum tíma. Hann þjálfaði lið Austurdeildarinnar í stjörnuleiknum í fyrra.
NBA Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Sjá meira