NBA í nótt: Yao öflugur í sigri Houston á Cleveland Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. febrúar 2008 08:51 LeBron James náði ekki að leiða sína menn til sigurs gegn Yao Ming og félögum. Nordic Photos / Getty Images
Houston Rockets vann í nótt góðan sigur á Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í körfubolta, 92-77. Kínverjinn Yao Ming var sérstaklega öflugur í leiknum og skoraði 22 stig auk þess sem hann tók niður tólf fráköst. Houston hefur verið á góðri siglingu undanfarið en þetta var fimmti sigur liðsins í röð og sá níundi í síðustu tíu leikjum liðsins. Tracy McGrady hafði hægt um sig í leiknum og skoraði átta stig. Sjálfsagt hafði það eitthvað að segja að hann eyddi gærdeginum á spítala vegna sýkingar í öndunarfærum. Rafer Alston var með sautján stig og níu stoðsendingar fyrir Houston og Shane Battier fimmtán stig. LeBron James var stigahæstur leikmanna Cleveland með 32 stig en hann var í raun sá eini sem ógnaði af einhverju ráði í sóknarleik liðsins. Chicago vann sex stiga sigur á Golden State, 114-108. Chris Duhon bætti persónulegt met er hann skoraði 34 stig í leiknum en Joe Smith bætti við 27 stigum fyrir Chicago. Stigahæstur hjá Golden State var Monta Ellis með 25 stig og Baron Davis var með 22 stig. Chris Webber lék með liðinu á nýjan leik og skoraði fjögur stig. Philadelphia vann auðveldan sautján stiga sigur á Miami, 101-84. Andre Iguodala var með 25 stig og Andre Miller 21. Hjá Miami var Dwyane Wade stigahæstur með nítján stig og níu stoðsendingar. Þetta var sjötti tapleikur Miami í röð og sá 21. af síðustu 22 leikjum liðsins.
NBA Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira