Hamilton tæpur fyrir leikinn í nótt 30. maí 2008 06:13 Richard Hamilton meiddist í síðasta leik og er aumur í skothendinni NordcPhotos/GettyImages
Richard Hamilton, stigahæsti leikmaður Detroit Pistons í úrslitakeppninni, er tæpur fyrir mikilvægan sjötta leik liðsins gegn Boston í úrslitum Austurdeildarinnar í nótt. Hamilton meiddist á olnboga undir lok fimmta leiksins í Boston í fyrrakvöld og sagði Flip Saunders þjálfari liðsins að Hamilton hefði ekki komið til greina ef sjötti leikur liðanna hefði farið fram strax í gærkvöld. Hamilton fór í myndtöku eftir leikinn og er óbrotinn, en talið er að hann hafi tognað. "Þetta er auðvitað skothendin - gullhendin hans. Við verðum bara að bíða og vona hvort hann verður klár," sagði Saunders. Búist er við því að Rodney Stuckey verði jafnvel í byrjunarliði Detroit ef Hamilton verður ekki orðinn klár. Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir Pistons, því leikstjórnandi liðsins Chauncey Billups getur heldur ekki beitt sér að fullu vegna meiðsla á læri. Hamilton hefur skorað hátt í 22 stig að meðaltali í leik í úrslitakeppninni, en næsti maður er Chauncey Billups með rúm 15 stig að meðaltali í leik. Sjötti leikur Detroit og Boston verður sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan 00:30 í nótt.
NBA Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira