Körfurnar í Phoenix þurfa að vera Shaq-heldar 12. febrúar 2008 19:07 O´Neal er byrjaður að refsa körfunum í Phoenix og er væntanlegur til keppni fljótlega Nordic Photos / Getty Images
Leikmenn Phoenix Suns hafa farið þess á leit að körfurnar í æfingahúsnæði liðsins verði gerðar Shaq-heldar eftir að Shaquille O´Neal gekk í raðir liðsins og byrjaði að æfa. O´Neal er engin smásmíði og afrekaði það fyrir 15 árum síðan að rífa niður körfu í leik í Phoenix þegar hann var leikmaður Orlando Magic. Síðan hafa körfurnar á heimavelli Phoenix - og reyndar í allri deildinni - verið styrktar til muna, en sömu sögu er ekki að segja um körfurnar í æfingahúsnæðinu. Leikmenn eins og Brian Skinner og Sean Marks sem hafa þurft að gæta O´Neal á æfingum undanfarna daga eru farnir að óttast um helsu sína eftir tröllatroðslur miðherjans stóra. Þeir óttast að fá körfurnar í höfuðið ef O´Neal rífur þær niður. "Þeir sögðu að þeim liði hreint ekki vel undir þessum kringumstæðum og ég er hreint ekki hissa á því," sagði starfsmaður Phoenix. "Þetta dót er allt að hrynja," sagði Leandro Barbosa, leikmaður Phoenix og hristi höfuðið eftir að hafa horft á eina tröllatroðsluna frá O´Neal. Körfurnar hjá Phoenix hafa til þessa verið færanlegar, en til stendur að hóa í járnsmiði til að sjóða þær fastar eftir komu Shaquille O´Neal. Hann er nú óðum að ná í form eftir meiðsli og er "ekki nema" 147 kíló - sem er fjarri því að vera það þyngsta sem hann hefur verið á ferlinum.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Japan - Ísland | Strákarnir okkar í Tókýó Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Fleiri fréttir „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sjá meira