Körfubolti

James nappaður á 160

James var að flýta sér á afmælisdaginn
James var að flýta sér á afmælisdaginn NordicPhotos/GettyImages

Stjörnuleikmaðurinn LeBron James hjá Cleveland Cavaliers var tekinn fyrir hraðakstur sunnan við Cleveland í síðasta mánuði. James ók á 160 kílómetra hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði var í kring um 90 kílómetra.

Þetta atvik átti sér stað aðfaranótt 30. desember sl. en það er einmitt afmælisdagur framherjans. Hann þarf að mæta fyrir dómara þann 11. febrúar vegna málsins.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem NBA leikmaður kemur sér í vandræði við stýrið á afmælisdaginn, því fyrrum NBA leikmaðurinn Charles Oakley var nappaður fyrir ölvunarakstur á 44. afmælisdaginn sinn í síðasta mánuði. Lestu um það hér.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×